Innlent

Bilun hjá Teya veldur löngum röðum

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Frá því í Ikea upp úr klukkan þrjú í dag.
Frá því í Ikea upp úr klukkan þrjú í dag. vísir

Langar biðraðir hafa myndast í Ikea og víða annars staðar í dag vegna bilunar hjá fjártæknifyrirtækinu Teya. Bilunin kom upp um tuttugu mínútur í þrjú.

Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya hefur verið kallað út til að vinna að vandamálinu. 

Þetta kemur fram í upplýsingum frá fyrirtækinu en þar er beðist innilegrar velvirðingar á vandamálum sem bilunin kann að valda. Kristófer Daði Garðarson, yfirmaður hjá þjónustuveri Teya segir í samtali við fréttastofu að lausn sé í sjónmáli. Vonir eru bundnar við að kerfið verði aftur komið í gang upp úr klukkan 16.00.

Hann tekur fram að fjöldi verslana og annarra fyrirtækja sem bilunin hefur áhrif á hlaupi á hundruðum.

Veistu meira um málið? Áttu myndir af röðum? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur hálfgerð örtröð myndast í verslun Ikea í Kauptúni.

Röðin nær langt inn á lagerinn hjá Ikea.vísir/aðsend

Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea, segir í samtali við fréttastofu að bilunin hafi staðið yfir í um klukkutíma. Hann tekur fram að gsm-posar hafi verið teknir í gagnið og því gangi afgreiðslan áfram þó hún gangi hægar fyrir sig.

„Þetta eru mjög langar raðir hjá okkur en við erum GSM-posa sem við getum gripið til. Þetta er á versta tíma og er bara alltaf á versta tíma. Alveg sama hvenær það gerist, þetta er alveg ömurlegt. Ömurlegt að geta ekki treyst kerfinu.“

Fréttin verður uppfærð

Röðin.vísir/aðsend








Fleiri fréttir

Sjá meira


×