Formúla 1

Allt í rugli í For­múlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mikla rigningu gerði rétt fyrir keppni í Malasíu í morgun.
Mikla rigningu gerði rétt fyrir keppni í Malasíu í morgun. Getty

Menn í Formúlu 1 ráku sig á heljarinnar vandamál í kappakstri dagsins í Malasíu. Stöðva þurfti byrjun hans eftir upphitunarhring.

Kappakstur dagsins heitir að forminu til Barein-kappaksturinn en þar er ekki hægt að keppa sökum innrása Bandaríkjanna og Ísrael í Íran. Hann fer því fram í Malasíu þar sem gerði heljarinnar rigningu þegar keppni dagsins átti að hefjast.

Um er að ræða fyrsta skipti þar sem nýir bílar í Formúlu 1 áttu að hefja akstur með bleytu dekk í rigningu, en miklar breytingar voru gerðar á reglum keppninnar og þar með bílunum fyrir yfirstandandi tímabil.

„Hvaða þvæla er í gangi,“ sagði Kristján Einar Kristjánsson, sem lýsir Formúlunni á Sýn Sport yfir upphitunarhring dagsins.

Rafmagnsmótor átti að taka yfir bensín hluta bílsins að stórum hluta og það hefur ollið mörgum bifvélavirkja liðanna höfuðverki í ár. Nú þegar í fyrsta sinn reyndi á að keyra í bleytu fór hins vegar allt í háaloft.

Bílarnir drápu nánast á sér á upphitunarhringnum á upphitunarhringnum í Malasíu í morgun. Túrbína fyrir rafmagnsmótor bílanna olli vandræðum þar sem bílarnir nánast drápu á sér.

Menn fóru of hægt sem gerði að verkum að nánast hver einasti bíll á brautinni lenti í vélarvandræðum. Max Verstappen, sem var á ráspól, lenti fyrstur í vandræðum vegna hægagangs og það olli samskonar vandræðum fyrir Lewis Hamilton og svo nánast hvern einasta bíl á brautinni.

„Það eru ekki ökumenn sem stjórna bílunum, það eru tölvur,“ sagði Bragi Þórðarson, lýsandi á Sýn Sport í morgun.

Langa pásu þurfti að gera á keppninni eftir hinn svokallaða upphitunarhring þar sem þónokkrir bílar stóðu kyrrir á brautinni og höfðu drepið á sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×