Fréttir
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 334 ›
Upplifði djúpa sorg þegar Vinstri græn duttu af þingi Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi veitti sitt fyrsta viðtal eftir forseta- og alþingiskosningar í Samtalinu hjá Heimi Má í dag sem sýnt verður á Stöð 2 klukkan 19:05 í kvöld. Hún segist hafa upplifað djúpa sorg þegar úrslit nýafstaðinna alþingiskosninga lágu fyrir. Innlent 12.12.2024 14:47
„Við erum að erfa útblásið bákn, þjakað af spillingu“ Uppreisnarmenn sem tekið hafa stjórn á Sýrlandi standa frammi fyrir ærnu verkefni þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn og halda ríkinu sameinuðu. Sýrlenska ríkið er í mikilli niðurníðslu og sjóðir ríkisins tómir, samkvæmt starfandi forsætisráðherra. Þá þurfa uppreisnarmennirnir að sannfæra þjóðina og heiminn um að þeir ætli sér ekki að skipta út einni alræðisstjórn fyrir aðra. Erlent 12.12.2024 14:11
Webb sér alheiminn einnig þenjast út á vaxandi hraða Athuganir öflugasta geimsjónauka sögunnar staðfesta enn á ný að alheimurinn þens út hraðar en staðallíkan eðlisfræðinnar getur útskýrt. Eftir sitja stjarneðlisfræðingar í súpunni, engu nær um hvers vegna herðir á útþenslunni. Erlent 12.12.2024 13:43
Leggja til styttri tímafresti og minni flækjur í orkumálum Starfshópur um endurskoðun á rammaáætlun um orkumál leggur til að tímafestir verði innleiddir til þess að ekki þurfi að líða meira en 24 mánuðir frá því virkjunarhugmynd er send Orkustofnun og þar til ráðherra leggur þingsályktunartillögu fyrir þingið. Innlent 12.12.2024 13:30
Trump valinn manneskja ársins: „Pólitísk endurfæðing“ sem á sér enga hliðstæðu Donald Trump, sem kjörinn var forseti Bandaríkjanna í annað sinn í nóvember, er manneskja ársins að mati bandaríska tímaritsins Time Magazine. Fram kemur í umfjöllun Time að „pólitísk endurfæðing“ Trumps eigi sér enga hliðstæðu í sögu Bandaríkjanna. Erlent 12.12.2024 13:24
Skammaður af nefndinni og kærður til lögreglu Úrskurðarnefnd lögmanna hefur áminnt Ómar R. Valdimarsson fyrir margvísleg brot á siðareglum lögmanna í tengslum við mál ungs pars sem leitaði til hans til innheimtu flugbóta. Eitt brotið snýr að birtingu persónuupplýsinga um parið á Facebook. Parið hefur kært Ómar til lögreglu vegna birtingarinnar. Ómar mun leita til dómstóla til að fá úrskurðinum hnekkt. Innlent 12.12.2024 13:10
Fá milljarða frá ESB til að tryggja vatnsgæði á Íslandi Samband íslenskra sveitarfélaga auk nokkurra einstakra sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana taka þátt í verkefni sem miðar að því að tryggja vatnsgæði á Íslandi. Verkefnið hefur hlotið þrjá og hálfan milljarð króna í styrk frá Evrópusambandinu. Innlent 12.12.2024 13:01
Vilja að lyfjafræðingar geti ávísað lyfjum og apótek verði fyrsti viðkomustaður Lyfjafræðingar fá heimild til að ávísa ákveðnum lyfjum og apótek verða fyrsti viðkomustaður í veikindum samkvæmt tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra. Formaður Lyfjafræðingafélagsins segir lyfjafræðinga í apótekum lengi hafa beðið eftir þessu og tillögurnar í takti við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Innlent 12.12.2024 13:00
Framkoma SVEIT sé „svívirðileg atlaga að réttindum launafólks“ Stjórn VR fordæmir atlögu atvinnurekenda innan SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, að réttindum og kjörum launafólks á Íslandi. Stjórn VR tekur heilshugar undir gagnrýni Eflingar og SGS á SVEIT og hvatningu um að sniðganga félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR en stjórn samþykkti ályktun um þetta í gær. Innlent 12.12.2024 12:54
