Erlent

Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands
Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá.

Leiðtogar Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmana neita að ræða við Biden
Leiðtogar Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmana eru sagðir hafa neitað að eiga samtal við Joe Biden Bandaríkjaforseta á síðustu vikum á sama tíma og Biden og ráðamenn í Evrópu hafa leitað leiða til að draga úr gríðarlegri hækkun olíuverðs.

Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi
Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu.

Tugir fallið í borgum Úkraínu í dag
Tugir hafa fallið í stórskotaliðs- og eldflaugaárásum Rússa á borgir í Úkraínu undanfarinn sólarhring. Rússar hóta að hætta útflutningi á gasi til Þýskalands og annarra evrópuríkja. Bandaríkjaforseti tilkynnti um bann á innflutningi á olíu frá Rússlandi í dag og Bretar ætla að þynna innflutninginn út á árinu. Um tvær milljónir manna hafa flúið Úkraínu.

„Hryllingur að þetta sé að gerast 2022“
Mikið mæðir á sjálfboðaliðum við landamæri Póllands og Úkraínu sem taka á hverjum degi á móti þúsundum flóttafólks.

Eiga von á að Biden banni innflutning á olíu frá Rússlandi
Fastlega er gert ráð fyrir að innflutningsbann á jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi verði hluti af næsta efnahagsþvinganapakka Bandaríkjastjórnar vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem kynntur verður í dag. Blaðamannafundur Joe Biden Bandaríkjaforseta hefst klukkan 15:45.

Bjóða fundarlaun í leitinni að hinum belgíska Theo Hayez
Þremur árum eftir að tilkynnt var um hvarf hins belgíska Theo Hayez í Ástralíu hafa yfirvöld í Nýju Suður-Wales boðið þeim sem kemur með upplýsingar sem leiðir til að málið upplýsist 500 þúsund ástralskra dala, um 50 milljónir króna.

Þorir ekki á flótta með níræða ömmu sína
Anastasiia Komlikova ákvað að halda kyrru fyrir í Úkraínu þegar sprengjuregnið hófst aðfararnótt fimmtudagsins 24. febrúar því hún taldi víst að amma hennar myndi ekki þola ferðalagið að landamærunum.

Tuttugu nú látnir í flóðunum í Ástralíu
Tveir til viðbótar hafa nú látið lífið í flóðunum sem herjað hefur á íbúa austurhluta Ástralíu síðustu vikurnar. Alls hafa tuttugu nú látið lífið vegna flóðanna.

Rússar hóta að skrúfa fyrir gas til Evrópu
Leiðtogar Evrópuríkjanna munu funda í Frakklandi á fimmtudag til að ræða leiðir til að gera álfuna óháða olíu og gasi frá Rússlandi. Þarlendir ráðamenn hafa brugðist við hugmyndum um verslunarbann á olíu með því að hóta að hætta að selja gas til Evrópu.

Vaktin: Telja að Rússar muni brátt reyna að stöðva vopnasendingar til Úkraínu
„Ef hann verður ekki stöðvaður í Úkraínu mun hann ekki láta staðar numið þar,“ sagði Gitanas Nauseda, forseti Litháen, við utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar þeir funduðu í dag um innrás Rússa í Úkraínu. „Árás á einn er árás á alla,“ var svar Antony Blinken.

Eldur í háhýsi í Lundúnum
Slökkviliðið í Lundúnum var með mikinn viðbúnað eftir að eldur kom upp í stóru fjölbýlishúsi í borginni í dag. Eldurinn kviknaði á sautjándu hæð hússins í Whitechapel.

Sex milljón látist á heimsvísu vegna Covid-19
Staðfest dauðsföll af völdum kórónuveirunnar eru nú orðin yfir sex milljón frá upphafi faraldursins, samkvæmt talningu Johns Hopkins háskólans.

Bókstafurinn sem táknar stuðning við innrás Rússa
Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu.

Halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þátttöku Dana í varnarsamstarfi ESB
Dönsk stjórnvöld munu auka framlög sín til varnarmála á næstu árum á þann veg að árið 2033 munu tvö prósent af vergri landsframleiðslu renna til málaflokksins. Þá stendur til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um þátttöku Danmerkur í varnarsamstarfi Evrópusambandsins.

