Ásgeir sá besti í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2008 07:00 Ásgeir sést hér ásamt öðrum sem voru heiðraðir í gær. Efri röð frá vinstri: Pétur Pétursson, Rúnar Kristinsson, Arnór Guðjohnsen, Eiður Smári Guðjohnsen, Guðni Bergsson. Neðri röð frá vinstri: Ingi Björn Albertsson sem veitti viðtöku verðlaunum fyrir föður sinn Albert, Ásgeir, Ríkharður Jónsson og Atli Eðvaldsson. Sigurður Jónsson komst ekki. Vísir/Arnþór
Sérstök valnefnd á vegum KSÍ og Stöð 2 Sport hefur með aðstoð íslensku þjóðarinnar valið Ásgeir Sigurvinsson besta knattspyrnumann sögunnar úr glæsilegum hópi tíu knattspyrnumanna sem þóttu hafa skarað fram úr á fyrstu 62 árunum í sögu Knattspyrnusambands Íslands. Ásgeir fékk verðlaunin afhent í gær í glæsilegu hófi en þar voru samankomnir allir tíu bestu knattspyrnumenn Íslands frá upphafi fyrir utan Albert heitinn Guðmundsson.Neðar á síðunni má sjá tengil á myndasafn frá ferli ÁsgeirsÁsgeir Sigurvinsson lék sautján tímabil við góðan orðstír í Belgíu (1973-1981) og Vestur-Þýskalandi (1981-1990) þar sem lið hans voru oftast í fremstu röð í sínum deildum. Hans lið enduðu átta sinnum meðal þeirra þriggja efstu og í fjórtán af þessum sautján tímabilum lék hann með liði sem var í hópi sex bestu liða deildarinnar. Ásgeir var tvívegis kjörinn íþróttamaður ársins af samtökum íþróttamanna, árin 1974 og 1984.Ásgeir sést hér í sínum síðasta landsleik gegn Tyrkjum, árið 1989. Ísland vann 2-1.Ásgeir er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og var kominn í stórt hlutverk hjá ÍBV árið 1972 þegar hann var aðeins á sínu sautjánda ári. Ásgeir gerðist síðan atvinnumaður hjá belgíska liðinu Standard Liege um mitt sumar 1973, þá aðeins 18 ára gamall. Hann náði strax að tryggja sér fast sæti í liðinu. Ásgeir lék með Standard í átta tímabil eða fram á sumar 1981. Sumarið 1981 gekk hann hins vegar til liðs við þýska stórveldið Bayern München þar sem léku margar stærstu stjörnur þýska boltans. Ásgeir fékk þar fá tækifæri og ákvað að yfirgefa félagið eftir aðeins eitt tímabil. Ásgeir valdi að semja við Stuttgart og við tók farsæll og glæsilegur ferill hans á Neckarstadion. Ásgeir var lengi fyrirliði Stuttgart og þótti einn besti leikmaður í þýska boltanum í mörg ár.Ásgeir lék við frábæran orðstír hjá Stuttgart og var valinn besti leikmaður þýsku deildarinnar árið 1984.Hápunktur ferils Ásgeirs var án nokkurs vafa tímabilið 1983-1984 þegar hann varð lykilmaður á bak við það að Stuttgart tryggði sér meistaratitilinn í þýsku Bundesligunni. Þetta var fyrsti meistaratitill félagsins í 32 ár og eftir tímabilið var Ásgeir kosinn besti leikmaðurinn af öðrum leikmönnum í deildinni. Ásgeir skoraði 12 mörk í 31 leik á tímabilinu og var aðalarkitektinn á bak við sóknarleik Stuttgart-liðsins. Ásgeir náði því einnig að verða bikarmeistari í þremur löndum, Íslandi (ÍBV 1972), Belgíu (Standard Liege 1981) og Vestur-Þýskalandi (Bayern München 1982). Eyjapeyinn lék alls 481 deildarleik á ferlinum, 21 með ÍBV (7 mörk), 249 með Standard Liege (57 mörk), 17 með Bayern München (1 mark) og 194 með Stuttgart (39 mörk). Ásgeir náði að skora 103 mörk í þessum leikjum en hundraðasta deildarmarkið hans kom í 4-0 stórsigri á Nürnberg 13. september 1988. Ásgeir spilaði alls 60 leiki í Evrópukeppni fyrir sín félög og skoraði í þeim tólf mörk.Ásgeir sést hér ungur að árum í leik með ÍBV.