Rekja bilanir á Víkurstreng til efnistöku úr ám Talið er líklegt að rekja megi rafmagnsbilanir á Víkurstreng til efnistöku í ám neðan við strenglögnina. Efnistakan er talin möguleg ástæða þess að mikil hreyfing kemst á árfarveg í vatnsveðri og leysingum líkt og var á sunnudaginn og mánudaginn og orsakaði rafmagnsleysi á svæðinu. Þá verður allt kapp nú lagt á að setja upp varanlegt varaafl í Vík. Innlent 12.12.2024 12:47
Mannleg mistök hafi valdið því að beiðni til borgarinnar týndist Lögfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar segist taka ábendingar Umboðsmanns Alþingis um aðgengi fólks að starfsfólki og þjónustu sviðsins alvarlega. Mannleg mistök hafi leitt til þess að gagnabeiðni frá borgara var ekki afgreidd í tvö ár. Innlent 12.12.2024 12:04
Vongóð um að íslenskir læknar erlendis muni snúa heim Klukkan ellefu á morgun mun liggja fyrir hvort að félagsmenn Læknafélags Íslands samþykki nýjan kjarasamning sem að félagið gerði við ríkið í lok nóvember. Formaður Læknafélagsins segist vongóð þó að sumir félagar hafi gagnrýnt samninginn en hún viðurkennir að sumu hafi verið fórnað við samningsgerðina. Innlent 12.12.2024 12:03
Seinagangur hjá borginni að mati Umboðsmanns Í hádegisfréttum fjöllum við um athugasemdir Umboðsmanns Alþingis við seinagang í svörum hjá Umverfis- og skilulagssviði borgarinnar. Innlent 12.12.2024 11:32
Búlgarar og Rúmenar fá inngöngu í Schengen Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins hafa samþykkt að gera Búlgaríu og Rúmeníu aðila að Schengen-svæðinu. Þetta felur í sér að þann 1. janúar verður mun auðveldara fyrir fólk í Búlgaríu og Rúmeníu að ferðast til annarra ríkja í Schengen. Erlent 12.12.2024 11:09
Yfir átján prósent íbúa á Íslandi eru innflytjendur Hátt í sjötíu þúsund íbúa á Íslandi voru innflytjendur samkvæmt gögnum Hagstofunnar sé miðað við 1. janúar á þessu ári. Það gera 18,2% allra íbúa landsins. Innflytjendum hefur þannig haldið áfram að fjölga á milli ára en í fyrra voru innflytjendur rétt tæplega 63 þúsund, eða 16,7% íbúa. Ljóst er að innflytjendum hefur fjölgað verulega á Íslandi undanfarin áratug en sé litið til ársins 2012 var hlutfall innflytjenda af heildarmannfjölda ekki nema 7,4%. Innlent 12.12.2024 10:52
Fækkar í þjóðkirkjunni en Siðmennt bætir mest við sig Meðlimum íslensku þjóðkirkjunnar hefur fækkað um 939 síðan 1. desember á síðasta ári. Mest fjölgaði í Siðmennt á sama tímabili, en einstaklingum utan trú- og lífsskoðunarfélaga fjölgar einnig. Innlent 12.12.2024 10:48
Réttað yfir manni sem er ákærður fyrir að brjóta gegn fatlaðri konu og syni hennar Aðalmeðferð yfir karlmanni sem er ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu og áreita unglingsson hennar og vinkonu sem eru einnig andlega fötluð hófst í gær. Réttarhöldin eru lokuð en maðurinn var verslunarstjóri þar sem konan starfaði við afgreiðslu. Innlent 12.12.2024 10:17
Þingflokkar funda hver í sínu lagi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funda hver í sínu lagi í hádeginu á Alþingi í dag. Stjórnarmyndunarviðræður halda einnig áfram. Formenn flokkanna hafa ekki fundað einar í morgun en munu mögulega gera það síðar í dag. Innlent 12.12.2024 10:15