Forsætisráðherra Ástralíu segir stríðið í Úkraínu ögurstundu fyrir Kínverja
Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, hefur varið afstöðu þarlendra stjórnvalda til átakanna í Úkraínu. Hann segir þau munu tala fyrir friðarviðræðum. Samkvæmt New York Times neitar hann að kalla aðgerðir Rússa „innrás“.

Dauðsföll af völdum Covid-19 nálgast sex milljónir
Staðfest dauðsföll af völdum kórónuveirunnar eru nú við það að ná sex milljóna markinu samkvæmt talningu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum. Faraldurinn er því enn ekki að baki þrátt fyrir að samkomutakmarkanir heyri nú söginni til víða.

Rússar boða tímabundið vopnahlé til að greiða fyrir rýmingu fjögurra borga
Interfax fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum innan varnarmálaráðuneytis Rússlands að árásum verði tímabundið hætt og öruggar flóttaleiðir opnaðar fyrir almenna borgara Kænugarðs, Maríupól, Kharkív og Súmí.

„Munum refsa öllum sem framið hafa voðaverk í þessu stríði“
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hélt ávarp í kvöld þar sem hann fordæmdi þögn Vesturlanda við þeim ummælum varnarmálaráðuneytis Rússa að varnarinnviðir Úkraínumanna yrðu sprengdir á morgun.

Bretar skipuleggja frekari þvinganir gagnvart Rússum
Breska þingið mun kjósa um frekari viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum á morgun. Boris Johnson segir að nýjar þvinganir geri Bretum kleift að ganga enn harðar fram.

Almennir borgarar féllu í árás Rússa
Að minnsta kosti þrír almennir borgarar létust þegar sprengjur féllu í bænum Irpin við Kænugarð í dag. Óttast er að fleiri hafi látist.

Leita leiða til að sjá Úkraínumönnum fyrir MiG-herþotum
Bandaríkjamenn skoða nú leiðir til að sjá Úkraínumönnum fyrir herþotum frá Póllandi en ein leiðin væri að Pólverjar sendu nágrannaþjóð sinni þotur gegn því að fá nýjar herþotur frá Bandaríkjunum.

Auðugir Rússar eru aufúsugestir
Þúsundir auðugra Rússa hafa á síðustu árum sest að á Spáni og búa í miklum vellystingum. Grunur leikur á að auð margra þeirra megi rekja til rússnesku mafíunnar. Á sama tíma hafa 15.000 ríkisborgarar Úkraínu sótt um hæli sem flóttamenn, en örfáum úr þeim hópi hefur verið veitt hæli.

Ráðleggingar Erdogan fóru inn um eitt eyra og út um hitt
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hvatti Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag til að lýsa yfir vopnahléi í Úkraínu, hleypa almennum borgurum í öruggt skjól og komast að friðarsamkomulagi við Úkraínumenn.

„Fólk drekkur úr pollunum á götunni“
„Það er ekkert rafmagn, enginn hiti, ekkert símasamband. Þetta er algjör hryllingur,“ hefur New York Times eftir ráðgjafa borgarstjórans í Maríupól um ástandið í borginni.

Johnson leggur fram aðgerðaáætlun til að sigra Pútín
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hefur lagt til áætlun til að sigra Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Áætlunin er í sex liðum og felst meðal annars í því að styrkja varnir Atlantshafsbandalagsins.

Vaktin: „Þeir munu ekki eiga friðsælan stað á þessari jörðu“
Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í Úkraínu, þar sem Úkraínumenn freista þess nú að verja nokkrar lykilborgir á sama tíma og Rússar sækja hart fram.

Beina sjónum sínum að íbúðabyggð til að brjóta Úkraínumenn niður
Kænugarður virðist vera aðalskotmark rússneskra hersveita að sögn yfirmanna úkraínska hersins en harðar árásir hafa einnig verið gerðar á Kharkív og Mykolaív síðasta sólahring.

Visa og Mastercard loka á Rússa
Visa og Mastercard hafa tilkynnt að þau muni loka á viðskipti Rússa erlendis sem og notkun erlendra aðila í Rússlandi.

Segir Pútín hafa ætlað að bíða þar til Trump losaði sig við NATO
Fyrrum öryggisráðgjafi Donald Trump sagði í viðtali í dag að hann telji að Vladimir Pútín hafi ætlað sér að bíða með innrás í Úkraínu þar til Trump yrði endurkjörinn og myndi draga Bandaríkin úr NATO.