Roy Nelson (19-9-0) gegn Antonio “Big Nog” Nogueira (34-8-1) - þungavigt
Þrátt fyrir að báðir bardagakappanir séu orðnir 37 ára gamlir er hér um þrælskemmtilegan bardaga að ræða.-Roy Nelson hefur aldrei litið út fyrir að vera atvinnuíþróttamaður en það hefur ekki aftrað honum í að komast í fremstu röð í MMA.-Eftir að hafa barist í hinum ýmsu bardagasamtökum komst hann í UFC í gegnum raunveruleikaþáttinn The Ultimate Fighter. Þar sigraði hann m.a. Youtube stjörnuna Kimbo Slice þar sem hann notaði yfirburðar glímugetu sína til að knýja fram sigur. Nelson komst alla leið í úrslit þáttarins þar sem hann rotaði Brendan Schaub og stóð uppi sem sigurvegari.
Árangur Roy Nelson í UFC eru 6 sigrar og 5 töp en allir sigrar hans hafa komið eftir rothögg á meðan töpin hafa allt verið eftir dómaraákvarðanir. Hann er augljóslega með mikinn höggþunga en er einnig svart belti í brasilísku jiu-jitsu og hefur sigrað 5 bardaga eftir uppgjafartak. Nánar má lesa um afrek Roy Nelson hér.
Styrkleikar
- Mjög höggþungur
- Góður glímumaður
- Góða höku en hann hefur aðeins einu sinni verið rotaður
- Fyrirsjáanlegur
- Lélegt úthald - þreytist mjög þegar líður á bardagann
Hann skapaði sér nafn í japönsku bardagakeppninni Pride þar sem hann virtist endalaust geta tekið við höggum en náði oftast að knýja fram sigur á endanum. Hann er með ótrúlegt hjarta og er frábær gólfglímumaður en hann hefur sigrað 21 bardaga eftir uppgjafartak. Hann hefur ekki náð sömu hæðum í UFC eins og í Pride enda kominn af léttasta skeiði. Hann varð þó þungavigtarmeistarinn í UFC en náði ekki að verja titilinn. Nánar má lesa um afrek Big Nog hér.
Styrkleikar
- Frábær gólfglímumaður
- Með góða stungu
- Gefst aldrei upp
- Hægur
- Hakan mun veikari en áður
- Útbrunninn

Þetta er bardagi tveggja glímumanna sem eru með afar svipaðan stíl. Báðir vilja draga bardagann í gólfið og halda honum þar svo þetta gæti orðið afar athyglisverður bardagi!
Clay Guida var eitt sinn einn allra skemmtilegasti bardagamaðurinn í UFC. Eftir tvö töp í röð skipti hann yfir í mun íhaldssamari bardagastíl. Í dag einblínir hann mest á að taka andstæðinga sína niður og halda þeim þar án þess að reyna uppgjafartök. Guida barðist lengi vel í léttvigtinni en færði sig niður í fjaðurvigtina þar sem hann er nú. Guida trúir því að það besta eigi enn eftir að koma frá honum en hann æfir hjá Greg Jackson sem er einn virtasti þjálfarinn í MMA í dag.
Styrkleikar
- Góðar fellur
- Hreyfir sig mikið sem gerir andstæðingum erfitt fyrir að reikna hann út
- Gott úthald
- Lítill kraftur í höggunum hans
- Virðist ekki reyna að klára bardaga sína
Styrkleikar
- Góðar fellur
- Setur mikla pressu á andstæðinginn
- Á erfiðleikum með að halda fjarlægðinni með höggum
- Leikáætlun hans er fyrirsjáanleg
John Howard barðist fyrst í UFC í janúar 2009 og sigraði fyrstu fjóra bardaga sína þar. Eftir 3 töp í röð gegn sterkum andstæðingum (Jake Ellenberger, Thiago Alves og Matt Brown) var hann látinn fara. Howard gekk vel utan UFC og sigraði 6 af 7 bardögum sínum þar. Þegar að andstæðingur Uriah Hall meiddist bauð UFC Howard að koma til baka með skömmum fyrirvara. Howard stóð sig virkilega vel og sigraði TUF keppandann og stimplaði sig svo enn frekar inn í UFC með sigri á Siyar Bahadurzada í desember.
Styrkleikar
- Harður af sér
- Jafnvígur á öllum vígstöðum bardagans
- Höggþungur
- Lendir í vandræðum þegar hann nær ekki að yfirbuga andstæðinga sína með styrk sínum
- Einblínir bara á boxið og sparkar lítið sem getur orðið fyrirsjáanlegt
Styrkleikar
- Góðar fellur
- Gefst aldrei upp við að reyna að ná fellunni og andstæðingar hans fá engan tíma til að athafna sig
- Léleg vörn gegn höggum
Ramsey Nijem þekkja eflaust margir úr The Ultimate Fighter raunveruleikaþáttunum þar sem hann hafnaði í 2. sæti. Nijem er góður glímumaður en verður seint kallaður góður boxari. Hann er með 4 sigra og 3 töp í UFC.
Styrkleikar
- Góður fellur
- Góður “scrambler”
- Mjög opinn fyrir gagnárásum (sjá Myles Jury bardagann)
- Ónákvæmur boxari
- Slæm haka
Styrkleikar
- Frábær gólfglímumaður
- Hraður
- Skarpur bardagamaður
- Sættir sig við að vera á botninum sem lítur ekki vel út í augum dómara