Veigar Páll: Ekkert öruggt að ég fari í Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2012 14:30 Veigar Páll Gunnarsson Mynd/Anton
Veigar Páll Gunnarsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Stabæk og er á heimleið eftir farsælan níu ára feril sem atvinnumaður. Veigar var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum í morgun þar sem fram kom að ekkert væri ákveðið hvar hann léki á næsta tímabili. Líklegasti áfangastaðurinn væri Stjarnan en þó kæmu önnur lið til greina líka. „Ég er búinn að ákveða það að koma heim til Íslands og njóta þess," sagði Veigar Páll Gunnarsson en er hann sáttur með hvernig atvinnumannaferillinn endaði? „Það er búið að vera vesen með þetta mál út í Noregi en engu að síður er ég sáttur við minn feril. Ég sný heim virkilega sáttur drengur," sagði Veigar Páll. Veigar Páll endaði tímabilið með sínu gamla félagi Stabæk en liðið var í neðsta sæti deildarinnar þegar hann kom og tókst ekki að bjarga sér. „Liðið var langneðst í deildinni þegar ég kom. Ég reyndi eins og ég gat að hjálpa þeim en það hefði þurft kraftaverk ef við ætluðum að náð því að halda okkur uppi. Ég hefði samt að öllum líkindum endað heima þó að við hefðum haldið okkur uppi," sagði Veigar Páll. „Þetta snýst ekki um peninga hjá mér heldur gleðina sem ég fæ við að spila fótbolta. Ég tel rétt hjá mér að koma heim núna, ég er ennþá tiltölulega ungur og ætti að geta gert eitthvað heima," sagði Veigar Páll en hvar ætlar Veigar Páll að spila næsta sumar. „Ég hef ekki heyrt frá neinum öðrum klúbbum heldur en Stjörnunni og ég veit um áhuga þaðan. Það lítur því út fyrir að ég spili í Stjörnunni. Ég vona að ég spili í Stjörnunni því það væri óskandi fyrir mig að enda þetta þar sem að ferillinn byrjaði," sagði Veigar Páll en hann er ekki tilbúinn að gefa það út að hann spili í Garðabænum. „Það er ekki hundrað prósent öruggt að ég fari í Stjörnuna en það væri óskandi," sagði Veigar Páll en það er hægt að heyra allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Sjá meira