Langar helst að spila með liði í Danmörku Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. nóvember 2012 06:00 Fjölmörg lið í Skandinavíu vildu skoða Skagfirðinginn sterka. fréttablaðið/stefán
Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson er nýkominn til landsins en hann hefur verið á ferð og flugi frá því Pepsi-deildinni lauk í sumar. Þessi efnilegi Valsmaður hefur vakið athygli víða um Evrópu og er eftirsóttur. Það er því afar ólíklegt að við sjáum hann í Pepsi-deildinni næsta sumar. „Þetta hefur verið stór pakki og nú er loks smá frí frá ferðalögum. Nú bíð ég bara eftir því hvað liðin vilja gera. Ég býst fastlega við því að heyra í þeim á næstu tveimur vikum," sagði Rúnar Már en leiktíðunum í Noregi og Svíþjóð er lokið og danska deildin er á lokasprettinum. „Ég byrjaði á því að fara í vikutíma til SönderjyskE í Danmörku og þaðan fór ég þriggja daga ferð til Tromsö í Noregi. Þaðan lá leiðin til Kalmar í Svíþjóð þar sem ég var í fimm daga. Svo fór ég með landsliðinu til Andorra og loks aftur til SönderjyskE nú síðast," sagði Rúnar sem mokar inn flugpunktum en er feginn að vera kominn aftur heim. „Þetta gekk ágætlega hjá mér. Fyrsta vikan í Danmörku var róleg enda þeir að spila mikið á þeim tíma. Þess vegna fór ég aftur og spilaði leik með varaliðinu sem mér fannst reyndar ekki ganga nógu vel. Ég fór aðallega til Noregs að skoða aðstæður. Ég tók flottar æfingar í Svíþjóð og það gekk best þar fannst mér." Fleiri félög vildu fá Rúnar til æfinga en hann ásamt umboðsmanni sínum ákvað að taka þessum boðum þar sem þau þóttu meira spennandi sem stendur. „Ég vonast eftir því að fá tvö til þrjú tilboð svo ég geti valið besta kostinn. Danmörk heillar mest og ég vil helst spila þar. Það er besta deildin. Ef ekkert af þessu gengur upp þá skoða ég líklega hina kostina," sagði Rúnar en hann er samningsbundinn Val og spilar með þeim næsta sumar fari svo að hann komist ekki í atvinnumennsku á þessum tímapunkti. „Það eru nánast engar líkur á því að ég spili hér heima næsta sumar en ég gæti fótbrotnað eða eitthvað og það myndi þá eyðileggja möguleikann á að fara út núna. Ein ástæðan fyrir því að ég samdi við Val var að hafa starfsöryggi. Ég býst samt við því að fara út," sagði Skagfirðingurinn sem var valinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar 2012 af Fréttablaðinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Dómaraskandall og augnpot: Hrafn getur bundið enda á áralanga baráttu sína gegn Bean Sport Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Sjá meira