MMA

MMA

Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Fréttamynd

Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari

Vitali Korshak úr Reykjavík MMA gerði sér lítið fyrir og sigraði Ali Albazi er kapparnir mættust í bardagabúrinu á vegum Caged Steel í gærkvöldi og hefndi þar með fyrir ósigur liðsfélaga síns hér heima undir lok síðasta mánaðar. 

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Geta hefnt fyrir ó­farir Hákonar annað kvöld

Fjórir bardagamenn frá Reykjavík MMA berjast á bardagakvöldi Caged Steel 42 í Doncaster á Englandi á morgun. Einn þeirra mætir Ali Albazi sem hafði betur gegn Hákoni Erni Arnórssyni á bardagakvöldi hér í Reykjavík á dögunum.

Sport
Fréttamynd

„Sagði að ég væri lítill svo ég sagði honum að halda kjafti“

Mikil spenna ríkir fyrir MMA bar­daga­kvöldi sem fer fram í Reykja­vík í kvöld. Ungur Mos­fellingur, Há­kon Örn Arnórs­son, keppir í aðal­bar­daga kvöldsins sem jafn­framt er titil­bar­dagi. Óhætt er að segja að Há­kon og and­stæðingur kvöldsins séu ekki bestu vinir eins og sannaðist í gær.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að sanna að hann sé bestur í Evrópu

Bardagakappinn Viktor Gunnarsson mætir Caleb Mullin á Glacier Fight Night á laugardagskvöldið í Úlfársárdalnum. Hann segist vera klár í slaginn og ætlar að sýna að hann sé sá besti í Evrópu. 

Sport
Fréttamynd

Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt

UFC-bardagakappinn Cameron Smotherman missti meðvitund nokkrum sekúndum eftir að hafa náð vigt á föstudag í Las Vegas, sem varð til þess að forsvarsmenn aflýstu fyrirhuguðum bardaga hans gegn Ricky Turcios.

Sport
Fréttamynd

Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu

Bardagakappinn Geronimo dos Santos, sem keppti lengi í blönduðum bardagalistum (MMA) og Bare Knuckle Fighting Championship (BKFC), er látinn 45 ára að aldri eftir að hafa drukknað heima í Brasilíu.

Sport
Fréttamynd

„Mamma vill bara að ég sé í ballett“

Fram­undan er sögu­legt MMA bar­daga­kvöld í Andrews The­at­her á Ás­brú í kvöld. Í aðal­bar­daga kvöldsins stígur hinn 21 árs gamli Há­kon Arnórs­son, bar­daga­kappi úr Reykja­vík MMA, inn í búrið og berst við hinn norska Eric Nordin, í fyrsta sinn á Ís­landi.

Sport
Fréttamynd

Slappur smassborgari

Óskarsverðlaunabeita Benny Safdie og Dwayne Johnson forðast hefðbundna byggingu ævisögumynda og beitir markvisst heimildarmyndarstíl. Kvikmyndin heldur sig þó á yfirborðinu og kemst aldrei að kjarnanum.

Gagnrýni
Fréttamynd

McGregor í langt bann en gæti keppt í Hvíta húsinu

MMA bardagakappinn Conor McGregor hefur verið dæmdur í átján mánaða bann frá keppni í UFC vegna brota á reglum um lyfjaeftirlit. Hann mun þó geta byrjað að keppa aftur á næsta ári, vel tímanlega fyrir bardagakvöldið á afmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta fái hann að keppa þar.

Sport
Fréttamynd

Sigur í hjarta Muay Thai í­þróttarinnar opnar margar dyr

Þorgils Eiður Einarsson segir að sigur sinn í bardaga í hinni sögufrægu Rajadamnern höll í dag opni margar dyr fyrir sig. Heimsókn þjálfara hans til Íslands í miðjum kórónuveirufaraldrinum varð til þess að hann fékk tækifæri til að stunda Muay Thai í Taílandi.

Sport