Menning
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Hvíldu þig, hvíld er góð? Iðjusemi hefur löngum verið álitin með mestu dyggðum hér á landi og letin að sama skapi með verstu löstum enda vofir hún ávallt yfir. Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, ræðir um þann löst og rekur með því smiðshöggið á fyrirlestraröð um dauðasyndirnar sjö í Grófarhúsinu kl. 17.15 í dag. Fyrirlestraröð þessi var flutt í Amtmannsbókasafninu á Akureyri fyrr í vetur og hefur mælst afar vel fyrir bæði norðan heiða og sunnan. Menning 25.4.2007 09:15
Löng leið að langþráðu marki Eitt af stofnfélögum Bandalags íslenskra listamanna, Félag íslenskra listdansara, er statt á tímamótum því um þessar mundir eru sextíu ár liðin síðan frumherjar íslenskrar danslistar komu saman og stofnuðu félagið. Fyrsti formaður þess var Ásta Norðmann en hún leiddi um árabil hóp frumkvöðlanna. Var hún eina konan sem kom að stofnun Bandalags íslenskra listamanna en konur hafa alla tíð verið í forystu listdansins á Íslandi. Menning 25.4.2007 08:30
Tekur Partílandið fram yfir Harry Potter „Ég er núna að fara að spila með landsliðinu en auðvitað vilja allir spila með Draumaliðinu,“ segir Jón Páll Eyjólfsson, leikari og leikstjóri, sem stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun í vikunni. Fréttablaðið greindi frá því að hann væri einn þeirra sem þyki koma til greina í hlutverk í sjöttu kvikmyndinni um Harry Potter. Menning 21.4.2007 06:30
Rætt um listir í skólakerfinu Myndlistarskólinn í Reykjavík gengst fyrir námstefnu um möguleika listnámskennslu í almennu skólastarfi í dag og á morgun. Yfirskrift stefnunnar er „KnowHow” en að því verkefni standa listaskólar í fjórum Evrópulöndum. Menning 20.4.2007 06:45
Fransmenn og fjölskyldufjör Borgarbókasafnið fagnar Viku bókarinnar með fjölbreyttri dagskrá um alla borg. Í dag verður til dæmis efnt til fjölskylduhátíða á vegum safnsins í Árbæ og Grafarvogi auk þess sem heilmikið verður um að vera í Grófarhúsinu við Tryggvagötu. Menning 19.4.2007 12:00
Hver var Freyja? Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og þýðandi heldur fyrirlestrar á vegum Snorrastofu í Reykholti á morgun. Ingunn fjallar þar um ímynd og hlutverk Freyju í norrænni heiðni og kallar erindi sitt „Hver var Freyja?“ Menning 16.4.2007 08:45
Með Biblíur í kassavís Samkvæmt vef Mannlífs var Gunnar Þorsteinsson, oftast kenndur við Krossinn, sagður vera farinn að hamstra Biblíur en hann hefur ekki farið leynt með andúð sína á nýrri þýðingu bókarinnar sem væntanleg er á næstu misserum. Menning 16.4.2007 08:30
Minning Guðjóns Samúelssonar Pétur Ármannsson arkitekt og einn reyndasti rannsóknarmaður okkar um þessar mundir í sögu íslenskrar húsagerðar heldur í kvöld fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands en í dag, 16. apríl, eru 120 ár liðin frá fæðingu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Af því tilefni mun Pétur H. Ármannsson arkitekt FAÍ halda fyrirlestur um fjölþætt framlag hans til byggingarlistar og skipulagsmála. Menning 16.4.2007 08:00
Ull í ungum höndum Nemendum í Rimaskóla er margt til lista lagt en á morgun verður opnuð sýning á textílverkum nemenda í sjötta bekk skólans í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Menning 16.4.2007 07:00
Framlag verðlaunað Rithöfundarnir Margaret Atwood, Ian McEwan og Philip Roth eru meðal þeirra sem hlutu náð fyrir valnefnd Alþjóðlegu Booker bókmenntaverðlaunanna og komust á lista yfir þá fimmtán höfunda sem tilnefndir eru í ár. Menning 14.4.2007 14:00
Sígilt sultubrauð fáanlegt að nýju Hjá Vöku-Helgafelli er komin út að nýju bókin Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur með myndum eftir Brian Pilkington. Tuttugu ár eru síðan bókin kom fyrst út en fyrir hana hlaut Kristín Íslensku barnabókaverðlaunin vorið 1987 Menning 11.4.2007 14:39
Engar guðfræðilegar hártoganir Séra Þórhallur Heimisson hefur samið við bókaútgáfuna Sölku um útgáfu á ævisögu Maríu Magdalenu. Þórhallur hefur gengið með hugmyndina í maganum síðan 2004 þegar hann byrjaði með námskeiðið um Da Vinci lykilinn en þar leikur María stórt hlutverk. Menning 10.4.2007 10:00
Vandinn við Kafka Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og þýðandi, heldur erindi um nóvelluna Umskiptin eftir Franz Kafka í dag. Erindi sitt kallar Ástráður „„Þetta var ekki draumur“: Vandinn að skilja og þýða Umskiptin“ en verk það, ásamt skáldsögunni Réttarhöldunum, er með þekktustu verkum Kafka og jafnframt eitt frægasta sagnaverk evrópskra bókmennta á 20. öld. Menning 2.4.2007 07:30
Skírnir á vefnum Hið íslenska bókmenntafélag hefur sett á stofn vefsíður fyrir sitt forna tímarit, Skírni, sem Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur ritstýrir nú um stundir: www.skirnir.is. Þar má meðal annars fylgjast með fréttum og umræðum í tengslum við efni Skírnis. Menning 2.4.2007 07:15
David Bowie stjórnar listahátíð Grínistinn Ricky Gervais og kanadíska hljómsveitin The Arcade Fire eru á meðal þeirra sem munu koma fram á listahátíðinni High Line Festival sem verður haldin á Manhattan í New York dagana 9. til 19. maí. Menning 1.4.2007 10:00
Dansa við lifandi tónlist Fjórir nemendur Listdansskóla Íslands halda til Turku í Finnlandi í byrjun apríl. Þar munu þeir sýna verk eftir Elli Laukkanen, sem hefur verið gestakennari við skólann frá því í janúar. Menning 31.3.2007 09:30
Bóklistaverk og aðrar bækur Áfram halda veisluhöld vegna franska vorsins: nú eru menn minntir á framlag Frakka til bókmennta og fræðiritaútgáfu. Það er gert með sýningu í Þjóðarbókhlöðunni við Suðurgötu sem opnuð verður í dag. Af því tilefni kemur út bóklistaverk svokallað með ljóðum á báðum tungunum, íslensku og frönsku, eftir Sigurð Pálsson, myndlýst af Bernard Alligand. Menning 29.3.2007 10:00
Munið að sýna skilríkin Ef þú ert 23 ára eða yngri geturðu keypt heila bók á hálfvirði. Bjartur bókaforlag býður nú öllum þeim sem eru 23 ára og yngri að kaupa glænýja kiljuútgáfu SKULDADAGA eftir Jökul Valsson á aðeins hálfvirði. Eina sem þarf að gera er að tölta til næsta bóksala og sýna skilríkin. Menning 27.3.2007 15:51
Kogga og fartölva fyrir bestu glæpasöguna „Kristinn glæpaforingi hér,” svarar dularfull rödd þegar blaðamaður Fréttablaðsins slær inn tiltekið númer á símtækið sitt Menning 27.3.2007 08:45
Rætt um Bjólf og Jónas Bandaríska sendiráðið gengst fyrir heimsókn prófessorsins Dick Ringler hingað til lands en hann mun halda fyrirlestra í Háskóla Íslands á morgun og á þriðjudag. Ringler er prófessor emeritus við Wisconsin-háskóla í Madison, en þar kenndi hann forníslensku og norræn fræði í rúm þrjátíu ár. Hann er enn fremur heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Menning 25.3.2007 13:00
Dóttir vísar veginn Í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg standa nú yfir yfirlitssýningar á verkum Jóns Engilberts og Jóhanns Briem. Í dag kl. 14 leiðir dóttir þess fyrrnefnda, Greta Engilberts, gesti safnsins um sýningu föður síns og ræðir um verk hans og lífshlaup. Menning 25.3.2007 08:00
Madonna í H&M og á eBay Í gær var byrjað að selja tískulínu hannaða af Madonnu í verslunum H&M. Nú þegar hefur mikið af fötunum ratað á uppboðsvefinn eBay. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Madonna og H&M eru í samstarfi því verslunin klæddi hana, hljómsveit hennar og dansara á Confessions Tour tónleikaferðalagi hennar í fyrra. Menning 23.3.2007 14:21
Austrænn innblástur Ólafur Lárusson myndlistarmaður sýnir verk sín hjá Ófeigi gullsmið á Skólavörðustíg. Sýningin var opnuð í byrjun mánaðarins en þar er að finna verk sem listamaðurinn gerði eftir mikla ævintýraför sína til Kína á haustdögum 2006. Sýningunni lýkur næstkomandi miðvikudag, hinn 28. mars. Menning 23.3.2007 10:00
Iður Bjarna í Iðuhúsi Bjarni Sigurbjörnsson myndlistarmaður opnar sýninguna Iður í nýjum húsakynnum Anima galleríis í Iðu-húsinu í Lækjargötu. Bjarni hefur haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis og þrisvar verið tilnefndur til Carnegie-verðlaunanna. Hann er þekktur fyrir íburðarmikil málverk sem hann vinnur á plexígler. Menning 23.3.2007 08:30
Nýtt ævintýri á gönguför Það ríkir eftirvænting á Akureyri vegna frumsýningar kvöldsins í Rýminu. Þá birtist Akureyringum nýtt verk eftir heimamann, Þorvald Þorsteinsson, í sviðsetningu Kjartans Ragnarssonar og er þetta fyrsta sviðsetning hans eftir nokkurt hlé. Það er LA sem stendur að frumsýningunni í Rýminu í samstarfi við leiklistardeild Listaháskólans. Uppselt er á tólf fyrstu sýningarnar. Menning 23.3.2007 07:00
Krókar og kimar Í tilefni af 30 ára afmæli Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands heldur Dr. Regina Bendix, prófessor fyrirlestu um vettvangsrannsóknir á háskólasamfélögum. Menning 22.3.2007 08:45
Könnun kerfanna Sýningarröð Listasafns Reykjavíkur sem kennd er við D-2 hefur vakið verðskuldaða athygli en markmið hennar er að vekja athygli á efnilegum listamönnum sem ekki hafa sýnt í hinum stærri sýningarsölum landsins og vera þeim hvatning. Síðdegis í dag verður opnuð sýning í D-salnum þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar veltir fyrir sér mannlegri tilvist og þeim kröftum sem knýr manninn áfram. Menning 22.3.2007 08:30
Klettasalat og afbyggður líkami Tvær sýningar verða opnaðar í gallerí Kling & Bang í dag. Spænski listamaðurinn Alejandro Vidal heldur sína fyrstu einkasýningu hér á landi og sýnir myndbandsverk og ljósmyndir í afgirtu rými en í galleríinu gefur einnig að líta vídeóverk þýska listamannsins Johns Bock. Menning 17.3.2007 11:15
Hví ekki Afríka? Tvær ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu á morgun. Annars vegar er sýning á verkum Katrínar Elvarsdóttur sem hún kallar „Sporlaust“ og hins vegar sýning á ljósmyndum eftir frönsku listakonuna Dominique Darbois og á afrískum skúlptúrum. Sýningin ber yfirskriftina „Hví ekki Afríka?“ Menning 16.3.2007 07:15
Kúbíski Kjarvalinn í danska forvörslu fyrir heimkomu Kjarvalsverkið, sem slegið var fyrir metupphæð á uppboði í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, er ekki komið til landsins. Að sögn Jóhanns Ágústs Hansen listaverkasala fara danskir forverðir um það höndum og verið er að velja ramma við hæfi. Nafn hins raunverulega kaupanda verður gefið upp í fyllingu tímans. Menning 16.3.2007 07:00