Golf
131 132 133 134 135 136 137 138 139 … 177 ›
Snjallsímar orðnir plága á golfmótum Kylfingurinn Phil Mickelson dró sig úr keppni eftir fyrsta daginn á Memorial-mótinu. Hann kom þá algjörlega brjálaður í hús á 79 höggum. Hann kenndi snjallsímum um slæma spilamennsku sína. Golf 6.6.2012 19:45
Umboðsmaður Tigers keyrði ölvaður Umboðsmaður Tiger Woods, Mark Steinberg, er hæstánægður með gengi skjólstæðings síns og svo mikið að hann ákvað að halda fullvel upp á gengi Tigers um helgina. Golf 4.6.2012 16:15
Sögulegur sigur hjá Tiger | Jafnaði Nicklaus Tiger Woods fór á kostum á lokadegi Memorial-mótsins í kvöld og tryggði sér sögulegan sigur. Þetta var 73. sigur Tigers á PGA-mótaröðinni og hann hefur þar með jafnað sjálfan Jack Nicklaus. Golf 3.6.2012 22:16
Jaidee vann Wales Open Tælendingurinn Thongchai Jaidee hristi af sér slæma byrjun á lokadegi Wales Open og vann mótið með einu höggi. Golf 3.6.2012 19:30
Keyrði 1.500 kílómetra eftir pútter Skotinn Colin Montgomerie mun ekki taka þátt á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann gerði samt sitt besta til þess að komast á mótið og meðal annars gerði sér far eina 1.500 kílómetra eftir pútter. Það gekk ekki. Golf 29.5.2012 15:15
Donald efstur á heimslistanum | 120 milljónir kr. fyrir sigurinn Enski kylfingurinn Luke Donald sigraði á BMW meistaramótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Með sigrinum náði Donald efsta sæti heimslistans á ný og hann fékk um 120 milljónir kr. fyrir sigurinn í verðlaunafé. Donald á enn eftir að landa sigri á einu af risamótunum fjórum sem fram fara árlega og hann ætlar sér að brjóta ísinn sem allra, allra fyrst. Golf 28.5.2012 12:15
Eimskipsmótaröðin: Birgir Leifur sigraði eftir harða baráttu Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG sigraði á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi með glæsilegum lokahring. Birgir lék Hólmsvöllinn í Leiru á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék reyndar betur en Birgir í dag en Guðmundur var nálægt því að jafna vallarmetið. Guðmundur lék á 66 höggum í dag eða 6 höggum undir pari og endaði hann í öðru sæti á -2 samtals. Hlynur Geir Hjartarson varð þriðji á 2 höggum yfir pari vallar samtals. Golf 27.5.2012 19:13
Eimskipsmótaröðin: Þetta var fullkomið golfhögg "Þetta var fullkomið golfhögg,“ sagði Einar Haukur Óskarsson kylfingur úr Keili sem gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. braut Hólmsvallar í Leiru í dag á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Það sem er merkilegt við höggið hjá Einari er að hann er fyrsti kylfingurinn sem nær draumahögginu af hvítum teigum á þessum velli enda er þessi par 3 braut ekkert lamb að leika sér við. Um 210 metra löng Golf 27.5.2012 18:50
Ólafía Þórunn: Sátt við sigurinn | Tekur tíma að komast í íslenska gírinn "Ég er sátt við sigurinn og sérstaklega þar sem ég var með 36 pútt, ég hefði viljað hafa þau færri. Ég er búinn að jafna þetta vallarmet tvisvar og ég var aðeins farin að velta því fyrir mér að reyna að bæta það eftir að hafa verið þrjá undir pari eftir 9 holur,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eftir sigurinn á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi á þessu tímabili. Golf 27.5.2012 17:48
Eimskipsmótaröðin: Ólafía sigraði og jafnaði| vallarmetið á Hólmsvelli Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR sigraði á fyrsta móti keppnistímabilsins á Eimskipsmótaröðinni í golfi í kvennaflokki. Íslandsmeistarinn í höggleik virðist kunna vel við sig á Hólmsvelli í Leiru því hún jafnaði vallarmetið í dag með því að leika á 69 höggum eða 3 höggum undir pari. Golf 27.5.2012 17:12
Eimskipsmótaröðin: Ólafía styrkir stöðu sína | vallarmetið er í hættu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með frábæra stöðu fyrir síðustu 9 holurnar í kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Íslandsmeistarinn lék fyrri 9 holurnar í dag á 33 höggum eða -3 og er hún samtals á +1. Golf 27.5.2012 15:13
Eimskipsmótaröðin: Ísak slakaði á með kærustunni yfir Júróvisjón "Ég eyddi gærkvöldinu bara með kærustunni að fylgjast með Júróvisjón,“ sagði Ísak Jasonarson úr Keili þegar hann mætti til leiks á lokakeppnisdegi fyrsta mótsins á Eimskipsmótaröðinni í golfi á Hólmsvelli í Leiru í dag. Ísak er á 17. aldursári og er ekki með bílpróf en hann er ekkert stressaður yfir því að vera í síðasta ráshópnum í dag með einum reynslumesta kylfing landsins. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Ísak eru jafnir í efsta sæti á 72 höggum en þeir léku báðir á pari Hólmsvallar í Leiru í vondu veðri í gær. Golf 27.5.2012 14:03
Fín veðurspá fyrir lokadaginn á Eimskipsmótaröðinni Veðurspáin fyrir lokadaginn á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi er mun betri en það sem kylfingarnir upplifðu í gær á Hólmsvelli í Leiru. Skor keppenda var frekar hátt á öðrum hringnum en fyrsta umferð mótsins var felld niður á föstudag vegna veðurs. Spáð er 3-4 m/s á sunnudag og sólskini. Síðasti ráshópurinn í kvennaflokknum fer af stað kl. 12.30 en síðasta karlaráshópurinn fer af stað 14.30. Gera má ráð fyrir því að keppni í kvennaflokki ljúki um kl. 17 og tveimur tímum síðar í karlaflokknum. Golf 27.5.2012 09:00
Guðrún Brá: Miklar æfingar í vetur eru að skila árangri Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er í hópi bestu kylfinga landsins í kvennaflokki þrátt fyrir ungan aldur. Guðrún Brá er fædd árið 1994 er því á 18. aldursári en hún er líkleg til afreka á Eimskipsmótaröðinni i golfi sem hófst um helgina á Hólmsvelli í Leiru. Golf 27.5.2012 07:15
Ísak og Birgir Leifur deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Ísak Jasonarson úr Keili deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni á þessu keppnistímabili í íslenska golfinu. Birgir fékk örn (-2) á 18. holuna í dag sem hann lék á 3 höggum. Ísak er aðeins 16 ára gamall og kemur hann með látum inn á fyrsta stigamótið. Theodór Emil Karlsson úr Kili Mosfellsbæ og Ottó Sigurðsson úr GKG eru einu höggi á eftir efstu mönnum en þeir léku báðir á 73 höggum. Golf 26.5.2012 19:44
Ólafía Þórunn efst þegar keppni er hálfnuð Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik kvenna, er í efsta sæti þegar keppni er hálfnuð á fyrsta móti keppnistímabilsins á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Ólafía Þórunn, sem keppir fyrir Golfklúbb Reykjavíkur, lék á 76 höggum í dag eða 4 höggum yfir pari. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék á 79 höggume ða 7 höggum yfir pari og er hún í öðru sæti. Anna Sólveig Tryggvadóttir úr Keili er þriðja á 81 höggi eða 9 höggum yfir pari. Golf 26.5.2012 19:17
Ekki leikið að nýju á Hólmsvelli í dag | keppni hefst að nýju á morgun Vegna veðurs hefur keppni verið hætt á fyrsta keppnisdegi Eimskipsmótaraðarinnar í golfi á Hólmsvelli í Leiru. Keppni var frestað um hádegi og á fundi mótsstjórnar sem hófst kl. 14 í dag var ákveðið að fella niður þessa umferð niður og hefja leik á ný á morgun. Skor keppenda sem hófu leik í dag var fellt niður. Á morgun, laugardag, verða leiknar 18 holur og keppni mun ljúka eins og til stóð á sunnudaginn þar sem leiknar verða 18 holur. Golf 25.5.2012 15:00
Keppni frestað vegna veðurs á Hólmsvelli | mótsstjórn fundar kl. 14 Eimskipsmótaröðin í golfi hófst í morgun á Hólmsvelli í Leiru en gríðarlegt hvassviðri setti svip sinn á skor keppenda sem hófu leik í morgun. Veðrið hefur lítið skánað og mótsstjórn tók þá ákvörðun fyrir skemmstu að fresta leik. Ákvörðun um framhaldið verður tekin að loknum fundi sem hefst kl. 14 í dag. Golf 25.5.2012 12:26
Held markmiðum sumarsins fyrir sjálfa mig „Það verður nóg að gera í sumar og þetta verður spennandi ár," sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG en ætlar að vera með á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem hefst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Golf 25.5.2012 06:00
Birgir Leifur keppir á fyrsta mótinu Eimskipsmótaröðin í golfi hefst um næstu helgi og verður fyrsta mótið af alls sex haldið á Hólmsvelli í Leiru. Allir sterkustu kylfingar landsins verða á meðal keppenda á fyrsta mótinu og þar má nefna atvinnukylfinginn Birgi Leif Hafþórsson úr GKG. Íslenska golfsumarið verður í hávegum haft í sumar og fram á haust á Stöð 2 sport. Golf 23.5.2012 06:00
