Ég heiti Dagur og ég er drusla. 27. júlí 2013 18:40 Vísir birtir hér ræðu Dags B. Eggertssonar sem hann flutti í tilefni af Druslugöngunni, 27. júlí 2013. Komið þið sæl! /Til hamingju með daginn! Það er mér sannur heiður að vera hérna með ykkur. Ég heiti Dagur og ég er drusla. Ég vil taka ofan fyrir skipuleggjendum þessarar göngu. Hún gerir borgina okkar betri, opnari, sterkari, frjálsari, mannlegri og öruggari. Ég vil taka ofan fyrir þeim sem hafa rofið þögnina að undanförnu María Rut Kristinsdóttir, Auður Kolbrá Birgisdóttir, Guðný Jóna Kristjánsdóttir, Eiríkur Guðbergur Stefánsson, Hilmar Örn Þorbjörnsson, Hildur Lillendahl, Sveinn Rúnar Einarsson, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Þið eruð miklu fleiri, þið eruð mörg og þið eruð sterk. Ykkar er heiðurinn, en ekki skömmin og við stöndum hundrað prósent með ykkur. Það er mér heiður að fá að tala við ykkur í dag, en sú hugsun er nærri að ég eigi það ekki skilið.Umbótaöflin hafa reynst sterk Ég vil því að við horfum í kringum okkur hér í dag, með stolti, kynnum okkur fyrir næsta manni, gefum hvort öðru knús ef okkur líður þannig, en munum líka eftir fólkinu sem ruddi brautina gegn kynferðisofbeldi og skömm í samfélaginu. Ásta Sigurðardóttir, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfin, Telma Ásdísardóttir, Drekaslóð, Guðrún Jónsdóttir, Stígamót , Jón Sæmundur Auðarsson, Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Breiðavíkurdrengirnir. Listinn er langur. Og miklu lengri en þetta. En umbótaöflin hafa líka reynst sterk, einsog við sýnum hér í dag. Rauðsokkur, Kvennaframboðið og Kvennalistinn, Feministafélagið, karlahópur Feministafélagsins og Karlar segja Nei við nauðgunum, SASA – samtök karla og kvenna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, Blátt áfram, Kristínarhús, Aflið á Akureyri, Sólstafir Vestfjarða og Bleiki fíllinn í Vestmannaeyjum. - Já, það er hægt að fá gæsahús, jafnvel á mesta sólardegi sumarsins. Við njótum góðs af baráttu ótölulegs fjölda karla og kvenna sem hafa stigið fram, tekið slaginn og fengið vindinn í fangið fyrir að segja sannleikann, afneita skömminni og berjast gegn ofbeldi í sínum fjölbreytilegu myndum. Og við verðum að viðurkenna að samfélagið hefur allt of oft brugðist þolendum. Ekki staðið með þeim. Á Húsavík. Á Ísafirði og í Reykjavík, og svo miklu víðar. Við erum hér í dag til að undirstrika samstöðu okkar með þeim og undirstrika að við erum til í slaginn með þeim. Og með öllum þeim sem eru útsettir fyrir kynferðisofbeldi. Og sá slagur stendur yfir. Í dag. Hér í borginni.Konur einsog ég og þú fluttar á milli landa sem hluti af kynlífsiðnaði Það tók okkur mörg ár að hindra útbreiðslu nektarstaða í Reykjavík. Við vissum að þeir tengdust mansali og seldu aðgang að konum. En það var erfitt að sanna það. Oft voru þetta erlendar konur, dansarar. Þetta voru konur einsog ég og þú en þær fengu sannarlega að heyra að þær væru druslur. Þetta voru hluti þeirra milljóna kvenna sem fluttar eru milli landa sem hluti af kynlífsiðnaði sem haldið er uppi með fjármunum kúnnanna, sinnuleysi yfirvalda og þögn fjölmiðla. Reykjavíkurborg linnti ekki látum fyrr en að fundust höfðu leiðir til að stoppa þessa staði. Baráttan fór alla leið í Hæstarétt, en vannst og stærsti áfanginn var þegar Alþingi samþykkti lög sem bannaði að veitingastaðir gerðu út á nekt starfsfólks. En það gekk ekki baráttulaust. Og þessi barátta heldur áfram. Nú spretta upp í borginni kampavínsstaðir. Þeir selja líka aðgang að samvistum við konur. Og segjast fara að reglum. Í síðustu viku rauf Fréttablaðið þögnina um hvað þarna fer fram í grein Maríu Lilju Þrastardóttur og síðar viðtali Björk Vilhelmsdóttur, sem er ekki aðeins borgarfulltrúi heldur einnig fyrrverandi starfskona Kvennaathvarfsins, Kvennaráðgjafarinnar og