Opið bréf til umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur Jóhann G. Gunnarsson skrifar 3. september 2011 06:00 Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. Hr. Karl Sigurðsson formaður Sæll vertu Karl og aðrir kjörnir fulltrúar í umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Við hér í fyrirmyndarhúsfélaginu Dalseli 38, 109 Reykjavík, finnum okkur knúin til að senda þér/ykkur þessar línur, þar sem okkur finnst við ekki hafa fengið viðeigandi svör við bréfi okkar, dagsettu þann 19.4.2011 síðastliðinn, varðandi sorphirðu og svokallaða 15 metra reglu. Satt að segja, þá erum við svolítið hissa á því, að umræddu bréfi hefur ekki verið svarað. Það var sent í gegnum netsíðu ykkar. Í fyrirmyndarhúsfélagi eins og okkar, og það er ekkert grín, við eigum hér upp á vegg viðurkenningu frá hverfaráði borgarinnar, þar sem okkur er úthlutað þessum titli af ykkar hálfu, þar sem við sjálf höfum fyrir þó nokkru tekið flokkun sorps alvarlega og fækkað svörtum tunnum úr sjö í fjórar og tekið inn bláa tunnu, þá finnst okkur þið flokka okkur sem annars flokks þegna í Reykjavík. Þið megið alveg vita það líka, að við höfum margoft slegið gras á opinberum blett borgarinnar í næsta nágrenni, þar sem okkur hefur blöskrað aðgerðarleysi á þeim vettvangi og er til háborinnar skammar, svo ekki sé meira sagt. Höfum líklega eytt hærri fjárhæð í bensín á sláttuvélina en þið ætlist nú til að við greiðum ykkur fyrir sorplosun. Ykkar orð í bréfi nýverið til okkar, þar sem tilkynnt er um einhliða skattlagningu af ykkar hálfu eru: „Með því að flokka meira það sem til fellur á þínu heimili, stendur þú vörð um umhverfið og sparar borginni fjármuni. Því minna sorp sem fer til urðunar því meira sparar þú fyrir þig og samborgara þína“. Það vill nú svo til, eins og áður kom fram, að við erum fyrir þó nokkru búin að stíga mikið gæfu-, heilla- og sparnaðarspor fyrir okkur og Reykjavíkurborg. Þetta gerðum við sjálf án ykkar aðstoðar og vandséð hvernig þið hafið ákveðið að launa okkur, eða hvað? Við höfum meira pláss fyrir viðurkenningar á veggjum húsfélagsins! Eins og við höfum reynt að fá svör við, fyrr á þessu ári, er ekki hægt að sjá sanngirni í þessari gjaldheimtu, né hvernig ætlunin er að leysa þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir vegna ykkar undarlegu og óskiljanlegu gjörða. Í umræddum pósti, frá ykkur um breytta sorphirðu, stendur einnig: „Reykvíkingar sem eiga þess kost að færa sjálfir sorpílát sín innan 15 metra frá götu á sorplosunardögum geta afþakkað þessa viðbótarþjónustu. Þá þarf hins vegar að gæta þess að ílátin komist vel fyrir, hindri ekki umferð og fjúki ekki af stað í vindi.“ Og það besta við umrætt bréf frá ykkur, er að ykkur er alvara! En hvað með þá sem eiga þess ekki kost að færa sorpílát umrædda 15 metra frá götu, af ýmsum ástæðum, sem engin ástæða er til að telja upp? Segjum að við kjósum svo, að færa tunnurnar að götunni, hvar í ósköpunum eigum við að tjóðra þær fastar? Ekki megum við raða niður bryggjupollum á göngustígum borgarinnar eða hvað? Hver ber ábyrgð, ef innihald ílátanna verður tæmt á göngustíga og eða slett á bifreiðar eða aðra veraldlega hluti í eigu annarra en borgarinnar? Hvernig ætlið þið að leysa fyrir okkur niðurstöðu húsfundar hér í fyrirmyndarhúsfélaginu, þar sem fimm eigendur vilja ekki greiða uppsettan skatt ykkar, en tveir eru tilbúnir til þess að greiða hann? Ég minni á að hér eru fjórar svartar tunnur og ein blá sameiginleg fyrir alla. Þetta gæti orðið forvitnilegt! Væri okkur heimilt að fá lánaða aðstöðu í nágrannahúsfélaginu, sem er reyndar sama húsið og við búum í, en þar eru þau svo heppin að þau eru innan umræddra 15 metra, og setja okkar tunnur yfir til þeirra á losunardögum? Við myndum væntanlega launa þeim greiðann með vægu gjaldi sem ekki tekur að tala um. Nú ætti ykkur að vera ljóst að það er mikil andstaða í fyrirmyndarhúsfélaginu við umrædda skattlagningu. Og það besta við þetta allt saman, er sú staðreynd að þetta snýst, af okkar hálfu, ekki um upphæðina sem þið ætlið að rukka, þetta er bara eitt það vitlausasta og ósanngjarnasta sem við flest höfum orðið vitni að í opinberri stjórnsýslu og höfum við, á öllum aldri, ýmislegt séð í gegnum misvitra pólítíkusa, sem hafa farið skrítnar leiðir til árangurs… eða ekki! Það er okkur einnig afar hulin ráðgáta, hvers vegna þessari undarlegu skattlagningu hefur ekki verið mótmælt meira og kröftugar. Þar eigum við kannski aðallega við þá sem kjörnir hafa verið til starfa, en eru kannski í minnihluta, því það er jú meirihlutinn sem tekur svona gáfulegar ákvarðanir. Til að sýna fram á fáránleika þessara aðgerða, þá væri t.d. mjög sanngjarnt að þeir íbúar borgarinnar sem þurfa að ganga lengra en t.d. 15 metra að biðstöð strætisvagna, fái frítt í vagninn. Nú eða þeir sem brjóta upp gulrauðu litasamsetningu vagnanna með fatnaði í öðrum litum, skuli greiða aukagjald. Nú eða þeir sem synda hægar í sundlaugum borgarinnar, greiði sérstakt aukagjald vegna lengri viðveru í lauginni en sá sem kemst hraðar og fer fyrr upp úr. Nú eða við barasta hættum að flokka draslið, fáum 10 tunnur og borgum lítilfjörlegt skattgjald og allur fyrirmyndarsparnaðurinn er fokinn út í veður og vind. Þetta er jú engin andsk… upphæð eða hvað? Varla neitt til að vera að röfla yfir! Til þess að við getum tekið endanlega ákvörðun um framhald þessa máls og ekki síst afstöðu í næstu kosningum, er það okkur hér í Dalseli 38, Reykjavík, mikilvægt að fá svör við framangreindum spurningum. Það er niðurlægjandi fyrir okkur sem fullgilda íbúa að vera ekki virt viðlits, þó svo það sé tilfinning okkar að þið lítið á bréfin okkar sem eitthvert grín. En það er stór misskilningur, við erum ekki að grínast, en trúðum því statt og stöðugt að umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur væri að því, þar til okkur barst umrædd tilkynning um að sorphirðugjaldið hefði verið lagt á frá og með 1. ágúst. Við væntum svara fyrr en síðar… þó ekki væri nema af kurteisisástæðum. Virðingarfyllst f.h. hússtjórnar Dalseli 38, Reykjavík Jóhann G. Gunnarsson ritari Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðanir Mest lesið Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley Skoðun Okkar lágkúrulega illska Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar