Töframarkið klárlega bleiku skónum að þakka Hjalti Þór Hreinsson skrifar 15. maí 2009 21:49 Andri Fannar Stefánsson, markaskorari KA og bleiku skórnir sem hann þakkar fyrir töframarkið. Vísir.is/Hjalti Þór
Andri Fannar Stefánsson skoraði stórbrotið mark í sigri KA á Þór í nágrannaslagnum á Akureyri í kvöld. Hann smellhitti boltann þegar hann kom svífandi úr loftinu, þrumaði honum með ristinni í stöngina og inn, fjær. Andri er fæddur árið 1991 og er mikið efni. Hann var maður leiksins á vellinum í kvöld. Andri skartaði bleikum skóm sem hann hefur notað í vetur og vor. „Þeir eru flottir," glotti Andri en vill alls ekki kenna þá við Nicklas Bentner, leikmann Arsenal, sem spilar einnig í bleikum skóm, enda er Andri harður stuðningsmaður Liverpool. „Markið var klárlega bleikum skónum að þakka. Ég sá hann allan tímann inni," hélt Andri áfram. „Þessi sigur er nauðsynlegur fyrir framhaldið hjá okkur," sagði Andri og viðurkenndi að það væri sérstaklega sætt að vinna erkifjendurna í Þór. „Það var liðsheildin og baráttan sem skóp þennan sigur. Það skiptir engu máli hvort liðið er betra í fótbolta í svona leikjum en mér fannst við betri allan leikinn. Miklu betri," sagði Andri sem kveður KA menn ætla að byggja á sætum sigri á Þór í kvöld.
Íslenski boltinn Íþróttir Mest lesið Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira