Leikjavísir

Ný tegund af PlayStation 3
Ný tegund af PlayStation 3-tölvunni kemur út 1. september. Harði diskurinn hefur verið stækkaður úr 80 GB yfir í 120 GB og öll innri hönnun vélarinnar hefur verið tekin í gegn, sem skilar sér í léttara og minna umfangi.

Tetris er 25 ára
Það var árið 1984 sem þetta góðkunna hugarfóstur sovéska tölvunarfræðingsins Alexey Pajitnov leit dagsins ljós en hann skrifaði frumgerð leiksins á Elektronika 60-tölvu sem flestum þætti víst allforn gripur nú til dags.

Íslenskur tölvuleikur hlaut norrænan styrk
Átta ný verkefni sem tengjast þróun tölvuleikja hlutu styrk í síðustu umferð styrkveitinga úr Norrænu tölvuleikjaáætluninni. Þeirra á meðal er "Vikings of Thule", sem er þróað af Gogogic ehf. á Íslandi fyrir PC. Hlýtur verkefnið 400.000 danskar kr. í styrk eða sem svarar til um 8 milljónum kr..

Sony býst við minni hagnaði
Japanski hátækniframleiðandinn Sony reiknar með rúmlega helmingi minni hagnaði á árinu en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Sterkt jen, samdráttur og verðstríð við helstu keppinauta skýra niðurfærsluna.

Margar hugmyndir á Hugsprettu
Tölvukerfi til að greina umræðu á netinu er meðal þess sem kynnt var á Hugsprettu stefnumótunarfundi ungs fólks um framtíðarmöguleika Íslands sem haldinn var í dag.

Abba SingStar væntanlegur
„Ég held að þetta verði þrefalt eða fjórfalt á við vinsældir fyrri SingStar-diska miðað við gífurlegar vinsældir Mamma mia! og tónlistarinnar úr myndinni,“ Segir Ólafur Þór Jóelsson, vörustjóri tölvuleikja hjá Senu, um nýjasta Singstar-tölvuleikinn sem er væntanlegur á markað um miðjan nóvember. Diskurinn inniheldur 30 vinsælustu lög Abba fyrir Playstation 2 og 3, og geta eigendur þessara leikjatölva því bráðlega sungið með lögum á borð við Mamma Mia, Gimme Gimme Gimme og Dancing Queen.

Hagnaður Sony lækkar mikið
Hagnaður japanska tölvurisans Sony hefur lækkað um nær helming milli ársfjórðunga. Á öðrum ársfjórðungi nam hagnaðurinn um 26 milljörðum kr, en hann var tæplega 50 milljarðar kr. á fyrsta ársfjórðung ársins.

Microsoft hressir upp á Xbox í samkeppninni
Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur ákveðið að þrefalda minnisrými Xbox 360-leikjatölvunnar með það fyrir augum að styrkja stöðu sína gagnvart keppinautunum Nintendo og Sony.

Viltu setjast í stól seðlabankastjóra?
Í myntsafni Seðlabanka Íslands er tölvuleikur þar sem gestir geta spreytt sig á því að sitja í stól bankastjóra Seðlabanka Íslands. Leikmenn fá upplýsingar um gang mála í efnahagslífinu og eiga að bregðast við með því að nota sömu stýritæki og bankastjóri Seðlabanka Íslands hefur á að ráða. Markmið leiksins er að halda verðlagi sem næst verðbólgumarkmiði bankans, sem er sama markmið og Seðlabanki Íslands hefur.


Á kafi í forarpytti Liberty
Hversu langt myndirðu ganga til að ná fram hefndum? Og hvað myndirðu vera tilbúinn til að gera til að upplifa hinn ameríska draum? Þetta eru spurningar sem Nico Bellic, austurevrópskur innflytjandi, þarf að svara við komuna til Ameríku.

Þúsund keyptu leik
Um eitt þúsund manns gerðu sér ferð í Elko og BT í Skeifunni aðfaranótt þriðjudags til að festa kaup á tölvuleiknum Grand Theft Auto IV.



Eldsnöggir að hækka verð á tölvuleikjum
Tölvuleikir hafa hækkað í verði síðan krónan fór á skrið fyrir nokkrum dögum. Í verslunum BT eru þeir nú að meðaltali þrettán prósentum dýrari en 1. mars, samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og leikjasíðunnar GameOver.is. Í Elko hafa þeir hækkað um sex prósent að meðaltali.




CCP margfaldar kúnnahóp sinn
Tölvuleikurinn EVE online verður í næsta mánuði settur í sölu á vefsíðunni steamgames.com en síðan er einn helsti dreifingaraðili á PC-leikjum í heiminum og er meðal annars framleiðandi Counter Strike, eins vinsælasta net-tölvuleikjar heims.

Standa fyrir stefnumótum á Xbox Live
„Við erum aðallega að vinna í því að fá Xbox Live! til landsins, en síðan erum við með ýmislegt fleira planað fyrir næsta ár,“ segir Örvar G. Friðriksson, umsjónarmaður xbox360.is, vefsíðu íslenska Xbox samfélagsins.



„Fundum einu sinni 50 borvélar við húsleit“
Tilkynnt var um þrjú innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eitt innbrot á heimili. Um sjöleytið barst lögreglu tilkynning um innbrot í bíl við Grettisgötu.


Hagnaður Nintendo tvöfaldast
Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði 132,4 milljörðum jena, jafnvirði 70,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum og þriðja ársfjórðungi samanborið við 54,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt betri afkoma en í fyrra.

Nintendo áhugasamt
„Þetta er allt á byrjunarreit en við höfum átt nokkra fundi með forsvarsmönnum Nintendo,“ segir Magnús Scheving, framkvæmdastjóri Latabæjar.


Þrjú hundruð mættu á miðnætursölu Halo 3
Útgáfa skotleiksins Halo 3 fyrir Xbox 360 leikjatölvuna á miðvikudag fór ekki fram hjá neinum tölvuleikjaáhugamanni. Fjöldinn allur af fólki mætti á miðnæturopnun BT til að kaupa leikinn á þriðjudagskvöld, en tollurinn setti strik í reikninginn fyrir suma.

Efstir á óskalistanum
Í hverri viku koma út nýir tölvuleikir fyrir leikjatölvurnar. Sumir vekja litla athygli, en öðrum hafa leikjaáhugamenn beðið eftir árum saman. Fréttablaðið skoðaði þá þrjá leiki sem eru efstir á óskalistanum fyrir Nintendo Wii, Playstation 3og Xbox.