Fréttir
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 334 ›
Heimiliskötturinn drepinn við kjallaratröppurnar Fólk í Langholtshverfi er varað við því í íbúahópi, að hundar gangi nú lausir og drepi ketti. Innlent 9.12.2024 21:49
Þetta er maðurinn sem er grunaður um launmorðið Maður sem er grunaður um launmorð á götum New York-borgar í síðustu viku heitir Luigi Mangione. Hann var handtekinn í borginni Altoona í Pennsylvaníuríki í dag vegna meintra vopnalagabrota. Hann sást á skyndibitastaðnum McDonalds þar sem hann var með handskrifaða stefnuyfirlýsingu í fórum sér þar sem sjúkratryggingafyrirtæki eru harðlega gagnrýnd. Erlent 9.12.2024 21:04
Börnum fanga er hættara á að lenda í fangelsi Börn fanga eru líklegri en önnur börn að fara í fangelsi á fullorðins árum segir formaður Afstöðu, félags fanga. Nú erum um sextíu fangar á Litla Hrauni, allt karlmenn, en þar var verið að opna nýjan meðferðargang fyrir þá fanga, sem vilja vera vímuefnalausir í fangelsinu. Innlent 9.12.2024 20:07
Skírðu dóttur sína eftir ósk um frið í heimalandinu Sýrlenskur maður sem hefur búið hér á landi í sjö ár segir ólýsanlegan létti að grimmilegri valdatíð Bashar al-Assad Sýrlandsforseta sé loks lokið. Hann vonar innilega að friður komist nú á í heimalandi sínu og skírði af því tilefni nýfædda dóttur sína Salam sem þýðir friður. Innlent 9.12.2024 20:01
Rafmagnið datt aftur út í Vík og komst svo aftur í lag Uppúr klukkan sex í kvöld komst aftur á rafmagn í Vík og að Brekku í Mýrdal, og klukkan uppúr sjö náðist að koma rafmagni á frá Brekku að Ytri-Sólheimum. Innlent 9.12.2024 20:00
Heidelberg hvergi af baki dottið Þorsteinn Víglundsson talsmaður mölunarverksmiðjunnar Heidelberg segir niðurstöðu íbúakosningar i Ölfusi, um starfsleyfi fyrirtækisins vera vonbrigði. Fyrirtækið er aftur á móti hvergi af baki dottið og mun leita að öðrum stað til móbergsmölunar hér á landi. Innlent 9.12.2024 19:29
Vonar að ný stjórn verði komin fyrir jól Inga Sæland formaður Flokks fólksins er bjartsýn á að ný ríkisstjórn hennar flokks, Samfylkingar og Viðreisnar verði tekin við völdum fyrir jól. Vel hafi gengið í viðræðum og nokkur ágreiningsefni nú þegar verið leyst. Innlent 9.12.2024 19:20
Íbúar hafna mölunarverksmiðjunni með afgerandi hætti Íbúar í Ölfusi hafa með afgerandi hætti hafnað því að veita fyrirtækinu Heidelberg Matarials starfsleyfi í Þorlákshöfn. Oddvita minnihlutans er mjög létt, og bæjarstjóri fagnar því að niðurstaðan sé skýr. Innlent 9.12.2024 18:41
Ný ríkisstjórn fyrir jól? Inga Sæland formaður Flokks fólksins er bjartsýn á að ný ríkisstjórn hennar flokks, Samfylkingar og Viðreisnar verði tekin við völdum fyrir jól. Vel hafi gengið í viðræðum. Innlent 9.12.2024 18:11
Í skýrslutöku í tengslum við morðið í New York Maður er í skýrslutöku hjá lögreglunni vestanhafs í tengslum við rannsókn á launmorði á götum New York á dögunum sem beindist að einum forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrrirtækis Bandaríkjanna. Erlent 9.12.2024 17:22
Kærastinn fær áheyrn í Menningarnæturmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að taka fyrir skaðabótakröfu pilts í Menningarnæturmálinu svokallaða. Héraðsdómur hafði áður vísað kröfunni frá dómi, en Landsréttur hefur vísað málinu aftur í hérað. Innlent 9.12.2024 17:06
Ögurstund í Þorlákshöfn í kvöld Íbúakosningu í Ölfusi um hvort Heidelberg fái að byggja mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn lauk formlega klukkan fjögur síðdegis. Íbúakosning hófst þann 25. nóvember en íbúum gafst þá einnig kostur á að greiða atkvæði um málið samhliða kosningum til Alþingis 30. nóvember. Innlent 9.12.2024 16:53
Laugarneshverfi verður áfram eitt skólahverfi Skóla- og frístundaráð hefur fallið frá hugmyndum sínum um að skipta Laugarneshverfi upp í nokkur skólahverfi. Þess í stað hefur verið ákveðið að hverfið verði enn eitt skólahverfi, að sett verði upp skólaþorp á meðan Laugarnesskóli er lagaður og að byggður verði nýr safnskóli fyrir elstu börnin. Innlent 9.12.2024 16:31
Ríkið þarf að endurgreiða borginni milljónir Hæstiréttur hefur fellt ákvarðanir Persónuverndar vegna notkunar Reykavíkurborgar á Seesaw-nemendakerfisins í grunnskólum borgarinnar úr gildi að hluta. Íslenska ríkið þarf að endurgreiða borginni fimm milljóna króna stjórnvaldssekt sem Persónuvernd lagði á hana. Innlent 9.12.2024 16:13
