Duterte sakaður um glæpi gegn mannkyninu og handtekinn í Manila Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. mars 2025 06:32 Duterte prófar kínverskan riffil árið 2017. AP/Bullit Marquez Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, var handtekinn í Manila í gær eftir að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf út handtökuskipun á hendur honum.
Duterte hefur verið sakaður um glæpi gegn mannkyninu vegna „stríðs“ hans gegn fíkniefnum, þar sem talið er að allt að 30 þúsund manns hafi verið drepnir. Duterte tók við forsetaembættinu árið 2016 eftir að hafa heitið því að útrýma fíkniefnum í landinu. Sagði hann meðal annars að svo mörgum líkum yrði hent í Manila-flóa að fiskarnir þar yrðu feitir og eftir að hann varð forseti sagðist hann sjálfur myndu myrða fíkniefnasala og hvatti landsmenn til að drepa fíkla. Margir af þeim 30 þúsund sem létu lífið á meðan Duterte var forseti voru skotnir úti á götu. Myndskeið hefur verið birt sem virðist sýna handtöku Duterte um borð í flugvél. Þar segir hann að lögregla verði hreinlega að drepa hann; hann ætli ekki að láta undan „hvítum útlendingum“. Áður hafði hann hins vegar sagt að ef hann yrði handtekinn þá myndi hann sætta sig við það. Duterte er enn áhrifamikill á Filippseyjum en dóttir hans Sara er varaforseti landsins. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Filippseyjar Erlend sakamál Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Sjá meira