Viðskipti

Nálægðin við jökulinn er sterk upplifun
Fjallsárlón á Breiðamerkursandi er ein af perlum Íslands.

Síminn tryggði sér enska boltann til ársins 2025
Síminn hefur tryggt sér sjónvarpsréttinn að ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu til ársins 2025. Síminn hafði betur í baráttu við Sýn og Viaplay sem sömuleiðis buðu í sjónvarpsréttinn.

Hafa samið um kaup Marels á Völku
Marel hefur skrifað undir samning um kaup á Völku ehf., íslensku hátæknifyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað.

Iðnaðarmenn samþykktu kjarasamning við Rio Tinto á Íslandi
Kjarasamningur iðnaðarmanna við Rio Tinto á Íslandi hefur verið samþykktur en atkvæðagreiðslu lauk í morgun.

Verð á „þjóðarrétti Íslendinga“ hækkar úr 770 krónum í 850 krónur
Bæjarins beztu pylsur hafa hækkað verð á pylsunni hjá sér um fimmtíu krónur og kostar hún nú 550 krónur.

Bezos lætur af störfum sem forstjóri Amazon
Auðjöfurinn Jeff Bezos lætur í dag af störfum sem forstjóri Amazon, fyrirtækis sem hann stofnaði á árum áður og hefur stýrt í 27 ár. Við honum tekur Andy Jassy en Bezos mun áfram verða mjög áhrifamikill og tekur sér stöðu stjórnarformanns.

Yfir 10 þúsund farþegar á einum degi í fyrsta sinn í fimmtán mánuði
Alls fóru 10.580 manns um Keflavíkurflugvöll síðastliðinn laugardag, en svo margir farþegar hafa ekki farið um völlinn á einum degi frá því 13. mars 2020, eða fyrir rúmum fimmtán mánuðum.

Húrraveldið stækkar: Opna gluggalausan næturklúbb sem á að breyta leiknum
„Það sem við erum að reyna að búa til er tímalaust rými. Þú ert í gluggalausum kjallara, það er bara óendanleiki, þú veist ekkert hvað klukkan er, það eru bara ljós og speglar og reykur og stemning. Þú bara gleymir þér og veist ekkert hvað er í gangi, enda skiptir það engu máli.“

Þegar að verkefnalistinn verður okkur ofviða
Úff. Þetta er bara of mikið. Of margir boltar á lofti. Hausinn á milljón. Svefninn jafnvel að truflast. Stress.

Stjórnendur Arion banka telji eigin bréf vanmetin
Arion banki hefur fengið heimild frá Fjármálaeftirlitinu til kaupa á eigin bréfum fyrir um 8 milljarða króna. Lektor í fjármálum segir þetta til marks um að þrátt fyrir miklar hækkanir á virði bréfa í bankanum, telji stjórnendur bréfin enn vanmetin.

Arion banki kaupir eigin bréf fyrir átta milljarða króna
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt Arion banka heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun á eigin bréfum á Íslandi og á heimildarskírteinum útgefnum í Svíþjóð

Draga úr plastnotkun og minna fólk á fjölnota pokana
Verslanir Bónus og Hagkaup eru hættar að selja lífræna plastburðarpoka á kassasvæði. Fólk er hvatt til að muna eftir fjölnota pokum.

Nýja vínbúðin fer í samkeppni við ÁTVR
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er komin með nýjan samkeppnisaðila, sem stílar inn á íslenskan markað. Netverslunin Nýja vínbúðin opnaði fyrir um tveimur vikum en það er viðskiptamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson sem rekur hana. Sverrir á litríka viðskiptasögu að baki en hann hefur meðal annars keypt gull og veitt 95 prósenta fasteignalán.

Fyrsta Chicago-vélin lenti á Keflavíkurflugvelli
Bandaríska flugfélagið United Airlines hóf í dag í fyrsta sinn beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago. Þetta er í fyrsta sinn sem United býður upp á beint flug milli Íslands og Chicago en bandarískt flugfélag hefur ekki áður boðið upp á beint flug á þessari leið.

