Búinn að bíða í 14 leiki eftir hundraðasta sigrinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2012 08:00 Guðjón Þórðarson. Mynd/Valli
Í lok leiks ÍA og Fram á Akranesvelli 20. maí 2008 leit allt út fyrir það að Guðjón Þórðarson myndi mjög fljótlega bætast í hundrað sigra hópinn með Ásgeiri Elíassyni. Guðjón var þarna að stýra liði til sigurs í 99. sinn í efstu deild og allt leit út fyrir að hann ætlaði að vera með Skagaliðið í efri hlutanum annað árið í röð. Guðjón var þarna á sínu ellefta tímabili sem þjálfari í efstu deild og var búinn að stýra liðum sínum til sigurs í 99 af 183 leikjum eða 54 prósentum þeirra leikja sem hann hafði tekið þátt í sem þjálfari í deild þeirra bestu. Það gat enginn séð framhaldið fyrir. Skagamenn unnu ekki í næstu níu leikjum sínum og Guðjóni var sagt upp störfum eftir 1-6 skell á móti Breiðabliki 20. júlí 2008 en það var fjórða tap liðsins í röð. Síðan liðu þrjú tímabil án þess að Guðjón reyndi fyrir sér í úrvalsdeildinni en hann sneri aftur í ár og tók við liði Grindavíkur. Hundraðasti sigurinn lætur enn bíða eftir sér því Grindvíkingar eru enn án sigurs eftir fimm umferðir og Guðjón er því búinn að stýra liði í 14 leikjum í röð án þess að vinna. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, sem var „bara" búinn að vinna 75 leiki þegar 99. sigurinn kom í hús hjá Guðjóni fyrir fjórum árum, vann sinn hundraðasta sigur þegar Stjarnan vann lærisveina Guðjóns í Grindavík 21. maí síðastliðinn. Næsti leikur Grindavíkurliðsins er í dag þegar liðið tekur á móti Skagamönnum í beinni á Stöð 2 Sport. Guðjón vann 59 sigra sinna sem þjálfari Skagamanna og hefur unnið 5 af 10 leikjum sínum á móti þeim. Nú er að sjá hvort hann geti orðið fyrsti þjálfarinn í sumar til að stýra liði til sigurs á móti nýliðunum af Skaganum sem hafa komið upp af miklum krafti alveg eins og þeir gerðu undir stjórn Guðjóns fyrir tuttugu árum síðan. Tveir aðrir leikir fara fram í deildinni í dag. FH fær Fylki í heimsókn klukkan 14 og Fram og KR mætast á Laugardalsvellinum klukkan 16.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Fótbolti Fleiri fréttir Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Sjá meira