Erlent
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
Harry og Elton viðstaddir fyrirtöku hópmálssóknar gegn Daily Mail Harry Bretaprins og Elton John voru meðal viðstaddra þegar dómstóll í Lundúnum tók fyrir hópmálsókn gegn Associated Newspapers, sem á meðal annars og gefur út Daily Mail. Erlent 28.3.2023 10:58
Webb mældi hitastig á innstu reikistjörnu Trappist Hitastigið á dagshlið fjarreikistjörnunnar Trappist-1 b nær um 230 gráðum og gefur það til kynna að ekkert andrúmsloft sé þar að finna. Þetta segja meðlimir alþjóðlegs teymis vísindamanna sem beindu öflugum linsum James Webb geimsjónaukans (JWST) að fjarreikistjörnunni. Erlent 28.3.2023 10:24
Trump með 25 prósent forskot á DeSantis á landsvísu Donald Trump mælist nú með 50 prósenta fylgi á landsvísu en Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, með 24 prósent. DeSantis farnast hins vegar betur í Iowa og New Hampshire, þar sem fyrst verður gengið til atkvæða í forkosningum forsetakosninganna. Erlent 28.3.2023 08:16
Árásin þaulskipulögð og skotmörkin mögulega fleiri Hinn 28 ára Audrey E. Hale, sem réðist inn í Covenant School í Green Hills í Nashville í gær og skaut sex til bana skipulagði árásina í þaula og hugðist láta til skarar skríða á fleiri stöðum, að sögn lögreglu. Erlent 28.3.2023 07:05
Netanyahu frestar málinu og segist ætla í viðræður við andstöðuna Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur ákveðið að fresta umræðum um afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla fram að næsta þingi. Segist hann í millitíðinni munu freista þess að ná samkomulagi um málið við pólitíska andstæðinga. Erlent 28.3.2023 06:29
Keyrði yfir dekk og skaust upp í loft Ótrúlegt er að ekki fór verr þegar bíll flaug upp í loft á hraðbraut í Los Angeles á dögunum. Bíllinn skaust upp í loft eftir að hafa orðið fyrir dekki sem datt af öðrum bíl á hraðbrautinni. Þrátt fyrir að slysið hafi verið harkalegt þá slasaðist enginn alvarlega samkvæmt lögreglunni í Los Angeles. Erlent 27.3.2023 23:40
Kona skaut sex til bana í skóla í Nashville Þrjú börn og þrír fullorðnir voru skotin til bana af konu sem hóf skothríð í kristnum einkaskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Konan var síðan skotin til bana af lögregluþjónum sem mættu á vettvang. Erlent 27.3.2023 16:25
Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka. Erlent 27.3.2023 15:36
Bola Corbyn út úr Verkamannaflokknum Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, ætlar að leggja fram tillögu á aðalfundi flokksins á morgun sem ætlað er að koma í veg fyrir að Jeremy Corbyn, fyrrverandi leiðtogi flokksins, megi bjóða sig fram til þings í næstu kosningum. Corbyn segist ekki ætla að hverfa af sjónarsviðinu. Erlent 27.3.2023 14:28
Humza Yousaf tekur við af Sturgeon Humza Yousaf mun taka við sem fyrsti ráðherra Skotlands af Nicola Sturgeon sem sagði af sér fyrir rúmum mánuði síðan. Atkvæðagreiðsla um skipun hans fer fram á þinginu á morgun. Erlent 27.3.2023 13:42
Spá því að mannfjöldinn toppi lægra og fyrr en áður var talið Niðurstöður nýrrar rannsóknar virðast benda til þess að „mannfjöldasprengjan“ muni ekki springa, heldur muni mannfjöldinn toppa lægra og fyrr en áður var talið. Erlent 27.3.2023 10:40
Myndefni sýnir gífurlega eyðileggingu í Mississippi Hvirfilbylir ollu gídurlegum skemmdum víða í Mississippi og Alabama í Bandaríkjunum en minnst 25 eru látnir og fjölmargir eru særðir. Eyðileggingin er hvað mest í bænum Rolling Fork í Mississippi þar sem myndefni sýnir hvernig stærðarinnar hvirfilbylur fór þvert í gegnum bæinn. Erlent 27.3.2023 10:40
Samgöngustarfsmenn í allsherjarverkfall vegna verðbólgunnar Þjóðverjar búa sig undir verulegar raskanir á samgöngum í dag þegar starfsmenn almenningssamgangna leggja niður störf í 24 klukkustundir til að krefjast hærri launa vegna hækkandi verðbólgu. Erlent 27.3.2023 08:40
„Augu heimsbyggðarinnar eru á ykkur“: Forsetinn biðlar til ráðamanna að sýna á ábyrgð Isaac Herzog, forseti Ísrael, hefur kallað eftir því að hætt verði við afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla. Tugþúsundir Ísraelsmanna flykktust út á götur í gær eftir að forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu lét varnarmálaráðherrann fjúka vegna málsins. Erlent 27.3.2023 07:19
Netanjahú „ekki í tengslum við raunveruleikann“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, rak varnarmálaráðherrann Yoav Galant í dag eftir að hinn síðarnefndi kallaði eftir því að hætt verði við umdeildar breytingar á dómskerfi landsins. Staða hans er talin í hættu eftir vendingarnar. Erlent 26.3.2023 22:36
NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. Erlent 26.3.2023 16:10
Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. Erlent 26.3.2023 14:30
Leiðtogi repúblikana laus úr endurhæfingu eftir fall Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, er kominn heim til sín af endurhæfingarstöð eftir að hann fékk heilahristing þegar hann féll fyrr í þessum mánuði. Hann segist ætla mæta aftur í þingið bráðlega. Erlent 26.3.2023 11:28
Trump hóf kosningabaráttuna með kór uppreisnarmanna Fyrsti fjöldafundur kosningabaráttu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hófst með söng kórs stuðningsmanna hans sem voru fangelsaðir fyrir að ráðast á þinghúsið fyrir tveimur árum. Trump eyddi stórum hluta fundarins í að níða saksóknara sem rannsaka hann. Erlent 26.3.2023 10:14
Óttast að umdeildar breytingar ógni öryggi Ísraels Varnarmálaráðherra Ísraels hvatti ríkisstjórnina til þess að hætta við umdeildar breytingar á dómstólum landsins í gær. Hann óttast að hatrammar deilur um breytingarnar ógni þjóðaröryggi landsins. Erlent 26.3.2023 09:13
ESB lætur undan Þjóðverjum með bann við bensín- og dísilbílum Evrópusambandið og Þýskaland hafa náð samkomulagi um framtíð jarðefnaeldsneytisbíla í Evrópu. Þjóðverjar fá í gegn að undantekningar verði á banni við sölu á nýjum bensín- og dísilknúnum bílum eftir árið 2035. Umhverfissamtök fordæma málamiðlunina. Erlent 26.3.2023 07:39
Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda. Erlent 25.3.2023 20:26
Gríðarleg eyðilegging í Mississippi Að minnsta kosti 24 eru látnir eftir kraftmikinn hvirfilbyl sem herjaði á Missisippi í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þúsundir eru án rafmagns og stendur leit að fólki í húsarústum yfir. Óveðrið er hið mannskæðasta í tólf ár. Erlent 25.3.2023 20:04
Stefnir stuðningsmönnum til Waco í skugga yfirvofandi ákæru Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda sinn fyrsta fjöldafund í kosningabaráttu sinni í borginni Waco í Texas í dag. Hann hefur undanfarna daga hvatt stuðningsmenn sína til mótmæla og hótað ofbeldi vegna mögulegra ákæra sem hann á yfir höfði sér. Erlent 25.3.2023 11:35
Íslendingur í átta ára fangelsi fyrir nauðgun og gróft ofbeldi í Svíþjóð Íslenskur ríkisborgari á fertugsaldri sem hefur þó verið búsettur í Svíþjóð allt sitt líf var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga ungri konu og beita hana grófu ofbeldi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn hefur ítrekað verið dæmdur fyrir kynferðisofbeldi í Svíþjóð. Erlent 25.3.2023 10:36
Hneykslaðir foreldrar hröktu skólastjóra burt vegna Davíðsstyttunnar Skólastjóri grunnskóla í Flórída í Bandaríkjunum sá sér þann kost vænstan að segja af sér vegna kvartana foreldra undan því að börnum þeirra hafi verið sýnt klám þegar þau sáu myndir af Davíðsstyttunni við kennslu í listasögu. Erlent 25.3.2023 08:55
Þrjár ungar stúlkur ákærðar fyrir líkamsárás og frelsissviptingu Þrjár stúlkur, tólf, þrettán og fjórtán ára, hafa verið ákærðar fyrir að hafa tælt þrettán ára stelpu á ótilgreint heimili í Ástralíu, svipt hana frelsi sínu og beitt hana ofbeldi. Athæfið mun hafa verið tekið upp á myndband. Erlent 24.3.2023 23:10
Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin. Erlent 24.3.2023 16:29
Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra. Erlent 24.3.2023 14:35
Paltrow ber vitni í dag Gwyneth Paltrow og Terry Sanderson, sem höfðað hefur mál gegn henni vegna atviks þar sem hann braut fjögur rifbein í skíðabrekku í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 munu líklega bæði bera vitni í dag. Réttarhöldin í þessu máli hófust í vikunni en Sanderson sakar Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum svo hann hafi brotið rifbein og hlotið heilaskaða. Erlent 24.3.2023 11:58