„Þú borgar hærri vexti strax ef þú festir vexti“
Orð seðlabankastjóra í hlaðvarpsþætti um hvaða leið fólk á að fara við að taka fasteignalán hefur vakið talsverða athygli.

Tvær hópuppsagnir í júní
Tvær hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júní þar sem 62 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Líkamstjáning á fundum og nokkur góð ráð
Það skiptir ekki máli hvernig samskiptin okkar fara fram, þegar að við hittum fólk viljum við koma vel fyrir. Hvort sem við erum á fundum, fjarfundum eða bara í almennu spjalli eða viðtölum við viðskiptavini eða samstarfsfólk, skiptir líkamsbeitingin okkar máli.

Þrjátíu og tveimur sagt upp hjá Agustson í Stykkishólmi
Starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. í Stykkishólmi var sagt upp um mánaðamótin. Um 32 starfsmenn er að ræða og var þeim tilkynnt um uppsagnirnar á fundi í gær.

Rapyd kaupir Valitor á tólf milljarða
Alþjóðlega fjártæknifélagið Rapyd hefur samið við Arion Banka um kaup á Valitor hf. Kaupverðið er hundrað milljónir bandaríkjadala eða um 12,3 milljarðar króna.

Samið um starfsemi í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi
Samningur var í dag undirritaður um rekstur vinnustofu í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi, sem Sigtún Þróunarfélag keypti í vor. Bankinn Vinnustofa opnar í lok sumars.

Hefur framleiðslu og sölu á sínu fyrsta samheitalyfi
Coripharma hóf í dag sölu á fyrsta samheitalyfinu sem þróað er af félaginu. Um er að ræða lyf gegn flogaveiki, Eslicarbazepine, sem selt er í 200mg og 800mg töflum.

Málsvari olíurisa lýsir undirróðri gegn loftslagsaðgerðum
Olíurisinn Exxon Mobil hefur beitt sér gegn loftslagsvísindum í gegnum hulduhópa og er í nánum samskiptum við hóp þingmanna til að grafa undan loftslagsaðgerðum Bandaríkjastjórnar. Þetta viðurkennir málafylgjumaður í samtali sem var tekið upp á laun.

Fasteignafélag stofnað utan um húsnæði Háskóla Íslands
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags um eignarhald og umsjá fasteigna sem nýttar eru í starfsemi skólans.

Neytendasamtökin vilja banna njósnaauglýsingar á netinu
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna biðlar til stjórnvalda að þau beiti sér fyrir banni við auglýsingum á netinu sem byggja á persónusniði og eftirliti með neytendum.

Helmingi minni sykur í Pepsí árið 2030
Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsí ætlar að minnka verulega sykur sem bætt er í drykki fyrirtækisins sem eru seldir í ríkjum Evrópusambandsins á þessum áratug. Stefnan er að minnka sykurmagnið um fjórðung fyrir 2025 og um helming fyrir 2030.

Reitir kaupa fjórar verslunareignir af Festi
Fasteignafélögin Reitir og Festi hafa komist að samkomulagi um kaup Reita á fjórum fasteignum sem hýsa meðal annars verslanir Krónunnar. Kaupverðið er rúmir fjórir milljarðar króna og að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé.

Ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá Play
Steinar Þór Ólafsson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá flugfélaginu Play. Steinar hefur störf í dag, 1. júlí.

atNorth semur um kaup á raforku í kjölfar stækkunar gagnavera
Landsvirkjun og atNorth hafa undirritað nýjan raforkusamning til tveggja ára.

2.700 fjárfestar vildu hluti í Solid Clouds fyrir 2,8 milljarða
Um það bil 2.700 fjárfestar tóku þátt í hlutafjárútboði tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds og sendu þeir inn tilboð að andvirði 2,8 milljarða króna. Útboðinu lauk í dag en eftirspurnin var fjórföld.

Ronaldo trónir á toppi peningalista Instagram
Knattspyrnukappinn Christiano Ronaldo getur rukkað mest allra í heiminum fyrir kostaða Instagram-færslu. Samkvæmt greiningu HopperHQ getur hann krafist allt að 1,6 milljón bandaríkjadala fyrir hverja færslu.