Fótbolti

„Von­sviknir að ná ekki að nýta yfir­burðina“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var sáttur við frammistöðuna hjá sínu liði.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var sáttur við frammistöðuna hjá sínu liði. Vísir/Guðmundur

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sagði herslumun og gæði hafa vantað upp á til þess að lið hans nýtti það að hafa verið ofan á þegar liðið laut þó í lægra haldi fyrir KR í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 

„Við sköpuðum hvað eftir annað góðar stöður og fegnum urmul af færum til þess að skora fleiri mörk. Það vantaði kannski aðeins gæðin í lokasendingarnar og hvernig við klárum færin til þess að við myndum ná að binda endahnútinn á lofandi sóknir okkar,“ sagði Rúnar eftir leik.

„Þeir eiga tvö skot á markið og þau fara bæði inn þannig að ég held að það sé óhætt að segja að þetta séu ekki sanngjörn úrslit. Við erum vonsviknir að fá ekkert út úr þessum leik en svona er fótboltinn.

Ég held að það hafi ekki gerst oft í sumar að lið hafi náð að halda KR svona mikið frá boltnum og skapa jafn mörg færi við gerðum á móti þeik. Frammistaðan var flott en niðurstaðan að sama skapi svekkjandi,“ sagði Rúnar enn fremur.

„Það vantaði ekkert upp á orkustigið hjá Framliðinu og þetta var bara hörku skemmtilegur leikur. Við vildum fá eitthvað út úr honum en náðum ekki að nýta okkur yfirburðina,“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×