Bandaríkin kæra Kínverja Jónas Haraldsson skrifar 9. apríl 2007 17:34 Susan Schwab, verslunarfulltrúi Bandaríkjanna. MYND/AFP
Bandaríkin hafa lagt fram tvær kærur á hendur Kína hjá Alþjóðaverslunarráðinu (World Trade Organization) vegna þess hversu auðvelt er að fjölfalda og selja amerískar bíómyndir, tónlist, bækur og hugbúnað ólöglega. „Það er allt of mikið um sjóræningjastarfsemi og falsanir í Kína." sagði Susan Schwab, verslunarfulltrúi Bandaríkjanna í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag. „Hugsmíðir og höfundarrétturinn eru ekki verndaðir nógu vel í lögum og það kostar bandarísk fyrirtæki og starfsmenn þeirra milljarða dollara á ári hverju og sumar vörurnar eru jafnvel hættulegar neytendum í Kína, Bandaríkjunum og úti um allan heim." sagði Schwab ennfremur. Eins og áður sagði eru kærurnar tvær talsins. Sú fyrri er vegna ónógs verndar á hugsmíðum og höfundarrétti, eins og á bíómyndum og bókum. Hin kæran fjallar um innflutningstakmarkanir á Kínamarkaði sem koma í veg fyrir að almenningur í Kína kaupi lögmætar útgáfur af vörum og verði því að kaupa falsaðar útgáfur. Schwab sagði að ákveðið hefði verið að leggja fram kærurnar tvær þar sem að tvíhliða viðræður um umkvörtunarefnin tvö skiluðu ekki tilætluðum árangri.
Erlent Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Vara við „perragleraugum“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Sjá meira