Serena óstöðvandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. september 2012 11:45 Nordic Photos / Getty Images
Serena Williams er komin í úrslit einliðaleiks kvenna á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis eftir öruggan sigur á Söru Errani frá Ítalíu í nótt, 6-1 og 6-2. Það tók Serenu aðeins 64 mínútur að klára viðureignina og eins og tölurnar bera með sér var sigur hennar aldrei í hættu. Hún mætir Victoriu Azarenku frá Hvíta-Rússlandi sem hafði betur gegn Maríu Sharapovu í hinni undanúrslitaviðureigninni. Sú viðureign var meira spennandi en Sharapova byrjaði betur og vann fyrsta settið, 6-3. Azarenka, sem hafði betur gegn Sharapovu í úrslitum Opna ástralska í upphafi ársins, náði að koma til baka og vinna næstu sett 6-2 og 6-4. Azarenka á þó erfitt verkefni fyrir höndum enda virðist Serena einfaldlega óstöðvandi. Sú bandaríska vann bæði Wimbledon-mótið sem og Ólympíuleikana í sumar en á síðarnefnda mótinu hafði Serena betur gegn Azarenku í undanúrslitum, 6-1 og 6-2. Reyndar hefur Serena unnið níu af tíu síðustu viðureignum þeirra og þykir hún því langlíklegust til sigurs í úrslitaviðureigninni annað kvöld.
Tennis Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Strax aftur á sigurbraut Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Sjá meira