Norski hryðjuverkamaðurinn telur brotið á sér í fangelsi Lögmaður Anders Behring Breivik, norska hryðjuverkamannsins og fjöldamorðingjans, sakar norska ríkið um að brjóta á mannréttindum hans í fangelsinu þar sem hann dvelur. Verði stjórnvöld ekki við kröfum hans um úrbætur gæti hann skotið málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu. Erlent 9.12.2024 15:52
Myrtu fleiri en hundrað meintar nornir og galdrakarla Að minnsta kosti 110 manns voru myrtir í einhverju fátækasta hverfi Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, í nýlegu ódæði. Glæpamenn eru sagðir hafa myrt fólkið eftir að leiðtogi glæpagengis varð sannfærður um að galdrar hefðu valdið banvænum veikindum sonar hans. Erlent 9.12.2024 15:30
Tólf ára fangelsi fyrir manndráp á Akureyri Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir að verða sambýliskonu og barnsmóður sinni um fimmtugt að bana á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl. Innlent 9.12.2024 15:27
Ákærður fyrir að bana dóttur sinni Sigurður Fannar Þórsson hefur verið ákærður fyrir að ráða dóttur sinni bana í september. Innlent 9.12.2024 15:01
Handtóku vopnaðan málaliðahóp í Rúmeníu Rúmenska lögreglan stöðvaði för um tuttugu manna til Búkarest um helgina, þar á meðal vopnaðan leiðtoga málaliðahóps. Talið er að hópurinn hafi ætlað að ógna stjórnmálamönnum og hleypa upp mótmælum eftir umdeildar forsetakosningar. Erlent 9.12.2024 14:50
Eldgosinu er lokið Eldgosinu austur af Stóra-Skógfelli er lokið. Þetta var staðfest í dag þegar almannavarnir flugu drónaflug yfir svæðið og engin virkni var sjáanleg. Innlent 9.12.2024 14:45
Vörpuðu sprengjum á hergögn og efnavopn í Sýrlandi Ísraelar gerðu í nótt og í morgun þó nokkrar loftárásir í Sýrlandi, auk þess sem ísraelskir hermenn fór yfir landamæri ríkjanna við hinar hernumdu Gólanhæðir. Loftárásirnar voru að mestu gerðar við strandlengju Sýrlands og í suðurhluta landsins. Erlent 9.12.2024 14:32
Reif í hár konu svo hún féll í gólfið og samdi svo við hana Kona hefur verið dæmd til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás gegn annarri konu. Undir rekstri málsins sömdu konurnar um bætur og konan játaði sök. Innlent 9.12.2024 14:04
Bilunin á afar erfiðum stað og bærinn áfram keyrður á varaafli Bilanaleit á Víkurstreng hefur staðið yfir frá því snemma í morgun. Nú rétt eftir hádegi kom í ljós að líklegast er bilunin staðsett í strengnum þar sem hann er plægður undir Skógá. Vík í Mýrdal verður áfram keyrð á varaafli. Innlent 9.12.2024 13:51
Með fingraför og lífsýni til rannsóknar Rannsakendum hefur enn ekki tekist að bera kennsl á mann sem skaut forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna til bana í New York á dögunum. Það er þrátt fyrir mjög umfangsmikla leit og að andlitsmynd af manninum hafi verið birt í fjölmiðlum um gervöll Bandaríkin og heiminn allan. Erlent 9.12.2024 13:44
Stofnuðu Félag ungra mæðra til að rjúfa félagslega einangrun Það getur verið einmanalegt að vera ung móðir. Þetta segja mæður sem nýlega stofnuðu Félag ungra mæðra sem hefur það að meginmarkmiði að rjúfa félagslega einangrun eftir fæðingu. Margrét Helga, fréttamaður, fékk að sitja fund með framtakssömum ungum mæðrum og börnum þeirra. Innlent 9.12.2024 13:24
Fall Assads góðar fréttir fyrir Sýrlendinga og heimsbyggðina alla Sérfræðingur í varnarmálum segir fall al-Assad-stjórnarinnar í Sýrlandi ekki aðeins vera góðar fréttir fyrir almenning í Sýrlandi heldur fyrir heiminn allan. Nú reyni á leiðtoga sameinaðra uppreisnarafla að halda stöðugleika og friði á milli ólíkra fylkinga. Innlent 9.12.2024 13:05
Vinnuhópar funda eftir hádegi Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins héldu stjórnarmyndunarviðræðum sínum áfram nú fyrir hádegi. Eftir hádegi munu vinnuhópar á vegum flokkanna funda um einstök málefni. Innlent 9.12.2024 12:35
Netsamband komið á Skagaströnd á undan áætlun Viðgerð er lokið á ljósleiðarastrengnum sem tengir Skagaströnd við netið. Viðgerð lauk nokkrum klukkustundum á undan áætlun. Gert var ráð fyrir að henni myndi ljúka um klukkan þrjú en henni lauk rétt fyrir klukkan eitt. Strengurinn fór í sundur vegna vatnavaxta í Hrafná. Innlent 9.12.2024 11:44
Kanna með dróna hvort eldgosinu sé lokið Veðurstofan bíður nú færis til að geta kannað með drónaflugi hvort að eldgosinu sé lokið. Flogið verður með dróna yfir svæðið í dag til að staðfesta. Innlent 9.12.2024 11:40
Viðræðum haldið áfram og rafmagnslaust í Vík Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um stjórnarmyndunarviðræðurnar sem staðið hafa síðustu daga. Innlent 9.12.2024 11:23