Fréttir
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 334 ›
Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. Innlent 22.7.2026 11:33
Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vólódímír Selenskí rak í gær yfirherforingja Úkraínu og skipaði nýjan. Það gerði hann í kjölfar umfangsmikilla mótmæla eftir að hann rak varnarmálaráðherra landsins. Forsetinn segir frekari breytingar í vændum á næstu dögum. Erlent 22.7.2026 10:19
Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunar um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefst þann 27. júlí. Innlent 22.7.2026 10:18
Bandero innan lögsögunnar á ný Bandero, skip í eigu Paul Watson-samtakanna, er aftur innan íslenskrar efnahagslögsögu eftir að hafa snúið til Írlands vegna veikinda skipverja. Innlent 22.7.2026 10:03
Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið. Innlent 22.7.2026 09:09
Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom. Erlent 22.7.2026 08:49
Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Franska þingið samþykkti í gærkvöld frumvarp sem bannar samfélagsmiðlanotkun barna yngri en fimmtán ára. Þannig eru Frakkar orðnir fyrsta Evrópusambandsríkið til að taka upp slíkt bann. Erlent 22.7.2026 08:44
Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Eigandi veitingastaðar í Suður-Kóreu hefur verið ákærður fyrir notkun maura í matreiðslu. Hann á yfir höfði sér eins árs fangelsi og tveggja milljóna króna sekt. Athygli vekur að staðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er með tvær Michelin-stjörnur. Erlent 22.7.2026 08:23
Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Íbúar á Suður- og Suðvesturlandi geta búist við meiri rigningu og úrkomu í dag heldur en í gær. Það tekur til að rigna á Austurlandi seinnipartinn. Veðurstofan hefur gefið út viðvörun á Snæfellsnesi. Veður 22.7.2026 08:15
Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Bandaríkjastjórn mun greina frá því í dag að hún hafi komist að samkomulagi við stjórnvöld í Sádi Arabíu um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Það er sagt geta leitt til úranauðgunar í Sádi Arabíu. Erlent 22.7.2026 07:51
Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. Erlent 22.7.2026 06:56
Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Kári Stefánsson segir netsölu áfengis auka aðgengi að áfengi og því án nokkurs vafa auka neyslu þess en búi einnig til veikleika fyrir þá sem eiga við áfengisvanda að stríða. Kostnaður í heilbrigðiskerfinu sem rekja megi beint til áfengisneyslu nemi hundrað milljörðum ár hvert en áfengi sé eitt versta fíkniefni samfélagsins. Hann segir vel þess virði að fórna svolitlu frelsi þegar kemur að áfengissölu til að vernda fólk sem eigi undir högg að sækja. Innlent 22.7.2026 00:14
Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur vikið yfirhershöfðingja landsins, Oleksander Sirskí, úr starfi. Erlent 21.7.2026 23:04
Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði Regnbogafáninn verður málaður aftur á tröppur Grafarvogskirkju þegar veður leyfir segir sóknarprestur kirkjunnar. Sóknarnefnd tók ákvörðun um það á fundi í dag að tröppurnar verði málaðar á ný, en með breyttu sniði. Skemmdarverk á tröppunum í byrjun júlí hafi reynst kirkjunni afar dýrkeypt en það hafi verið í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið unnin á lóð kirkjunnar. Innlent 21.7.2026 22:37
„Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng hér á landi síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir of lítið hlutfall þeirra sem lenda í ástarsvikum leita sér hjálpar. Þolendur geti misst aleiguna og skuldsett sig um margar milljónir. Innlent 21.7.2026 21:50
„Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Sviðsstjóri hjá Minjastofnun biður borgina um að flýta sér hægt áður en hún rífur niður áhorfendastúkuna í Laugardalslaug. Stúkan hafi mikið varðveislugildi út frá menningarsögu Íslands, en hann tekur þó fram að mannvirkið verði ekki endurbyggt nema því verði gefið nýtt hlutverk. Hann vill að Laugardalslaugin verði áfram skilgreind sem almenningsmannvirki fyrir borgarbúa, en verði ekki „eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“. Innlent 21.7.2026 21:41
Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Skipið Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, stefnir í átt að Íslandi á ný. Skipið er statt „djúpt“ suðaustur af landinu en Landhelgisgæslan áætlar komu þess í íslenska efnahagslögsögu klukkan ellefu í kvöld. Innlent 21.7.2026 21:15
Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar. Innlent 21.7.2026 21:00
Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins stafar líklega af fylgistreymi frá Miðflokknum að sögn stjórmálafræðings. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar hafi haldist heldur stöðugt en miklar hreyfingar séu á fylgi innan stjórnarandstöðunnar. Innlent 21.7.2026 20:45
Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Framkvæmdastjóri True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon. Innlent 21.7.2026 19:30
Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. Erlent 21.7.2026 18:52
Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og er stærsti flokkurinn í könnunum fyrirtækisins í fyrsta sinn í hálft annað ár. Samfylkingin mælist skammt á eftir með 24,4 prósent. Innlent 21.7.2026 18:30
Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Mikil tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokkanna. Greint verður frá niðurstöðunum í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. Innlent 21.7.2026 18:00
Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. Innlent 21.7.2026 17:54
Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í vesturbæ Reykjavíkur um aðfaranótt mánudags og peningum stolið. Það er í annað skipti sem brotist er inn á staðinn á skömmum tíma. Innlent 21.7.2026 16:22
Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir Landspítalann nú hafa auglýst starf hans aftur eftir að hafa lagt það niður. Formleg skýring stjórnenda spítalans á uppsögn hans var að leggja átti starf hans niður vegna hagræðingar í rekstri. Innlent 21.7.2026 15:50
Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum. Erlent 21.7.2026 15:42
Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform). Erlent 21.7.2026 14:50
Flugmennirnir sviptir flugréttindum Tveir flugmenn voru sviptir flugréttindum tímabundið, annar í eitt ár og hinn í tvö, fyrir að hafa flogið flugvél Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjar þann ellefta apríl. Innlent 21.7.2026 14:30
Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Varaformaður verður Birna Einarsdóttir, áður bankastjóri Íslandsbanka árin 2008 til 2023. Innlent 21.7.2026 13:41