Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Lovísa Arnardóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 9. september 2026 06:46 Younis Al-Khatib segir stöðuna enn skelfilega á Gasa. Vísir/Anton Brink Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, segir stöðuna skelfilega á Gasa í dag og hún versni bara. Hann segir ekki þörf á meira fjármagni eða hjálpargögnum en kallar eftir því að Ísland, og alþjóðasamfélagið allt, þrýsti á Ísrael að hleypa Rauða krossinum inn á Gasa með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. Al-Khatib segir stöðuna ekkert betri þó svo að samið hafi verið um vopnahlé á svæðinu í október í fyrra. „
Staðan er skelfileg,“ segir Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans (PRCS), um stöðuna á Gasa í dag. Frá október 2023 hefur palestínski Rauði hálfmáninn sinnt lykilhlutverki í veitingu mannúðaraðstoðar á Gaza við gífurlega erfiðar aðstæður, ferðatakmarkanir, hömlur á flutningi nauðsynlegra hjálpargagna og óöruggt ástand. Yfir 30 starfsmenn og sjálfboðaliðar palestínska Rauða hálfmánans hafa verið drepnir við störf sín á Gaza. Tveir hafa verið drepnir á Vesturbakkanum á sama tímabili. AL-Khatib var á Íslandi í síðustu viku í boði Rauða krossins á Íslandi. Í heimsókninni hitti hann Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra auk þess sem hann fundaði með fulltrúum utanríkismálanefndar, landsnefndar um mannúðarrétt og þróunarsamvinnunefndar. Al-Khatib hefur verið forseti palestínska Rauða hálfmánans frá árinu 2000. Hann hefur þó starfað í þágu félagsins mun lengur eða allt frá árinu 1982 er hann gerðist fyrst sjálfboðaliði. Palestínski Rauði hálfmáninn sinnir víðtæku og lífsbjargandi mannúðarstarfi. Félagið rekur meðal annars neyðarlínu, sjúkrabíla, sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og gegnir stóru hlutverki í dreifingu neyðaraðstoðar. Starfsfólk Rauða krossins við störf við Rafah landamærin. Vísir/EPA Staðan ekkert betri eftir vopnahlé Al-Khatib segir að í október í fyrra, þegar samið var um vopnahlé, hafi verið von um að ástandið myndi batna en í dag megi sjá að frá þeim tíma hafi fyrir þúsund almennir borgarar verið drepnir og að enn sé erfitt að koma hjálpargögnum inn á svæðið. „Það er alvarlegur skortur á lyfjum, lækningatækjum og hjálpargögnum. Staðan verður enn verri eftir því sem vetur nálgast,“ segir hann. Fjöldi fólks búi í tjöldum í dag eftir að loftárásir Ísraela gjöreyðilögðu heimili þeirra. Þá segir hann aukna hættu á því að sjúkdómar berist á milli fólks og að skordýr og rottur komist inn til þeirra. „Almennt séð hefur staðan þannig ekkert batnað,“ segir Al-Khatib. Younis Al-Khatib segir íslensk stjórnvöld þurfa að þrýsta á að Ísrael opni landamærin að Gaza. Vísir/Anton Brink Rauði krossinn hafi búist við því að betra flæði yrði á þessum tíma en að ísraelsk stjórnvöld takmarki enn fjölda bíla sem megi aka um landamærin en þrjár landamærastöðvar eru við Gasa sem er stjórnað af Ísraelum. Hann segir því enn erfitt að koma hjálpargögnum inn á svæðið. Hann segir auk þess fjölda fólks á Gasa þurfa á læknisaðstoð að halda. Fjöldi þurfi að komast í aðgerð, sé slasaður eða þurfi að fara í krabbameinsmeðferð. „Þannig að staðan er enn nokkuð skelfileg.“ Hann segir aðgengi það sem helst stöðvi Rauða krossinn í að veita hjálp á Gasa auk þess sem hann skorti öryggi fyrir starfsfólk sitt. „Við höfum misst 58 samstarfsmenn í þessu stríði sem Ísraelsher hefur af ásettu ráði ráðist að,“ segir hann og að önnur mannúðarsamtök hafi misst hundruð starfsmanna, lækna og sjálfboðaliða í stríðinu. „Okkar helsta hindrun er að það er ekkert öryggi fyrir þessi teymi,“ segir hann en að auk þess skorti þau hjálpargögn til að geta aðstoðað fólk. Verði að komast inn og út af Gasa Spurður hvað íslensk stjórnvöld geti gert núna segir hann að það snúist ekki um fjármagn eða hjálpargögn, það sem mestu skiptir sé að þrýsta á og neyða Ísrael, með lögum, til að hleypa mannúðarsamtökum inn á Gasa. Eyðileggingin er mikil á Gasa og því búa margir í tjaldi í flóttamannabúðum. Vísir/EPA „Svo lengi sem Ísraelar fá frelsi til að gera það sem þeir vilja, takmarka hreyfingu fólks, takmarka aðgengi sjúkrabíla og takmarka aðgengi að lækningagögnum, hafa þeir yfirhöndina og fleiri munu láta lífið vegna skorts á þjónustu.“ Al-Khatib fundaði í síðustu með utanríkismálanefnd þingsins og ræddi stöðuna á Gasa við hana. Hann segir nauðsynlegt fyrir alþjóðasamfélagið, og Ísland sem hluta af því, að bregðast við og kalla eftir því að Ísrael hleypi þeim inn með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. „Ísland var eitt fyrsta ríkið sem viðurkenndi ríkið Palestínu 2011 svo að það getur enn spilað hlutverk hér,“ segir hann.
Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Ísrael Félagasamtök Tengdar fréttir Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Tvenn palestínsk ungmenni voru drepin af ísraelskum landnemum og hermönnum í árás á þorp þeirra á hernumda Vesturbakkanum í gær. Þetta segja ráðamenn á svæðinu. 3. september 2026 16:35 Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði. 21. ágúst 2026 00:09 Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk. 20. ágúst 2026 21:28 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Tvenn palestínsk ungmenni voru drepin af ísraelskum landnemum og hermönnum í árás á þorp þeirra á hernumda Vesturbakkanum í gær. Þetta segja ráðamenn á svæðinu. 3. september 2026 16:35
Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði. 21. ágúst 2026 00:09
Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk. 20. ágúst 2026 21:28