Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Keflavík 0-2 Benedikt Grétarsson á Laugardalsvelli skrifar 20. júní 2012 00:01 Guðmundur Steinarsson. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Keflvíkingar unnu þægilegan og virkilega sanngjarnan sigur á hugmyndasnauðu liði Fram í kvöld í Pepsideild karla í fótbolta, 0-2. Frans Elvarsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik og voru gestirnir aldrei í teljandi vandræðum í þessum leik. Keflvíkingar mættu gríðarlega ákveðnir til leiks og nýttu sér varnarmistök heimamanna á 7. mínútu og skoruðu fyrsta mark leiksins. Þar var á ferðinni Frans Elvarsson, sem átti prýðilegan leik á miðjunni. Gestirnir úr Bítlabænum voru miklu betri í fyrri hálfleik og á 20.mínútu skoraði refurinn Guðmundur Steinarsson glæsilegt mark með góðu langskoti. Framarar virkuðu ráðvilltir og Keflavík fór með verðskuldaða forystu til leikhlés. Síðari hálfleikur varð aldrei skemmtilegur né spennandi. Keflavík hafði heljartök á leiknum og heimamenn virstust aldrei líklegir til að rétta sinn hlut. Niðurstaðan 0-2 sigur Keflvíkinga og það verða að teljast sanngjörn úrslit. Guðmundur Steinarsson: "Hægasta skyndisókn allra tíma.“Guðmundur Steinarsson var varnarmönnum Fram óþægur ljár í þúfu og hann var að vonum sáttur eftir leikinn. „Við litum mjög vel út og mikilvægast var að halda hreinu í þessum leik. Við viljum ekki senda þau skilaboð að það sé auðvelt að skora hjá okkur en við höfðum fengið á okkur 8 mörk í síðustu tveimur leikjum og það var alveg kominn tími á að stoppa í götin." Aðspurður um draumamark sitt svaraði Guðmundur „Við vorum þarna tveir elstu mennirnir í liðinu í skyndisókn og það hefði sennilega orðið hægasta skyndisókn allra tíma. Ég sá að Ögmundur var ansi framarlega og ákvað að lúðra bara á markið. Sem betur fer heppnaðist það svona vel." Ásgeir Gunnar Ásgeirsson: "Við erum rosalega brothættir.“Ásgeir Gunnar Ásgeirsson kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik og var með skárri mönnum í slöku liði Fram. „Við fáum á okkur mark snemma og það er bara eins og menn hætti og gefist upp. Við erum rosalega brothættir og það var ekki boðlegt hversu linir við vorum í öllum okkar aðgerðum. Það er áhyggjuefni hversu auðvelt það er að brjóta okkur niður" Ásgeir tekur þó ekkert af Keflvíkingum. „Keflavík spilaði þennan leik mjög vel og eiga heiður skilið. Það breytir því ekki að við verðum að girða okkur í brók og mæta tilbúnir á teppið í Garðabænum í næsta leik. Hér fyrir neðan birtast sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins, tölfræði, leikmannahópi liðanna auk textalýsingar frá blaðamanni Vísis á vellinum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Fleiri fréttir KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin Sjá meira