margreynd úr baráttu og starfi kvennahreyfinga. Björk spurði hinna augljósu spurninga um hvort á kampavínsklúbbum þrifist vændi, hvort þar þrifist mansal og kallaði eftir rannsókn lögreglu.Málsókn hótað Viðbrögðin voru fyrirséð. Lögmaður kampavínsstaðanna hótar nú borgarfulltrúanum málsókn. Það skal enginn dirfast að opna munninn. Og svo er haldið áfram og vegið að starfsheiðri blaðakonunnar. Og með hvaða rökum. Jú, María Lilja er feministi og hefur skipulagt druslugöngu í Reykjavík. Vó! En þó þessi málatilbúnaður virki hlægilegur þá á hann sér alvarlegri hlið. Þetta er ekkert annað en grímulaus tilraun til þöggunar. En við skulum taka á móti. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi heldur áfram. Þar hefur Reykjavíkurborg verið í fararbroddi. Það ætlum við okkur að vera áfram. Við látum málsóknir ekki hræða okkur, og sækjum baráttuandann og fordæmin í þau ótal dæmi sem við eigum í sögu þessarar borgar og sögu þeirra kjörkuðu kvenna og karla sem rutt hafa brautina. Kynlífsiðnaðurinn virðir engin landamæri. Þess vegna má baráttan gegn kynferðisofbeldi ekki gera það heldur. Druslugangan hófst í Kanada – og hún heldur áfram í Reykjavík. Nú í þriðja sinn, og hefur aldrei verið stærri eða öflugri. Það er heiður að fá að vera með ykkur. Druslur allra landa sameinumst. Ást og friður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dagur B. Eggertsson Mest lesið Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen Skoðun Rasismi er ekki „hægri“, hann er bara bjánalegur Elliði Vignisson Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun Kæra Hanna Katrín, lengi getur vont versnað Vala Árnadóttir Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Er biðin eftir ofurömmu á enda? Meyvant Þórólfsson Skoðun Mun samfélagsmiðlabann skaða unglingsdrengi? Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun Þöggunin sem enginn viðurkennir Ásgeir Jónsson Skoðun Borgarlína á Suðurlandsbraut: 345 stæði hverfa eða ónýtast Friðjón Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Rödd ungs fólks Nanna Björt Ívarsdóttir skrifar Skoðun Eflingarfólk! Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Lesblindir sigurvegarar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Steinunn er frábær! Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar Skoðun Þegar fullveldi smáríkja er ekki lengur sjálfsagt Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Rasismi er ekki „hægri“, hann er bara bjánalegur Elliði Vignisson skrifar Skoðun Byggjum fyrir fólk Hafdís Hanna Ægisdóttir,Hjördís Sveinsdóttir,Silja Elvarsdóttir skrifar Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Hvalveiðar í sviðsljósinu Elissa Phillips skrifar Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Frítt í Strætó og sund – Með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mun samfélagsmiðlabann skaða unglingsdrengi? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Hver spurði þig? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þöggunin sem enginn viðurkennir Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Borgarlína á Suðurlandsbraut: 345 stæði hverfa eða ónýtast Friðjón Friðjónsson skrifar Skoðun Að byggja upp flæði og traust í heilbrigðiskerfinu Sandra B. Franks skrifar Skoðun Ég elska strætó Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Þúsund klifurbörn í frjálsu falli Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar engin önnur leið er fær Rebekka Maren Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen Skoðun
Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar
Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar
Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar
Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar
Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen Skoðun