Aron: Samningsmálin standa ágætlega Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar 14. júní 2015 00:00 vísir/eva björk "
Það er búinn að vera mikill stígandi í þessu upp á síðkastið og þessir fjórir leikir núna hafa verið mjög góðir og spilamennska liðsins verið mjög stöðug," sagði Aron Kristjánsson eftir 12 marka sigur, 34-22, á Svartfjallalandi í Laugardalshöllinni í kvöld. Með sigrinum tryggði Ísland sér endanlega sæti á EM í Póllandi í byrjun næsta árs en þetta er níunda Evrópumótið í röð sem íslenska liðið kemst á. "Það hefur verið góð einbeiting og mikill og góður andi í liðinu. Vörnin hefur verið góð og markvarslan sömuleiðis. Leikur liðsins hefur verið heilsteyptur og það er frábært að fara svona inn í sumarfríið, allir glaðir og fyrsta sætið í riðlinum tryggt." Íslenska liðið átti misjafna leiki á HM í Katar í byrjun árs en síðan þá hefur verið allt annað að sjá til liðsins. Aron segir breytt hugarfar hafa breytt mestu þar um. "Þetta snerist um hugarfarið. Það kom eitthvað þreytu- og vanmatsástand eftir EM í Danmörku 2014," sagði Aron en Ísland tapaði sem kunnugt er fyrir Bosníu fyrir ári í umspilsleikjum um sæti á HM í Katar. "Þegar við mættum í Serbíu-verkefnið var hugarfarið allt annað. Allir voru klárir á því um hvað þetta snerist og við sóttum aftur í grunngildin, þau sem gera okkur sterka. "Það er þessi fórnfýsi, vinnusemi og einbeiting. Það verða allir að gefa af sér og vera móttækilegir," sagði Aron en hvernig standa samningsmál hans gagnvart HSÍ? "Þau standa ágætlega og nú þurfum við bara að fara að klára þetta," sagði Aron en gerir hann ráð fyrir að vera áfram við stjórnvölinn hjá landsliðinu? "Ég vil ekkert segja um það en við sjáum bara til," sagði Aron að lokum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira