Fótbolti

Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík
Keflvíkingar hafa sótt sér leikmann hinum megin við lækinn því þeir hafa gengið frá kaupum á bakverði nágranna sinna úr Njarðvík.

Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum
Franska stórblaðið L'Équipe hefur miklar áhyggjur af besta fótboltamanni Frakka, það er manninum sem átti að vera einn sá besti í heimi en hefur hvorki verið fugl né fiskur á síðustu vikum.

Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna
Goal í Bandaríkjunum fjallar um hinn bandaríska-íslenska William Cole Campbell og býst við miklu af stráknum í framtíðinni.

Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“
Rúben Amorim fagnaði sínum fyrsta sigri sem knattspyrnustjóri Manchester United þegar liðið lagði Bodø/Glimt að velli, 3-2, í Evrópudeildinni í kvöld. Portúgalinn var ánægður með viðtökurnar sem hann fékk í fyrsta leik sínum á Old Trafford.

Erfitt kvöld hjá Íslendingunum
Elías Rafn Ólafsson, Kristian Nökkvi Hlynsson og Andri Lucas Guðjohnsen þurftu allir að sætta sig við töp í Evrópu- og Sambandsdeildinni í kvöld.

Hummels kom Rómverjum til bjargar
Þýski reynsluboltinn Mats Hummels tryggði Roma stig gegn Tottenham í Evrópudeildinni í kvöld. Lokatölur 2-2.

Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims
Manchester United vann sinn fyrsta leik undir stjórn Rúbens Amorim þegar liðið bar sigurorð af Bodø/Glimt, 3-2, í Evrópudeildinni í kvöld.

„Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“
Gísli Gottskálk Þórðarson batt saman bæði varnar- og sóknarleik Víkings inni á miðjunni hjá Víkingi þegar liðið leiddi saman hesta sína við FC Noah í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta karla í kvöld.

„Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“
Aron Elís Þrándarson spilaði einkar vel inni á miðsvæðinu hjá Víkingi sem fer með eitt stig í farteskinu úr viðureign sinni við FC Noah í Jerevan í fjórðu umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld.

„Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“
Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var sáttur við að ná í stig til Jerevan þegar lærisveinar hans sóttu FC Noah heim í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins
Panathinaikos vann sinn fyrsta sigur í Sambandsdeildinni í vetur þegar liðið lagði HJK að velli, 1-0, á heimavelli í kvöld.

Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga
Chelsea er enn með fullt hús stiga í Sambandsdeild Evrópu eftir 0-2 útisigur á Heidenheim í kvöld.

Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan
Víkingur gerði markalaust jafntefli við FC Noah þegar liðin áttust við í fjórðu umferði í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í Jerevan í Armeníu í kvöld. Víkingur hefur sjö stig eftir fjóra leik og situr í 16. sæti deildarinnar.

Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta stendur í stað á nýjum heimslista FIFA sem birtur var í dag. Liðið er í 70. sæti, eða í 33. sæti ef aðeins er horft til Evrópuþjóða.

Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra
Það kostaði enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United því sem nemur rúmum 1,7 milljarði íslenskra króna að reka knattspyrnustjórann Erik ten Hag og starfslið hans frá félaginu. Ef litið er á kostnað félagsins við starfslok knattspyrnustjóra frá stjóratíð Sir Alex Ferguson kemur í ljós margra milljarða reikningur.

Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum
Hundrað milljón krónur, tækifæri á umspili og þar með leiktíð fram í febrúar, og möguleiki á að tryggja Íslandi sæti í undankeppni Evrópudeildarinnar. Það er afskaplega mikið í húfi hjá Víkingum í Armeníu í dag, í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta.

Mbappé fékk tvo í einkunn
Kylian Mbappé átti ekki sinn besta leik þegar Real Madrid laut í lægra haldi fyrir Liverpool, 2-0, í Meistaradeild Evrópu í gær og fékk enga miskunn í frönskum fjölmiðlum.

Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld
Armenska félagið FC Noah tekur á móti Víkingum í Sambandsdeildinni í kvöld en leikurinn er gríðarlega mikilvægur í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni.

Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica
Liverpool vann Real Madrid og PSV Eindhoven og Benfica áttu magnaðar endurkomur í Meistaradeild Evrópu í gær. Alls voru 27 mörk skoruð í Meistaradeildinni í gær en eitt þeirra var með skrautlegri sjálfsmörkum seinni ára. Öll mörkin má sjá í fréttinni.

Ráða njósnara á Íslandi
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur ráðið Vigfús Jósefsson sem njósnara á Íslandi. Frá þessu greinir félagið í yfirlýsingu á heimasíðu sinni.

Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid
Liverpool hélt sigurgöngu sinni áfram í Meistaradeildinni í gær þegar liðið fékk Evrópumeistara Real Madrid í heimsókn á Anfield.

Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól
Kaveh Solhekol, fréttamaður Sky Sports, er með nýjustu fréttirnar af meintum brotum Manchester City á rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Réttarhöldin yfir Manchester City hafa verið í gangi í næstum því þrjá mánuði.

Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið saman á Spáni en liðið mætir þar Kanada og Danmörku í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum.

Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina
Breskir og hollenskir miðlar segja frá því að Ruud Van Nistelrooy verði næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City.

Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins
Hinn 31 árs gamli Mauro Icardi var á sínum tíma einn heitasti framherji Evrópu, innan vallar sem utan. Undanfarin misseri hefur hann hins vegar verið meira í fréttum vegna ástarmála sinna heldur en vegna frammistöðu á knattspyrnuvellinum.

„Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“
Caoimhin Kelleher hafði kannski ekki mikið að gera í marki Liverpool í kvöld þegar liðið frá Bítlaborginni lagði Evrópumeistara Real Madríd 2-0 og er því enn með fullt hús stiga á toppi Meistaradeildar Evrópu.

Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri
Hákon Arnar Haraldsson lék síðustu mínúturnar í frábærum 2-1 útisigri Lille á Bologna. Landsliðsmaðurinn hefur verið að glíma við meiðsli undnafarnar vikur eftir að meiðast á æfingu með íslenska landsliðinu.

Yamal Gulldrengur ársins og López Gullstúlka ársins
Lamine Yamal, leikmaður Barcelona og spænska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur hlotið nafnbótina Gulldrengur (e. Golden Boy) ársins eftir vasklega frammistöðu sína á liðnu ári.

Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst
Gott gengi lærisveina Arne Slot hjá Liverpool virðist engan endi ætla að taka. Í kvöld vann Rauði herinn sannfærandi 2-0 sigur á Real Madríd þar sem bæði liðin brenndu af vítaspyrnu. Gestirnir frá Madríd eru hins vegar í vondum málum eftir þrjú töp í fimm leikjum.

Dramatík á Villa Park
Morgan Rogers hélt hann hefði tryggt Aston Villa dramatískan sigur á Juventus með marki í uppbótartíma þegar liðin mættust í Meistaradeild Evrópu. Markið var hins vegar dæmt af og leiknum lauk með markalausu jafntefli.