Innlent
219 220 221 222 223 224 225 226 227 … 334 ›
Sterkir forsetaframbjóðendur geta gjörbreytt stöðunni Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands eða ekki. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í kosningabaráttunni. Innlent 2.4.2024 19:20
„Veit að hún er að hugsa málið“ Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki átta sig á því hvort tal um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hafi orsakað skjálfta í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann segist vita að Katrín sé að velta fyrir sér framboðinu. Innlent 2.4.2024 19:10
Mál vegna falsaðra nektarmynda á borði lögreglu Lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra segir fleira en eitt mál komið á borð lögreglunnar þar sem nektarmyndir falsaðar af gervigreind koma við sögu. Hún segir jafn auðvelt fyrir unglinga að láta búa til slíkar myndir og það er fyrir fullorðið fólk að selja hjól á Facebook. Innlent 2.4.2024 18:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í baráttunni. Heimir Már Pétursson fer yfir stöðuna í kosningabaráttunni í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við þingflokksformann Vinstri Grænna í beinni. Innlent 2.4.2024 18:01
Sér ekki hvernig VG gætu haldið áfram í ríkisstjórn án Katrínar Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sér ekki fyrir sér að Vinstri græn geti áfram setið í ríkisstjórn ef Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra býður sig fram til forseta Íslands. Hún sé límið á milli flokksins og hinna ríkisstjórnarflokkanna. Innlent 2.4.2024 16:53
Aldrei fleiri forsetaefni og nú eða 60 stykki Að sögn Brynhildar Bolladóttur, lögfræðings hjá Landskjörstjórn, hafa aldrei verið fleiri í forsetaframboði en sem stendur eru 60 manns á skrá yfir þá sem nú leita eftir stuðningi. Athygli vekur að af þessum sextíu eru aðeins 16 konur. Innlent 2.4.2024 16:00
Vill kosningar óháð valhoppi Katrínar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að boðað verði til Alþingiskosninga hið fyrsta, óháð því hvort Katrín Jakobsdóttir fari í forsetaframboð eða ekki. Innlent 2.4.2024 15:12
Með 800 grömm af kókaíni innanklæða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega átta hundruð grömm af kókaíni með flugi til landsins í janúar síðastliðinn. Innlent 2.4.2024 14:30
Sjálfstæðismenn funda um mögulegt framboð Katrínar Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að boða þingflokkinn á fund á morgun í ljósi þeirrar óvissu sem er uppi varðandi mögulegt forsetaframboð forsætisráðherra og áhrif þess. Innlent 2.4.2024 14:10
Björgunarsveit kölluð út vegna snjóflóðs við Dalvík Snjóflóð féll í Dýjadal við Dalvík skömmu eftir hádegi. Björgunarsveit var kölluð út en ekkert bendir til þess að fólk hafi orðið undir flóði. Til stóð að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar en útkall hennar var afturkallað. Innlent 2.4.2024 13:47
Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2.4.2024 13:26
Vill stjórnvöld í lið með sér frá fyrsta degi Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur formlega til starfa í dag en hjá stofnuninni starfa um fjörutíu manns. Forstjóri miðstöðvarinnar segir að nýrri stofnun sé ætlað það lykilhlutverk að vera bakland skólastarfs á Íslandi og að miðlægt í öllu starfinu sé þjónustumiðuð nálgun. Innlent 2.4.2024 13:02
Svandísar bíði vantrauststillaga Inga Sæland formaður Flokks fólksins segir að hún muni leggja fram vantrauststillögu á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra þegar þing kemur saman í næstu viku, nú þegar ljóst er að Svandís snýr aftur til starfa eftir veikindaleyfi. Innlent 2.4.2024 12:11
Barðist fyrir starfslokasamningi eftir glímu við „lítinn mann í jakkafötum“ Kona sem lækka átti í tign og í launum hjá Hús- og mannvirkjastofnun eftir að hún sneri aftur til vinnu úr fæðingarorlofi segist hafa mætt alltof mörgum litlum köllum klæddum í of stór jakkaföt í gegnum tíðina. Hún hvetur stjórnendur til að sjá kosti í konum sem snúa til baka eftir fæðingarorlof og gefa þeim tækifæri í stað þess að taka þau af þeim. Innlent 2.4.2024 12:10
Enn ósamið við tugi þúsunda opinberra starfsmanna og samningar lausir Kjarasamningar við aðildarfélög rúmlega fjörutíu þúsund opinberra starfsmanna runnu út nú um mánaðamótin. Formaður BSRB segir viðræðum um nýja samninga miða ágætlega en helst væri tekist á um jöfnun launa á almenna- og opinbera vinnumarkaðnum. Innlent 2.4.2024 11:50
Þarf að bera vitni fyrir framan meintan káfara: Vottorð listmeðferðarfræðings ekki nóg Ung kona þarf að bera vitni fyrir framan mann sem er ákærður fyrir að hafa strokið yfir rass hennar utanklæða á veitingastað þar sem hún var við vinnu. Í staðfestum úrskurði héraðsdóms segir að vottorð listmeðferðarfræðings gefi ekki tilefni til að víkja frá meginreglu um að sakaðar maður fái að hlýða á vitnisburð brotaþola. Innlent 2.4.2024 11:49
Lögregla og ráðherrar hunsa mál forvarnasamtaka Þolinmæði Árna Guðmundssonar er á þrotum en honum verður lítt ágengt í baráttu sinni gegn ólöglegum netverslunum sem höndla með áfengi. Innlent 2.4.2024 11:43
Göng um Öxnadalsheiði: „Snýst um hagsmuni allra“ Að minnsta kosti tvenn gangaverkefni ættu að vera í gangi á hverjum tíma segir bæjarstjóri Akureyrar sem kallar eftir göngum á milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Enn er víða ófært og Öxnadalsheiðin lokuð vegna áreksturs. Innlent 2.4.2024 11:37
Svandís aftur til starfa á morgun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra snýr aftur til starfa á morgun að loknu veikindaleyfi. Svandís greinir sjálf frá þessu í tilkynningu. Innlent 2.4.2024 11:33
Kallar eftir jarðgöngum sem fyrst Í hádegisfréttum verður rætt við bæjarstjórann á Akureyri sem kallar eftir því að tvenn jarðgangaverkefni séu í gangi á hverjum tíma hér á landi en ófærð setti strik í reikninginn hjá fjölmörgum um Páskana. Innlent 2.4.2024 11:31
Enginn handtekinn enn og lögregla þögul sem gröfin Enginn hefur enn verið handtekinn í tengslum við ránið í Hamraborg á mánudag síðustu viku. Lögregla segir rannsókn málsins í gangi en heldur spilunum annars þétt að sér. Innlent 2.4.2024 10:32
Öxnadalsheiði lokuð vegna áreksturs Öxnadalsheiði hefur verið lokuð vegna áreksturs. Innlent 2.4.2024 10:02
Katrín ekki með sigur vísan bjóði hún sig fram Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segist ekki vera viss um að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eigi sigurinn vísan í forsetakosningum bjóði hún sig fram. Hann segir þjóðina vera mikið ólíkindatól þegar það kemur að forsetakosningum. Innlent 2.4.2024 09:58
Hryðjuverkaógn stafi helst af einstaklingum Ríkislögreglustjóri segir að hryðjuverkaógn hér á landi stafi fyrst og fremst af einstaklingum sem aðhyllast öfgahyggju og bera hatur til samfélagsins. Innlent 2.4.2024 09:06
Hleypt á umferð um Öxnadalsheiði um klukkan níu Vegurinn um Öxnadalsheiði er enn lokaður en hleypt verður á umferð upp úr klukkan 09:00. Möguleiki er á að fylgdarakstur verði til að byrja með. Innlent 2.4.2024 08:44
Enn lokað um Öxnadalsheiði Enn er ófært á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars um Öxnadalsheiði fyrir norðan og um Þröskulda fyrir vestan. Innlent 2.4.2024 07:23
Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur. Innlent 2.4.2024 06:45
Bæjarstjóri Akureyrar telur þörf á göngum Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir þurfa að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu. Innlent 1.4.2024 23:28
Börn fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju Verkefnastjóri forvarna hjá borginni segir áhyggjuefni að hópamyndun unglinga við verslunarkjarna og víðar hafi aukist. Neikvæðar hliðar þessa séu ofbeldi og neysla vímuefna. Dæmi séu um að börn hafi fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju. Innlent 1.4.2024 23:00
Öxnadalsheiðin áfram lokuð en Fjarðarheiðin opnaði í kvöld Ekki náðist að opna Öxnadalsheiði í dag en reiknað er með að hún verði opnuð í fyrramálið þegar veður skánar. Vegurinn um Fjarðarheiði opnaði í kvöld eftir að hafa verið lokaður í fjóra daga. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir von á hvelli í kvöld en það veður verði mun skárra á morgun. Innlent 1.4.2024 22:18