Mesta markaflóðið í meira en hálfa öld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2012 06:00 FH-ingarnir Atli Guðnason, Albert Ingason og Hólmar Örn Rúnarsson fagna hér Danny Thomas í 7-2 sigri á ÍA. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
FH-ingar hafa skorað 21 mark í síðustu fjórum leikjum sínum í Pepsi-deild karla. Lærisveinar Heimis Guðjónssonar unnu 7-2 sigur á Akranesi um síðustu helgi eftir að hafa gert 2-2 jafntefli á heimavelli við Stjörnuna, unnið 4-2 útisigur í Keflavík og 8-0 heimsigur á Fylki í leikjunum á undan. FH-liðið komst þar með í fámennan hóp liða sem bera ábyrgð á mestu markaflóðum íslensku fótboltasögunnar. Mörg frábær fótboltalið hafa spilað í efstu deild undanfarna áratugi en ekkert þeirra náði að brjóta 20 marka múrinn í fjórum leikjum. Það þarf í raun að fara allar götur til þeirra tíma þegar goðsagnirnar Þórólfur Beck og Ríkharður Jónsson fóru fyrir sínum liðum í Vesturbænum og uppi á Akranesi til að finna annað eins markaflóð og hjá Hafnfirðingum síðustu fjórar vikur. KR-liðið frá 1960 á metið en auk þess að skora 23 mörk í fjórum leikjum kemst liðið einnig í 3. sætið með 21 mark í fjórum leikjum fyrr sama sumar. Sumarið árið eftir settu KR-ingar einnig sams konar met með því að skora 22 mörk í fjórum leikum en ólíkt metinu frá 1960 þá entist það í aðeins eitt ár. Þrátt fyrir þetta markaflóð fyrir 52 árum tókst KR-ingum þó ekki að landa titlinum á metárinu 1960. KR-liðinu tókst ekki að skora í 2 af síðustu 3 leikjum sínum. Skagamenn unnu úrslitaleik liðanna 1-0 og fögnuðu titlinum. FH-ingar hafa sýnt styrk sinn í þessum leikjum en það er löng leið fram undan að Íslandsmeistaratitlinum. Ríkharður Jónsson og félagar í gullaldarliði Skagamanna eiga einnig tvö markaflóð inn á topp fimm en Skagamenn skoruðu 20 mörk í fjögurra leikja törn bæði sumarið 1955 og svo sumarið 1958. Síðan þá er liðin meira en hálf öld og það hefur verið langt frá því að vera daglegt brauð að lið hafi nálgast inngöngu í 20 marka hópinn. Tíu marka leikir Skagamanna frá 1973 (10-1 sigur á Blikum) og 1993 (10-1 sigur á Víkingum) eða framlag Valsara til Listahátíðar 1976 (17 mörk í 3 leikjum) voru ekki nóg til að komast í umræddan hóp. Öll tuttugu marka liðin fyrir afrek FH-inga voru lið sem fóru mikinn fyrir meira en hálfri öld. Það er samt einna athyglisverðast í frammistöðu FH-inga undanfarna 28 daga að ógnunin kemur alls staðar að í FH-liðinu. Þrír af fjórum markahæstu mönnum FH-inga í þessari markatörn spila á miðjunni eða í vörninni og þar á meðal hefur bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson skorað 4 mörk og lagt upp önnur tvö. Atli Guðnason er samt í nokkrum sérflokki þegar kemur að sköpun marka FH í síðustu fjórum leikjum. Hann kom með beinum hætti að fjórum mörkum liðsins uppi á Skaga og hefur alls skorað 5 mörk og gefið 5 stoðsendingar í síðustu fjórum leikjum. Mestu markaflóðin í efstu deild frá 1955 til 2012:xxxxx xxxx xxxx23 - KR 1960 (5-0, 6-0, 5-3, 7-0) 22 - KR 1959 (5-0, 7-0, 3-0, 7-1) 21 - FH 2012(8-0, 4-2, 2-2, 7-2) 21 - KR 1960 (6-0, 5-3, 7-0, 3-5) 20 - ÍA 1955 (8-0, 1-4, 6-1, 5-2) 20 - ÍA 1958 (2-2, 7-1, 5-1, 6-4) 19 - ÍA 1960 (3-5, 4-1, 7-1, 5-1) 19 - ÍA 1973 (10-1, 6-2, 0-1, 3-1) 19 - Valur 1976 (2-0, 6-1, 5-1, 6-0) 18 - ÍA 1959, KR 1961, ÍA 1993 (2)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Íslenski boltinn Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Fleiri fréttir Fram - Keflavík | Bæði leita fyrsta sigursins Breiðablik - ÍA | Spennandi slagur í Kópavogi KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Sjá meira