Viðskipti
165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 334 ›
Hlutabréf fara á flug eftir jákvætt uppgjör Icelandair Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um 5,59 prósent það sem af er degi. Flugfélagið skilaði rúmlega hálfum milljarði króna í hagnað á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 22.7.2022 10:49
Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009. Viðskipti innlent 22.7.2022 09:45
Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Viðskipti innlent 22.7.2022 09:12
Að vera einmana í fríinu er staðreynd hjá sumum Þótt við séum vel flest spennt fyrir sumarfríinu er það staðreynd að það er líka hópur fólks sem er mjög einmana í fríum frá vinnu. Og jafnvel kvíðir þeim dögum. Atvinnulíf 22.7.2022 08:01
Eik kaupir Lambhaga á 4,2 milljarða króna Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna. Viðskipti innlent 22.7.2022 07:46
„Alveg hræðilegur“ leiðréttingarbúnaður Apple Sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður Apple fyrir íslensku er hörmulegur og með ólíkindum að einhver hafi fengið borgað fyrir að hanna hann, að mati hugbúnaðarhönnuðar. Fyrirtækið virðist ekki nota neinar tölfræðiupplýsingar sem til eru um íslenskan texta, þrátt fyrir vitneskju um þær. Viðskipti innlent 21.7.2022 21:00
Hálfur milljarður í hagnað á öðrum ársfjórðungi Icelandair skilar um hálfum milljarði í hagnað á öðrum ársfjórðungi 2022. Lausafjárstaða félagsins hefur aldrei verið sterkari og nam 61,6 milljörðum króna í lok júní. Viðskipti innlent 21.7.2022 16:26
Miami lokað og nýs eiganda leitað Skemmtistaðurinn Miami á Hverfisgötu hefur verið lokaður frá byrjun júlí og nú er nýs eiganda leitað til þess að taka við rekstri skemmtistaðarins. Viðskipti innlent 21.7.2022 15:21
Hækka stýrivexti í fyrsta skipti í ellefu ár Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti í dag um hálft prósentustig til að stemma stigu við 8,6 prósent verðbólgu á evrusvæðinu. Hækkunin er sú fyrsta sem seðlabankinn ræðst í síðan 2011. Viðskipti erlent 21.7.2022 14:25
Hagnaður Landsbankans lækkar um fjóra milljarða milli ára Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórðungi 2022 nam 2,3 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2021. Arðsemi eigin fjár Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2022 4,1 prósent og er því langt undir 10 prósenta markmiði bankans. Ástæðu fyrir dvínandi arðsemi segir bankinn vera lækkun á gangvirði hlutabréfaeignar bankans. Viðskipti innlent 21.7.2022 13:35
Akademias festir kaup á Tækninámi Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninám. Viðskipti innlent 21.7.2022 12:01
„Þá erum við í vondum málum, íslenskt samfélag“ Þingmaður segir það mun skaðlegra fyrir orðspor Íslands ef slegið yrði af kröfum um eftirlit með samkeppni, heldur en ef kaup fransks fjárfestingasjóðs á Mílu ná ekki fram að ganga. Samkeppniseftirlitið verði að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Viðskipti innlent 21.7.2022 12:00
Ytri aðstæður haft áhrif á afkomu Össurar Össur hagnaðist um fjórtán milljónir bandaríkjadala eða 1,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 eða átta prósent af veltu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður nítján milljónir dala og lækkar því um 26 prósent milli ára. Viðskipti innlent 21.7.2022 07:36
Dómstólar ákveða hvort Musk skuli kaupa Twitter Dómstólar í Delaware hafa komist að þeirri niðurstöðu að Elon Musk þurfi að fara fyrir dóm vegna kaupa sinna á Twitter eða hvort hann skuli standa við þau. Viðskipti erlent 20.7.2022 19:43
Opin allan sólarhringinn og enginn á vaktinni Fyrsta alsjálfvirka hverfisverslun landsins var opnuð í Garðabæ í morgun. Verslunin verður opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Framkvæmdastjóri segir opnunina marka upprisu gömlu hverfisverslananna. Viðskipti innlent 20.7.2022 19:16
Segir marga svekkta sem reyna við fasteignamarkaðinn Formaður Félags fasteignasala segir marga sitja eftir með sárt ennið sem gera tilboð í fasteignir eins og staðan er á markaðnum í dag. Þrátt fyrir yfirboð nái þeir ekki að festa kaup á húsnæði, samkeppnin sé of hörð. Viðskipti innlent 20.7.2022 14:09
Misstu milljón notendur en virðið hækkar samt Streymisveitan Netflix missti 970 þúsund áskrifendur á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er stærsti áskrifendamissir fyrirtækisins frá því það var stofnað fyrir 25 árum. Þrátt fyrir það er uppgjörið talið vera jákvætt. Viðskipti erlent 20.7.2022 13:16
Samsung Jet – Hrein snilld Samsung settu nýlega á markað glæsilegar skaftryksugur sem eru nú fáanlegar á Íslandi. Samsung Jet skaftryksugurnar eru kraftmiklar, léttar og meðfærilegar og gera þér auðveldara fyrir að halda hreint heimili. Samstarf 20.7.2022 12:36
Markaðurinn róaðist minna en búist var við Íbúðaverð hækkaði um 2,2 prósent milli maí og júní. Það er minni hækkun en undanfarna mánuði en þó meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði reiknað með. Viðskipti innlent 20.7.2022 11:05
Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Smyril line Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir. Viðskipti innlent 20.7.2022 09:13
Hagnaður Kviku banka tæplega tveimur milljörðum króna undir áætlun Hagnaður Kviku banka hf. á öðrum ársfjórðungi er áætlaður 450 til 500 milljónir króna samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fjórðunginn. Áætluð afkoma fyrir fjórðunginn var 2,15 til 2,4 milljarðar króna og vantar því mikið upp á, eða 1,8 milljarð króna. Viðskipti innlent 20.7.2022 06:46
Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. Viðskipti innlent 19.7.2022 16:09
Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið. Viðskipti innlent 19.7.2022 06:32
Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma. Viðskipti innlent 18.7.2022 22:44
Hlutabréfaverð Símans lækkað mikið eftir tíðindi gærdagsins Gengi hlutabréfa Símans lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að tilkynnt var um það í gær að Ardian France SA væri ekki tilbúið til að ganga frá kaupum á Mílu. Viðskipti innlent 18.7.2022 20:46
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. Viðskipti innlent 18.7.2022 18:51
Unglingalandsmót UMFÍ snýst um gleði og samveru Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Selfossi 29. til 31. júlí. Skráning er í fullum gangi og stendur til mánudagsins 25. júlí. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir mótið langþráðan viðburð eftir tveggja ára hlé. Þar geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Samstarf 18.7.2022 15:47
Telur söluna á Mílu jákvæða fyrir samkeppni á fjarskiptamarkaði Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu eru í uppnámi, en félagið er ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum sínum við Símann, eiganda Mílu, vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans segir helstu áhyggjur eftirlitsins snúa að viðskiptasambandi Símans og Mílu eftir söluna. Viðskipti innlent 18.7.2022 13:36
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. Viðskipti innlent 18.7.2022 13:22
Hætta neysludagsmerkingu á grænmeti og ávöxtum Breska verslunarkeðjan Marks og Spencer ætla sér að hætta að nota merkingar um síðasta neysludag á miklum fjölda grænmetis og ávaxta í verslunum. Viðskipti erlent 18.7.2022 13:03