Stóraukin umfjöllun um golfið á Stöð 2 sport í sumar Íslenska golfsumarið verður í hávegum haft á Stöð 2 Sport í allt sumar og fram á haust. Það hefur verið tryggt með nýjum víðtækum samstarfssamningi milli Stöðvar 2 Sports og GSÍ sem kynntur var á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Golfsambandsins fyrr í dag. Samstarfið felur m.a. í sér beinar útsendingar og ítarlega umfjöllun um Eimskipsmótaröðina, golfíþróttina almennt og allt það sem viðkemur golfiðkun í vikulegum þáttum sem verða á dagskrá í allt sumar. Golf 22.5.2012 17:45
Frábær árangur hjá Guðrúnu Brá á Garðavelli Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur úr GK náði frábærum árangri á Arion-bankamótaröð unglinga sem hófst um helgina á Garðavelli á Akranesi. Guðrún bætti vallarmetið á bláum teigum þegar hún lék á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Hún sigraði í flokki 17-18 ára en Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness sigraði í piltaflokki 17-18 ára. Henning Darri Þórðarson úr Keili náði áhugaverðum árangri í flokki 14 ára yngri en hann lék hringina tvo á samtals -2. Golf 21.5.2012 10:00
Kuchar vann Players-meistaramótið í golfi - fær 217 milljónir Bandaríkjamaðurinn Matt Kuchar tryggði sér sigur á Players-meistaramótið í golfi í gær en mótið fór fram á Ponte Vedra Beach í Flórída. Players-meistaramótið greiðir út hæstu sigurlaunin af öllum golfmótunum og er stundum talað um það sem fimmta risamótið. Golf 14.5.2012 09:45
Birgir Leifur hafnaði í 26.-32. sæti á Allianz-mótinu í Frakklandi Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 26.-32. sæti á opna Allianz-mótinu í Frakklandi í dag en mótið var hluti af áskorendamótaröð Evrópu. Golf 13.5.2012 16:57
Birgir Leifur í ágætum málum Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék á 72 höggum, eða tveim höggum undir pari, á þriðja degi Opna Allianz-mótsins sem fram fer í Frakklandi. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu sem Birgir hefur iðulega tekið þátt í. Golf 12.5.2012 18:06
Tiger komst ekki í gegnum niðurskurðinn Tiger Woods er úr leik á PGA-mótinu sem nú fer fram í Charlotte í Norður-Karólínu. Þetta er hans fyrsta mót eftir Masters-mótið í síðasta mánuði. Golf 5.5.2012 19:30
Dufner fagnaði sínum fyrsta sigri eftir bráðbana gegn Els Jason Dufner fagnaði sínum fyrsta sigri á PGA mótaröðinni í golfi í gær þegar hann hafði betur gegn Ernie Els frá Suður-Afríku í bráðabana á Zurich Classic meistararmótinu. Úrslitin réðust á annarri holu í bráðabananum en þeir léku hringina fjóra samtals á 19 höggum undir pari. Golf 30.4.2012 11:00
Níu metra pútt fyrir erni tryggði Dufner forystuna | Bubba þreyttur Bandaríkjamaðurinn Jason Dufner setti niður níu metra pútt fyrir erni á 18. holunni á PGA-móti í New Orleans í Bandaríkjunum í gær. Púttið tryggði Dufner eins höggs forystu að loknum tveimur keppnisdögum. Golf 28.4.2012 12:30
Ben Curtis á sigurbraut á ný | sex ára bið eftir sigri á enda Bandaríkjamaðurinn Ben Curtis sigraði á Texas meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær og er þetta fyrsti sigur hans í sex ár. Curtis, sem sigraði á opna breska meistaramótinu í fyrstu tilraun árið 2003, var fyrir mótið ekki með keppnisrétta á PGA mótaröðinni eftir afleitt gengi á undanförnum árum. Með sigrinum tryggði hann sér keppnisrétt næstu tvö árin og 140 milljónir kr. í verðlaunafé. Golf 23.4.2012 10:30
Golfvellir landsins koma vel undan vetri Flestir golfvellir landsins koma vel undan vetri og nú styttist í að opnað verði inn á sumarflatir á mörgum þeirra. Forráðamenn Golfklúbbs Reykjavíkur hafa tilkynnt að opnað verði inn á sumarflatir á Grafarholtsvelli þann 1. maí og þann 28. apríl á Garðavelli á Akranesi. Korpúlfsstaðavöllur verður opnaður með formlegum hætti um næstu helgi þar sem að innanfélagsmót fer fram laugardaginn 21. apríl. Golf 19.4.2012 12:45