Skoðun

Í spennitreyju haftanna

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, hefur undanfarnar vikur verið fjallað um áhrif gjaldeyrishaftanna á íslenzkt efnahags- og viðskiptalíf. Í síðasta blaði var sjónum beint að áhrifum haftanna á lífeyrissjóðina, umsvifamestu fjárfesta landsins, sem jafnframt gæta gríðarlegra hagsmuna nánast allra launþega í landinu.

Vegna haftanna eru sjóðirnir lokaðir inni með fjárfestingar sínar og geta ekki lengur beint þeim að hluta til á alþjóðlegan fjármálamarkað. Þetta hefur margs konar afleiðingar.

Í fyrsta lagi eru áhrifin fyrir sjóðina sjálfa og eigendur þeirra, fólkið í landinu, neikvæð. Að binda mikinn meirihluta fjárfestinga sjóðanna við eitt hagkerfi, það íslenzka, eykur stórlega áhættu þeirra. Hlutfall erlendra eigna þeirra er nú aðeins um 20 prósent og stefnir í 15 prósent á næstu sjö til átta árum. Til lengri tíma litið mun þetta draga úr ávöxtun sjóðanna og þar með úr getu þeirra til að standa undir skuldbindingum. Með öðrum orðum getum við ekki vænzt þess að hafa það jafngott í ellinni eða ef við veikjumst eða slösumst og við hefðum gert ella.

Í öðru lagi eru áhrifin á hagkerfið í heild þau að kröfur til útgefenda hvers kyns verðbréfa minnki þegar fjárfestar hafa eingöngu um innlendar fjárfestingar að velja, eins og Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, bendir á í Markaðnum. Það dregur úr framleiðni í hagkerfinu og kemur þar með niður á hagvexti og lífskjörum.

Í þriðja lagi hafa lífeyrissjóðirnir á skömmum tíma safnað að sér svo miklum eignum að það er byrjað að koma niður á samkeppnisumhverfinu í landinu. Á einu ári hefur bein eign sjóðanna í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllina vaxið úr 29 prósentum í 37 prósent. Þá er ótalin óbein eignaraðild sjóðanna í gegnum ýmiss konar fjárfestingarsjóði. Líkast til eiga þeir upp undir helming hlutabréfamarkaðarins. Þannig upplifum við í nýju formi eina helztu meinsemd efnahagslífsins fyrir hrun; samþjappað og um leið óskýrt eignarhald.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir í Markaðnum að höftin stuðli að einangrun og dragi úr samkeppni erlendis frá. Þau hamli möguleikum nýrra fyrirtækja til að hasla sér völl á markaði og veiki fjárhagsstöðu þeirra sem fyrir eru. Loks ýtir innilokun þessara stóru fjárfesta undir verðbólur, bæði á hlutabréfa- og fasteignamarkaðnum.

Þetta er aðeins hluti af þeirri dapurlegu mynd sem er að teiknast upp af íslenzku atvinnulífi innan haftamúrsins. Því miður eru engar líkur á að hún breytist mikið á meðan við búum áfram við krónuna, sem verður í höftum til frambúðar. Seðlabankinn hefur gefið skýrt til kynna að lífeyrissjóðirnir muni í fyrirsjáanlegri framtíð búa við „hraðahindranir“; verði áfram að mestu innilokaðir.

Átta stjórnmálamennirnir sig virkilega ekki á því hversu alvarleg þessi staða er? Af hverju eru þeir ekki að gera neitt til að útvega okkur gjaldmiðil sem getur spjarað sig án hafta?




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×