Skoðun

Launakostnaður íslenskra fyrirtækja er undir meðallagi

Stefán Ólafsson skrifar

Atvinnurekendur tala iðulega um að laun séu með hæsta móti á Íslandi, jafnvel þau hæstu í heimi. Fjölmiðlar þeirra bergmála þetta svo um allt land. Því trúa margir þessu. En þetta er ekki svona einfalt. Skoða þarf laun og launatengd gjöld saman, að teknu tilliti til mismunandi verðlags þjóða.

Skoðun

Lands­virkjun perlar

Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Í fréttaskýringaþættinum Kveik var í liðinni viku fjallað um fyrirhugaða Hvammsvirkjun, sem Landsvirkjun vill reisa í neðri hluta Þjórsár. Fjallað var um áhrif virkjunarinnar á samfélag, landslag og umhverfi en einnig stuttlega minnst á laxastofn Þjórsár. Sá er með allra stærstu laxastofnum Atlantshafslaxins, sem áður var útbreidd tegund um alla Norður-Evrópu.

Skoðun

Lög­reglu­nemar með Lúlla/Lúllu lú­ser í til­sjón!

Davíð Bergmann skrifar

Núna eins og oft áður tröllríður í samfélaginu sú umræða að ofbeldi ungmenna sé að versna. Það er talað um aukinn vopnaburð og að harkan sé meiri þetta sinn, fyrir nokkrum mánuðum var talað um gróft einelti með sama hætti.

Skoðun

Banvænir biðlistar

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Í aðsendri grein á Vísi skrifar Kristín Davíðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, um vímuefnavanda og faraldurinn sem geisar nú. Eins og hún bendir á eru sjúklingarnir flestir ungt fólk og þeim mun sorglegra er það hversu lítið samfélagið lætur sig þennan hóp varða.

Skoðun

Opið bréf til ráð­herra og al­þingis­manna

Karen Jónsdóttir,Eygló Björk Ólafsdóttir,Oddný Anna Björnsdóttir og Ólafur Stephensen skrifa

Í framhaldi af umræðu um stöðu birgja við gjaldþrot fyrirtækja og lög um samningsveð. Við undirrituð skorum á háttvirt Alþingi að endurskoða 36. gr. laga um samningsveð nr. 75/1997.

Skoðun

Þú getur hjálpað barni að eignast hjól

Linda Hrönn Þórisdóttir skrifar

Nú er Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi hafin í tólfta sinn. Viðtökurnar hafa verið góðar og mikill fjöldi hjóla hefur safnast á móttökustöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjólin eru lagfærð af sjálfboðaliðum og þeim svo úthlutað til barna og ungmenna sem að öðrum kosti hafa ekki tök á því að eignast hjól.

Skoðun

Pósturinn rétt­lætir lækna­mis­tök

Sævar Þór Jónsson skrifar

Ekki er ýkja langt síðan að upp komst um röð mistaka sem gerð voru við greiningu skjólstæðinga Krabbameinsfélagsins. Afleiðingar þeirra mistaka voru skelfilegar fyrir suma skjólstæðinga félagsins og enn þá er verið að vinna úr málum fjölmargra þeirra. Málin eru fleiri en rötuðu í fréttir á sínum tíma og mörg þeirra vekja upp spurningar um gæðamál innan heilbrigðiskerfisins almennt.

Skoðun

Nýjar leiðir í geð­heil­brigðis­málum

Grímur Atlason skrifar

Ráðstefnan „Þörf fyrir samfélagsbreytingar? – nýjar leiðir til þess að hugsa um geðheilbrigðismál“ fer fram dagana 27. og 28. apríl á Hilton Reykjavík Nordica. Þar verður gestum boðið að kynna sér önnur sjónarmið en þau sem hafa verið ríkjandi í geðheilbrigðismálum undanfarna áratugi. Lögð verður áhersla á notendamiðaða nálgun sem er farin að ryðja sér til rúms víða.

Skoðun

Mikil­vægt að upp­lýsa íbúa

Bragi Bjarnason skrifar

Ég vil byrja á að þakka íbúum í Árborg fyrir áhuga þeirra á íbúafundinum 12.apríl sl. þegar bæjarstjórn Árborgar ásamt ráðgjafafyrirtækinu KPMG fóru yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og markmið næstu ára. Það er nú eitt meginmarkmiða bæjarstjórnar að íbúar séu reglulega upplýstir um málefni sveitarfélagsins okkar og vil ég fylgja því eftir með þessum stutta pistli.

