Fótbolti

„Þetta var alltaf mitt mark“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Aron Sigurðarson var að hans mati á skotskónum í kvöld.
Aron Sigurðarson var að hans mati á skotskónum í kvöld. vísir/Guðmundur

Áhöld eru um hvort Aron Sigurðarson, fyrirliði KR hafi skorað fyrra mark liðsins þegar liðið vann Fram í Bestu-deild karla í fótbolta og þar af leiðandi jafnað markamet Benónýs Breka Andréssonar í efstu deild. 

„Þetta var klárlega mitt mark ef að þú spyrð mig. Að mínu mati er boltinn á leið á markið og því ætti að skrá þetta mark á mig. Ég er að fara að banka á dyrnar hjá dómurunum og færa rök fyrir mínu máli eftir þetta viðtal,“ sagði Aron léttur um markið eftir leik.

Aron var að skora sitt 21. mark í deildinni fái hann markið skráð á sig af dómara leiksins.  

„Við vorum lengi í gang í þessum leik en vorum betri í seinni hálfleik en þeim fyrri. Við skorum tvö fín mörk og þeir fengu ekki mörg opin færi þrátt fyrir að vera meira með boltann og ná að þrýsta okkur aftarlega á völlinn á köflum,“ sagði hann. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×