Zuckerberg gefur milljón dala í embættistökusjóð Trumps Meta, móðurfélag Facebook sem er í eigu Mark Zuckerberg, hefur gefið milljón dala (um 139 milljónir króna) í embættistökusjóð Donalds Trump. Forsetinn verðandi hefur ítrekað gagnrýnt auðjöfurinn á undanförnum mánuðum og einnig hótað aðgerðum gegn Facebook og öðrum fyrirtækjum sem hann sakar um að hafa farið gegn sér. Erlent 12.12.2024 10:05
Upplýst um leyndarmálið á bak við pönnukökurnar Nýi vertinn í Flugkaffinu á Akureyrarflugvelli segir algert lykilatriði að gera almennilegar pönnukökur. Hann þurfti þó kennslu frá systur sinni og leiðbeiningar frá forvera sínum sem upplýsti hann um leyndarmálið á bak við uppskriftina. Innlent 12.12.2024 09:32
Kæru nágranna álversins í Straumsvík vegna starfsleyfis hafnað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu eigenda jarðar í nágrenni álversins í Straumsvík um að breytingar á starfsleyfi þess yrðu felldar úr gildi. Starfsleyfið heimilaði álverinu að auka framleiðslu sína um allt að átján þúsund tonn. Innlent 12.12.2024 09:19
Ætlar að berjast gegn ásökunum um landráð Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, ætlar ekki að stíga til hliðar og heitir því að berjast gegn ásökunum um landráð, vegna óvæntrar herlagayfirlýsingar hans í síðustu viku. Hann segist einnig ætla að berjast gegn tilraunum til að víkja honum úr embætti. Erlent 12.12.2024 09:03
Bein útsending: Staða orkumála og endurskoðun rammaáætlunar Starfshópur um endurskoðun rammaáætlunar mun kynna stöðu orkumála og skýrslu sína á fundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Innlent 12.12.2024 09:01
Halla á lista Forbes yfir áhrifamestu konur heims Halla Tómasdóttir forseti Íslands er á nýjum lista Forbes yfir áhrifamestu konur heims. Hún er númer 93. Á heimasíðu Forbes segir að Halla hafi tekið við sem forseti Íslands í júní og að hún hafi sigrað fyrrverandi forsætisráðherra í kosningu, Katrínu Jakobsdóttur. Innlent 12.12.2024 09:01
Neita fullyrðingum þingmanns um dróna frá „móðurskipi“ Íran Talsmaður Pentagon neitar því staðfastlega að drónar sem sést hafa í New Jersey á síðustu vikum komi frá „móðurskipi“ Írana við austurströnd Bandaríkjanna. Erlent 12.12.2024 08:08
Allhvass vindur með skúrum eða éljum Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan og suðvestan strekkingi eða allhvössum vindi með skúrum eða éljum en léttskýjuðu veðri norðaustan- og austanlands. Veður 12.12.2024 07:23
Engin grið gefin þeim sem stóðu að pyntingum og morðum Leiðtogar uppreisnarmanna sem nú eru við stjórnvölinn í Sýrlandi segja engin grið verða gefin þeim sem báru ábyrgð á pyntingum og morðum í alræmdu fangelsiskerfi stjórnar Bashar al-Assad. Erlent 12.12.2024 07:12
Grunaður um að skera mann á háls á gistiheimili í Kópavogi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna meintar hnífaárásar sem er sögð hafa átt sér stað skömmu eftir miðnætti föstudaginn 9. júní á gistiheimili í Kópavogi. Innlent 12.12.2024 07:02
Umboðsmaður gagnrýnir svörun og þjónustu Reykjavíkurborgar Umboðsmaður Alþingis hefur það til skoðunar að hefja frumkvæðisathugun á aðgengi almennings að starfsmönnum og þjónustu umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Innlent 12.12.2024 06:39
Mannlaus bifreið á miðjum vegi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð út vegna líkamsárásar, sem reyndist minniháttar. Innlent 12.12.2024 06:17