Ásgeir lék alls 45 landsleiki á ferlinum en þegar hann lék þann fyrsta á móti Dönum 3. júlí 1972 var hann yngsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi eða aðeins 17 ára og 56 daga gamall. Ásgeir lék í raun alltof fáa landsleiki á sínum ferli en hann lék þann 45. og síðasta í 2-1 sigri á Tyrkjum 20. september 1989. Ásgeir skoraði fimm mörk fyrir landsliðið. Ásgeir endaði feril sinn á toppnum þá 35 ára gamall þegar hann var með samningstilboð úr mörgum áttum. Ásgeir lék sinn síðasta leik með Stuttgart 12. maí 1990. Ásgeir Sigurvinsson var stórt nafn í evrópskri knattspyrnu á sínum tíma. Franz Beckenbauer, landsliðseinvaldur Þýskalands á þeim tíma, sagði að hann hefði valið Ásgeir í þýska landsliðið og þegar Stuttgart mætti Napoli í úrslitaleikjum UEFA-bikarsins 1989 var leikjunum stillt upp sem einvígi á milli Ásgeirs og Diego Armando Maradona. Hæfileikar Ásgeirs á knattspyrnuvellinum voru vissulega einstakir. Yfirsýn hans og sendingageta gat splundrað vörn mótherjanna á svipstundu og vinstri fóturinn var hans þekktasta vopn enda bjó Ásgeir yfir mikilli skothörku og skottækni. Ásgeir skoraði sem dæmi ófá stórglæsileg mörk á sínum farsæla ferli og einstakur ferill hans hefur nú tryggt honum útnefninguna besti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar.Maí 1975, knattspyrnulandslið karla á æfingu á grasvellinum í Kópavogi. Ásgeir Sigurvinsson sýnir leikni sína með boltann.Júlí 1973. Fótboltaleikur á milli Íslands og Austur Þýskalands á Laugardalsvelli. Guðni Kjartansson landsliðsmaður til hægri og Ásgeir Sigurvinsson til vinstri.Ásgeir með verðlaunagripinn sem íþróttamaður ársins 1984. F.v. Ásgeir Sigurvinsson, Tanja Rut Ásgeirsdóttir og Ásta Guðmundsdóttir.Ásgeir Sigurvinsson klæddur búningi VfB Stuttgart.1979. Hér skorar Ásgeir Sigurvinsson fyrsta mark í leik Charleroy og Standard Liège, leiknum lauk 2-1 fyrir Standard Liège.Júlí 1973. Fótboltaleikur á milli Íslands og Austur Þýskalands á Laugardalsvelli. Íslendingar í dökkum búningum. Guðni Kjartansson t.v. og Ásgeir Sigurvinsson t.h. Ásgeir skallar boltann.Ásgeir Sigurvinsson.Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari, stjórnar æfingu á Laugardalsvellinum.Ásgeir á landsliðsæfingu sem þjálfari.Ísland - Færeyjar í undankeppni EM. Fór fram á Þórshafnarvellií Þórshöfn í Færeyjum. Ísland sigraði 2-1. Eiður Smári Guðjohnsen og Pétur Marteinsson skoruðu mörk Íslands.Ásgeir Sigurvinsson Íþróttamaður ársins 1984.Ásgeir Sigurvinsson Íþróttamaður ársins 1984.26. maí 1984. Ásgeir í leik með Stuttgart.Desember 1981. Æfing hjá knattspynufélaginu Bayern München.1980-1990. Landsliðsæfing í knattspyrnu. F.v. landsliðsmennirnir Atli Eðvaldsson, Ásgeir Sigurvinsson og Pétur Pétursson.Ásgeir Sigurvinsson á fleygiferð með boltann í landsleik á Laugardalsvelli.Ásgeir Sigurvinsson ungur að árum í búningi ÍBV.20. september 1989. Ísland - Tyrkland, 2-1. Ásgeir Sigurvinsson með boltann, kveðjuleikur Ásgeirs með landsliðinu.
Íslenski boltinn Mest lesið Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Fótbolti Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Fótbolti Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Fótbolti Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Fótbolti Joey Chestnut gleypti 66 pylsur og vann í átjánda sinn Sport Ancelotti svarar fyrir sig: Sir Alex Ferguson sá eini sem er hæfari en ég Fótbolti Messi segir að Argentína þurfi að laga marga slæma hluti Fótbolti Baulað á enska landsliðið Fótbolti Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Fleiri fréttir Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Sjá meira