Skoðun

Fræðsla gegn for­dómum

Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar

Börn eru jafn ólík og þau eru mörg og við eigum að fagna fjölbreytileikanum. Börn eiga að fá að vera eins og þau eru og það er skylda fullorðinna og stjórnvalda að vernda þau og leyfa þeim að vera börn.

Skoðun

Það þarf heilt sam­fé­lag

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar

Í þeim aðstæðum og þeim hraða sem samfélagið býður ungum barnafjölskyldum upp á í dag, reikar hugurinn óhjákvæmilega til annarra tíma. Tíma sem voru kannski ekki einfaldari að neinu leiti, áskoranirnar voru aðrar, fjölskyldusamsetningin var kannski önnur, kröfurnar á foreldra og börn aðrar eða jafnvel öðruvísi.

Skoðun

Biður fólk af landsbyggðinni um of mikið?

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Um helgina lauk seinni legg hringferðar þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Við lögðum land undir fót fyrr á árinu, en áttum m.a. eftir að heimsækja Vestfirðina.

Skoðun

Net­öryggis­á­skoranir Hluta­neta og leiðir til úr­bóta

Þór Jes Þórisson skrifar

Hlutanet (Internet of Things, IoT) færir fólki mikla möguleika þegar kemur að snjallvæðingu. Hinn almenni notandi ætti að geta nýtt þessa möguleika á öruggan hátt og með vissu um að fullnægjandi öryggi og persónuverndarráðstafanir séu fyrir hendi til að verja notkun þeirra á hlutanetinu (snjalltæki á Netinu). Það er oft því miður ekki alveg þannig.

Skoðun

Fjarnám í þjóðfræði

Hafrún Eva Kristjánsdóttir skrifar

Árið 2020 var viðburðarríkt hjá mér. Fyrir utan upphaf Covid19 og öllu því fíaskói sem fylgdi því eignaðist ég mitt annað barn og í fæðingarorlofinu mínu flutti ég af suðurlandinu og norður fyrir heiði. Það að vera innilokuð í Covid19 takmörkunum og í fæðingarorlofi á nýjum stað þar sem ég þekkti fáa gerði það að verkum að ég ósjálfrátt einangraðist og mér hundleiddist.

Skoðun

Les­blinda er al­gengari er áður hefur verið talið

Snævar Ívarsson skrifar

Kynntar hafa verið niðurstöður þriggja ára rannsóknar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir Félag lesblindra á Íslandi. Þær eru aðgengileg er á samfélagsmiðlum félagsins. Þær staðfesta að fimmti hver glímir við lesblindu. Hún er því mun algengari en áður hefur verið talið.

Skoðun

Samtökin 22 eru ekki í okkar nafni

Hópur samkynhneigðra skrifar

Við undirrituð erum samkynhneigð, af ólíkum kynjum, virk og óvirk í starfi hinsegin félaga. Við styðjum réttindabaráttu trans fólks, fræðslustarfsemi Samtakanna '78, samheldni og samhug hinsegin samfélagsins, og annað sem meint hagsmunasamtök okkar, þ.e. Samtökin 22, hafa talað gegn að undanförnu.

Skoðun

Hnífa­burður gerður út­lægur

Eyþór Víðisson skrifar

Það þarf ekki að ræða frekar að hnífaburður er orðið vandamál hér landi. Að bera hníf ógnar öryggi barna okkar, ungmenna, lögreglu og almennings.

Skoðun

Stjórn­völd gefast upp á far­sæld barna

Lúðvík Júlíusson skrifar

Stjórnvöld hafa gefist upp á farsæld barna. Þau leggja fram einhver frumvörp, setja göfug markmið, senda út fallegar yfirlýsingar til fjölmiðla, halda ráðstefnur og hrósa sjalfum sér daglega. En hvað skilja þau eftir?

Skoðun

Verum örugg í vor­um­ferðinni

Ágúst Mogensen skrifar

Nú eru árstíðaskipti í umferðinni og tími sumardekkja runninn upp. Maí er líka skoðunarmánuður ferðavagna, bifhjóla og fornbíla. Takturinn í umferðinni er að breytast, bifhjól koma á götuna, fleiri fara út að ganga og átakið hjólað í vinnuna hefst.

