Formúla 1

Segir ekki mikil gæði vera hjá öku­mönnum í For­múlu 1

Andri Broddason skrifar
Fernando Alonso var ekki sáttur með mótherja sinn um helgina.
Fernando Alonso var ekki sáttur með mótherja sinn um helgina. Vísir/Getty

Fernando Alonso gagnrýndi ökumenn í hægari bílum tímabilsins og sagði að gæði þeirra væru lág eftir bandaríska kappaksturinn um liðna helgi. Þar lenti Alonso í samstuði við Alex Albon, ökumann Williams, þar sem Aston Martin-bifreið Alonso fór illa út úr samstuðinu.

Þrátt fyrir skemmdir á bílnum náði Alonso að klára keppnina en endaði á að koma sextándi í mark. Hann náði þó að koma í mark á undan Albon sem er hægt að gera sterklega ráð fyrir að gagnrýni hans beinist að.

Tímabilið hefur verið erfitt fyrir Alonso þar sem Aston Martin-bifreiðin hefur verið talsvert hægari en aðrar. Hann hefur aðeins skorað sjö stig en Lance Stroll, liðsfélagi hans, hefur ekki enn náð að skora stig á tímabilinu.

Eftir kappaksturinn í Bandaríkjunum fannst Alonso ótrúlegt að hann hafi náð að klára keppnina eftir að hafa séð skemmdirnar á bílnum. Hefði bíllinn verið heill þá var hann handviss að hann gæti barist um stigasæti en allt kom fyrir ekki.

Alonso vill því fá hraðari bíl svo hann geti byrjað keppnirnar framar. Þá losnar hann við að berjast við ökumenn sem eru að hans mati með minni gæði en aðrir í Formúlu 1.

Þegar Albon var aðspurður um atvikið var annar tónn í honum heldur en mótherja hans. Honum fannst bardaginn við Alonso skemmtilegur en vissi að hann hafði gert smávægileg mistök sem enduðu með því að báðir bílarnir skemmdust. Hann vissi þó ekki hve mikið bíll Alonso hafði skemmst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×