Sport

Tyson hafnar því að hann borði hrátt kjöt
Hnefaleikakappinn Mike Tyson, fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt, hafnar því alfarið að hann leggi sér hrátt kjöt til munns.

Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“
Birkir Már Sævarsson lauk knattspyrnuferli sínum um síðustu helgi þegar hans menn í Val unnu 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla. Birkir Már í atvinnumennsku í rúman áratug og er á meðal leikjahærri manna í sögu landsliðsins.

Dagskráin í dag: Meistarinn mætir til leiks í úrvalsdeildinni
Sýnt verður beint frá sex viðburðum í fimm íþróttagreinum á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Formaður danska handknattleikssambandsins bráðkvaddur
Morten Stig Christensen, formaður danska handknattleikssambandsins, varð bráðkvaddur í morgun. Hann var 65 ára.

Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið
Eftir að hafa flutt aftur heim til Englands er fótboltamaðurinn Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið.

Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur
Keflavík tók á móti KR í Blue höllinni í kvöld í lokaleik fimmtu umferðar Bónus deild karla. Eftir örlitla eyðimerkurgöngu var það Keflavík sem komst aftur á sigurbraut með sex stiga sigri, 94-88.

„Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“
Keflavík tók á móti KR í 5. umferð Bónus deild karla í Blue höllinni í kvöld. Keflavík hafði fyrir leikinn í kvöld tapað þremur leikjum í röð en komust aftur á sigurbraut í kvöld með sex stiga sigri, 94-88.

Sigurmark þremur sekúndum fyrir leikslok á Nesinu
Eftir að hafa verið undir nær allan leikinn vann Valur Gróttu, 21-22, á Seltjarnarnesi í Olís-deild karla í kvöld. Bjarni í Selvindi skoraði sigurmark Valsmanna þegar þrjár sekúndur voru eftir.

Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri
Þór Þorlákshöfn lagði Hauka að velli 82-81 þegar liðin leiddu saman hesta sína í fimmtu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í Icelandic Glacial-höllinni í kvöld. Þór Þorlákshöfn komst upp að hlið Njarðvík og Tindastóli með þessum sigri en Haukar eru ásamt ÍR án sigurs á botni deildarinnar.

Aldís Ásta fagnaði sigri í Íslendingaslagnum
Skara vann fimm marka sigur á Kristianstad, 24-29, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Tíu íslensk mörk litu dagsins ljós í leiknum.

Öruggt hjá Bröndby og Karólína og Leverkusen upp í annað sætið
Íslendingaliðin Bröndby og Bayer Leverkusen unnu sína leiki í sínum deildum í kvöld. Bröndby vann 0-3 útisigur á B93 í dönsku úrvalsdeildinni og í þýsku úrvalsdeildinni sigraði Bayer Leverkusen Köln, 1-2.

Níundi sigur Óðins og félaga í röð
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen náðu sjö stiga forskoti á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta með stórsigri á Amicitia Zürich í kvöld, 30-20.

Harpa Valey tryggði Selfossi stig
Selfoss og Fram gerðu 27-27 jafntefli í Olís-deild kvenna í kvöld. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði jöfnunarmark Selfyssinga og Cornelia Hermansson tryggði þeim svo stig með því verja skot frá Ölfu Brá Hagalín á lokasekúndunum.

Þriðja tap Düsseldorf í síðustu fjórum leikjum
Düsseldorf tapaði fyrir Preussen Münster, 1-0, í þýsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var þriðja tap Düsseldorf í síðustu fjórum leikjum.

Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti
Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson fékk í dag loks medalíu fyrir að verða Íslandsmeistari með Breiðabliki.

Yorke ráðinn landsliðsþjálfari heimalandsins
Dwight Yorke, fyrrverandi leikmaður Manchester United, Aston Villa og fleiri liða, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Trínidad og Tóbagó.

Mahomes vill eignast lið í WNBA og koma með það til Kansas City
Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs í NFL, vill eignast fleiri íþróttafélög. Núna er hann með augum á kvennakörfuboltaliði.

Má spila þrátt fyrir áfrýjun
Áfrýjun Ríkissaksóknara á sýknu Alberts Guðmundssonar kemur ekki í veg fyrir að hann leiki fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu. Nýleg breyting á viðbragðsáætlun KSÍ tekur af allan vafa um það. Hann er þó meiddur á læri og því ljóst að hann muni ekki taka þátt í næsta landsleikjaglugga.

Laugardalsvöllur eins og þú hefur aldrei séð hann áður
Góður gangur er á framkvæmdum við þjóðarleikvang okkar Íslendinga í fótbolta, Laugardalsvöll. Við litum við og tókum stöðuna á framkvæmdunum í dag og þar tók Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður, meðfylgjand myndir.

„Þetta var bara ömurlegt í alla staði“
„Það hefði verið fullkominn endir,“ segir Theodór Elmar Bjarnason um fyrrum liðsfélaga sinn hjá KR, Kjartan Henry Finnbogason. Kjartan yfirgaf KR sumarið 2022 sem fylgdi mikið fjaðrafok og náðu þeir félagarnir því örfáum leikjum saman með Vesturbæjarliðinu.

Einstök fótboltaferð boðin upp á herrakvöldi HK
HK-ingar urðu að sætta sig við fall úr Bestu deild karla í fótbolta um síðustu helgi en þeir ætla að halda veglegt herrakvöld á þessum fyrsta degi nóvembermánaðar.

Fyrrverandi fótboltamaður á meðal hinna látnu
Að minnsta kosti 158 manns hafa látist vegna hamfaraflóðanna á Spáni og þar á meðal er fyrrverandi fótboltamaðurinn Jose Castillejo.

„Passar fullkomlega við svona félag“
Portúgalski fótboltamaðurinn Diogo Dalot er sannfærður um að landi hans, Ruben Amorim, eigi eftir að spjara sig vel sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Rússneskur markvörður vill verða Norðmaður
Nikita Haikin, aðalmarkvörður norska úrvalsdeildarliðsins Bodö/Glimt, vill verða norskur ríkisborgari.

Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ
Ómar Ingi Guðmundsson, fráfarandi þjálfari HK, var ekki lengi að finna sér nýtt starf. Hann hefur verið ráðinn til Knattspyrnusambands Íslands.

Man. Utd kynnir nýja stjórann til leiks
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur nú staðfest komu portúgalska stjórans Ruben Amorim. Hann mun taka formlega við liðinu mánudaginn 11. nóvember.

Íslandsleikirnir í fjórða og fimmta sæti
Mjög góð aðsókn var á marga leiki í landsleikjaglugga kvenna í fótbolta og þar á meðal á leiki íslensku stelpnanna.

Ten Hag niðurbrotinn þrátt fyrir milljarðana
Erik ten Hag var rekinn sem knattspyrnustjóri Manchester United á mánudagsmorgun. Hann fær veglegan starfslokasamning en er engu að síður í öngum sínum.

Líkir Real Madrid við Donald Trump
Þýski varnarmaðurinn Mats Hummels setti fram athyglisverðan samanburð þegar hann var spurður út í leikrit Real Madrid manna í kringum verðlaunahátíð Ballon d'Or á mánudagskvöldið.

Sjáðu lyfturnar: Mamma krýndi Eygló Evrópumeistara og Guðný vann brons
Tvær íslenskar konur stóðu saman á verðlaunapalli á Evrópumeistaramóti ungmenna í ólympíuskum lyftingum í Póllandi í gær. Myndbönd af lyftum þeirra má nú sjá á Vísi.