Skoðun

Ég van­treysti öllum

Benedikt Jóhannesson skrifar

Fyrir tæplega 20 árum sagði gamall kennari minn frá ráði sem prestur nokkur gaf henni ráð þegar hún var ung stúlka á leiðinni út í lífið: „Mundu að það er engum að treysta.“ Ekki dró það úr þunga sögunnar að bæði kennarinn og presturinn voru vel þekkt á sinni tíð.

Skoðun

Hrafnarnir mínir

Ragnar Erling Hermannsson skrifar

Ég hef rætt um hvað stuðningur ykkar kæru Íslendingar hefur skipt sköpum á þeirri vegferð sem ég ákvað að halda varðandi heimilislausa og fíknsjúkdóminn.

Skoðun

Lokuðu dyrnar í heil­brigðis­kerfinu

Kristín Davíðsdóttir skrifar

Frá árinu 2005 hef ég starfað sem hjúkrunarfræðingur. Ég hef starfað á bráðamóttökum og legudeildum, hérlendis og erlendis. Árið 2021 hóf ég störf hjá Frú Ragnheiði hvar skjólstæðingahópurinn samanstendur fyrst og fremst af fólki sem glímir við þungan vímuefnavanda - að stærstum hluta ungt fólk.

Skoðun

Engin ó­vissa um af­drif lax­fiska ofan Hvamms­virkjunar

Gísli Sigurðsson skrifar

Ennþá einu sinni er Hvammsvirkjun í Þjórsá komin í fréttirnar; nú síðast í rækilegum Kveiksþætti í nýliðinni viku. Vegna síendurtekinna rangfærslna frá Landsvirkjun um áhrif þessarar virkjunar á lífríki árinnar neyðumst við gömlu karlarnir til að kveikja aftur á tölvunni.

Skoðun

Við gleymum oft því dýr­mætasta: Tíma

Ásta Möller Sívertsen skrifar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið, lögum samkvæmt og er ætlaður börnum undir skólaskyldualdri. Þó er ekki kveðið sérstaklega á um á hvaða aldri börn eigi rétt á að hefja leikskólagöngu. Yngstu börnunum hefur fjölgað jafnt og þétt í leikskólum landsins undanfarin ár. Flest sveitarfélög hafa sett sér aldursviðmið varðandi innritunaraldur og árið 2021 var innritunaraldur flestra barna á bilinu 19‒24 mánaða.

Skoðun

Pólskt sam­fé­lag í á­falli

Martyna Ylfa Suszko skrifar

Síðastliðinn fimmtudag átti sér stað hræðilegt atvik í Hafnarfirði. Ungur Pólskur maður var stunginn til bana á bílastæði fyrir utan Fjarðarkaup. Meintir gerendur eru fjórir Íslenskir strákar á framhaldsskólaaldri, sem gerir þetta kannski en sorglegra. Þetta atvik er mikill harmleikur og hefur tekið mjög á pólskt samfélag hér á landi. 

Skoðun

Djúpið í örum vexti!

Ágúst Bjarni Garðarsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifa

Við verðum að tryggja fleiri stoðir undir atvinnulíf þjóðarinnar. Já, við vitum, að þú hefur heyrt þetta nokkrum sinnum áður. En við viljum segja þér frá atvinnugrein sem er að skapa störf og það mjög fjölbreytt störf í samfélagi sem hefur verið í varnarbaráttu allt of lengi.

Skoðun

Að kannast við klúðrið – um pitsu­ost og á­byrgð ráð­herra

Ólafur Stephensen skrifar

Félag atvinnurekenda hefur undanfarið vakið athygli á málsmeðferð yfirvalda, einkum og sér í lagi Skattsins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins, í máli sem varðar tollflokkun pitsuosts sem blandaður er með jurtaolíu. Málið hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og fulltrúar FA röktu það fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sl. miðvikudag.

Skoðun

Tjáningar­frelsið og mál­efni trans barna og ung­menna

Helgi Áss Grétarsson skrifar

Það má tjá skoðanir á hver sé þróun málefna trans barna og ungmenna hér á landi. Margir veigra sér þó við því. Hvers vegna? Væntanlega er ein ástæða þess að sú hætta er raunveruleg að sá sem tjái skoðanir sínar um málaflokkinn verði í framhaldinu brennimerktur á opinberum vettvangi.

Skoðun