Fallvölt ímynd í stjórnmálum 27. maí 2005 00:01
Nýr formaður Samfylkingarinnar hlaut glæsta kosningu á nýafstöðnum landsfundi. Flokksmönnum hefur fjölgað um sjö þúsund frá áramótum. Skriður er á málefnavinnu hjá jafnaðarmannaflokki sem gerir tilkall til valda í næstu þingkosningum. Þetta er flokkur sem mælist varla lengur undir þrjátíu prósenta fylgi í skoðanakönnunum. Styrkur íslenskra jafnaðarmanna er meiri nú en nokkru sinni fyrr í 90 ára sögu íslenska flokkakerfisins. Sérfræðingar í almannatengslum og ímyndarfræðum eru sjálfsagt sammála um að sú mynd sem dregin var upp af Samfylkingunni í tengslum við landsfundinn hafi verið glæst og vel heppnuð. Og þannig fái aukið vægi orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur flokksformanns um að breytingar þoli enga bið og flokkurinn ætli alla leið. Maðkur í mysu? En ekki var búið að taka niður fánaborgirnar við Egilshöll þegar vandræðin hófust. Maðkur í mysu við kjör á varaformanni Samfylkingarinnar. Úrsagnir úr flokknum. Óánægja og brigslyrði. Varaformaðurinn ungi tekinn á beinið í DV fyrir meint kosningasvik. Keypti hann sér sigur með því að smala ungliðum á landsfundarstað í Egilshöll rétt á meðan kosningin fór fram? Greiddi hann fyrir með kóki og pítsum, spyr blaðið. Kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar sá sig knúna til þess að lýsa yfir sakleysi varaformannsins í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér fyrir helgina. Allt hefði verið löglegt og rétt að kosningum staðið. Ágúst Ólafur varaformaður birtist í viðtölum þar sem hann sór af sér sviksemi og taldi ásakanirnar fáránlegar. Aðferðir ungliða skipta ekki sköpum Hefur ekki verið sagt satt um varaformannskjör Samfylkingarinnar? Skyldi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafa fagnað nýkjörnum varaformanni á sviðinu í Egilshöll, faðmað hann að sér en klipið létt í handlegginn á honum svo enginn sá og sagt: Svona gerir maður ekki. Orðrétt sagði Ingibjörg Sólrún við Fréttablaðið 23. maí síðastliðinn: "Ágúst Ólafur Ágústsson stimplar sig mjög sterkt inn í pólítíkina með framboði sínu til varaformannsembættisins. Hann fékk afgerandi stuðning og það skiptir máli. Mér sýnist munurinn hafa verið það mikill á honum og Lúðvík Bergvinssyni að aðferðir stuðningsmanna Ágústs hafi ekki skipt sköpum." Tveimur dögum áður sagði Ágúst Ólafur þegar Fréttablaðið spurði hann um sérstakan stuðning ungliða við framboð hans: "Ég hef ekki hugmynd um hvort svo sé. Ég færi að sjálfsögðu ekki í þennan slag ef ég hefði aðeins stuðning frá ungliðunum." Hvaðan kemur óánægjan? Því hefur ekki verið mótmælt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hallaði sér í aðdraganda landsfundar Samfylkingarinnar fremur að Lúðvík Bergvinssyni sem varaformannsefni en Ágústi Ólafi Ágústssyni, sem lengstum hafði verið talinn stuðningsmaður Össurar Skarphéðinssonar. Hún kaus hins vegar að hafa þann stuðning ekki opinberan né afgerandi á landsfundinum eða í aðdraganda hans. Það þarf ekki að koma á óvart og mætti líta á sem stjórnkænsku. Á það er einnig að líta að Ágúst Ólafur lýsti yfir hlutleysi sínu gagnvart formannskjörinu. Það gerði Lúðvík Bergvinsson einnig. Hann kvaðst hafa unnið náið með Össuri fráfarandi formanni undanfarin fimm ár og sæi ekkert því til fyrirstöðu að vinna einnig með Ingibjörgu Sólrúnu næði hún kjöri. Með gildum rökum mætti halda fram að eftirmál vegna varaformannskjörs Samfylkingarinnar séu ekki runnin undan rifjum stuðningsmanna Össurar Skarphéðinssonar. Áttu þeir ekki þvert á móti að gleðjast yfir yfir kjöri Ágústs sem hafði verið dreginn í dilk með þeim? Varla kemur óánægjan frá hörðum stuðningsmönnum nýkjörins formanns. Yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar um varaformannskjörið benda fremur til þess að hún ætli sér að vinna að friði um varaformanninn, en hefur þó sagst ætla að fara yfir málið. Leiði frekari skoðun eitthvað nýtt í ljós má búast við að málið vandist og kjörstjórn landsfundarins þurfi að draga í land. Ólíklegt er að slíkt gerist. Lögmætar en óvandaðar aðferðir? Varaformannskjör fór fram í mesta lagi tveimur klukkustundum eftir að úrslit voru tilkynnt í langvinnum formannslag Samfylkingarinnar. Þátttakan í varaformannskjörinu var yfir 90 próent og getur varla talist óeðlileg í ljósi þess að landsfundarsalurinn var enn þéttskipaður eftir að úrslit í formannsslagnum voru kunngerð. Því verður einnig að halda til haga að einstökum aðildarfélögum er heimilt að greiða landsfundargjald fyrir fulltrúa sína og styrkja þá með þeim hætti til fundarsetu. Jafnvel þótt sannaðist að ungir jafnaðarmenn hefðu greitt gjöld fulltrúa sinna í ríkum mæli að þessu sinni telst það engu að síður lögmætt. Fyrir hverja tíu í einstökum aðildarfélögum Samfylkingarinnar hefur einn rétt til setu á landsfundi. Hafi félögum í Samfylkingunni fjölgað um sex til sjö þúsund frá áramótum var við því að búast að fullgildum fulltrúum á landsfundi fjölgaði um mörg hundruð. Vel má vera að þar hafi ungliðar verið áberandi og einhvern tíma hefði það þótt góðs viti í stjórnmálahreyfingu að fá ungt fólk til liðs við málstaðinn. Áfallahjálp Í fræðum um almannatengsl og ímyndarsköpun eru ævinlega ítarlegir kaflar um kerfisbundin viðbrögð gegn áföllum. Einskonar áfallastjórnun. Þessi fræði ganga út á það að draga sem mest úr afleiðingum af óhöppum, hneykslum og ýmsum vanda sem skaðað getur ímynd og þar með markaðshagsmuni fyrirtækja eða félaga. Þetta getur sannarlega átt við um stjórnmálaflokka og hagsmunasamtök. Ein þumalfingursreglan í þessum fræðum er að segja allt af létta. Segja satt um ástand mála og bæta trúverðugleikann með þeim hætti jafnvel þó svo að tímabundinn skaði sé óumflýjanlegur. Eiga beinlínis frumkvæði að því að vinda ofan af málinu og með vissum hætti að slá vopnin úr höndum fjölmiðla sem heimta breiðfyrirsagnir. Spurningin er hvort Samfylkingin og ráðgjafar hennar viti af þessari þumalfingursreglu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Fleiri fréttir Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Sjá meira