Körfubolti

Skallagrímur sló Njarðvík út úr bikarnum í Borganesi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigtryggur Arnar Björnsson.
Sigtryggur Arnar Björnsson. Mynd/skallagrímur.is/Ómar Örn
Botnlið Borgnesinga er komið áfram í átta liða úrslit Powerade-bikars karla eftir níu stiga sigur á Njarðvík, 77-68, í sextán liða úrslitunum keppninnar í Fjósinu í kvöld.

Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði tíu stig á síðustu fjórum mínútunum, fimm stigum meira en allt Njarðvíkurliðið á sama tíma, og var öðrum fremur maðurinn á bak við sigurinn í kvöld.

Skallagrímur var bara búið að vinna einn af fyrstu níu leikjum sínum í Dominos-deildinni og sat á botni Dominos-deildarinnar en liðið sýndi styrk sinn í kvöld. 

Njarðvík vann þrettán stiga sigur í leik liðanna í Ljónagryfjunni í Njarðvík á fimmtudagskvöldið en Borgnesingar unnu mikilvægari leikinn.

Skallagrímur vann fyrsta leikhlutann 23-14 en Njarðvíkingar voru komnir einu stigi yfir í hálfleik, 38-37.

Skallagrímur var skrefinu á undan í þriðja leikhlutanum en í þeim fjórða voru Njarðvíkingar komnir með forystu, 63-62. þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af leiknum.

Sigtryggur Arnar Björnsson var frábær á síðustu fjórum mínútum leiksins sem Skallagrímsliðið vann 15-5. Sigtryggur Arnar skoraði tíu af þessum fimmtán stigum Borgnesinga á lokakaflanum en hann endaði leikinn með 23 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar.

Tracy Smith Jr. var með 18 stig og 14 fráköst á móti sínum gömlu félögum, Davíð Ásgeirsson skoraði 15 stig og það munaði líka mikið um Pál Axel Vilbergsson sem er að koma aftur eftir meiðsli. Páll Axel var með 10 stig og 8 fráköst.

Logi Gunnarsson skoraði 23 stig fyrir Njarðvíkinga en það dugði ekki til. Dustin Salisbery skoraði 17 stig og Mirko Stefán Virijevic var með 11 stig.



Skallagrímur-Njarðvík 77-68 (23-14, 14-24, 16-11, 24-19)

Skallagrímur: Sigtryggur Arnar Björnsson 23/9 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Tracy Smith Jr. 18/14 fráköst, Davíð Ásgeirsson 15, Páll Axel Vilbergsson 10/8 fráköst, Egill Egilsson 7, Daði Berg Grétarsson 4.

Njarðvík: Logi Gunnarsson 23, Dustin Salisbery 17/4 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 11/7 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 8, Ólafur Aron Ingvason 4, Hjörtur Hrafn Einarsson 3/7 fráköst, Ragnar Helgi Friðriksson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×