Monaco riftir samning við Pogba Andri Broddason skrifar 19. ágúst 2026 15:17 Paul Pogba skrifaði undir samning við AS Monaco eftir að hafa ekki spilað í átján mánuði en samningi hans við félagið var rift. EPA/SEBASTIEN NOGIER AS Monaco hefur formlega rift samningi sínum við franska leikmanninn Paul Pogba. Hann gekk til liðs við félagið síðasta sumar eftir að hafa verið í banni fyrir að falla á lyfjaprófi.
Í dag tilkynnti AS Monaco að félagið væri búið að rifta samningi við leikmanninn Paul Pogba. Hann skrifaði undir samning við félagið síðasta sumar og átti samningurinn að gilda til ársins 2027. Ástæðan fyrir því að samningnum hefur verið rift er vegna þess að Paul Pogba hefur ekki enn náð leikformi eftir að hafa verið hjá félaginu í heilt ár. Meiðsli á óheppilegum tímum hafa sett strik í reikninginn og náði hann aðeins að spila í 45 mínútur á undirbúningstímabilinu í sumar. Í september 2023 var Paul Pogba leikmaður Juventus á Ítalíu en féll þar á lyfjaprófi. Hann fór því í átján mánaða bann og meðan á því stóð losaði Juventus hann af samningi. Sumarið 2025 skrifaði hann undir samning við AS Monaco og virtist allt vera að fara í rétta átt. Nú er Pogba hins vegar aftur orðinn liðalaus. AS Monaco þakkar Pogba fyrir sín störf þar sem hann sýndi ávallt gott hugarfar og hjálpaði öðrum leikmönnum að standa sig betur á æfingu. Öll vinnan sem hann lagði á sig utan vallar sýndi sig í hverri mínútu sem hann spilaði eftir langan tíma frá fótbolta. Á síðasta tímabili tók Pogba þátt í sex leikjum í frönsku úrvalsdeildinni og byrjaði aðeins einn þeirra. Hann náði aðeins að spila 115 mínútur.
Franski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira