Þjóðin eigi náttúrupassa skilið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. september 2026 16:52 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ferðaþjónustu hafa falið í sér áskoranir fyrir innviðauppbyggingu þó hún hafi verið þjóðinni til heilla. Vísir/Anton Brink Auðveldara er að innleiða náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands í dag en það var á sínum tíma þegar umræða um náttúrupassa fór mikinn, að mati forsætisráðherra. Hún segir breyttan heim auðvelda innleiðingu gjaldsins og að vont hafi verið að ekki hafi tekist að innleiða náttúrupassa á sínum tíma.
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna þar sem þingmál vetrarins voru kynnt. Eitt af málum sem kynnt hafa verið er náttúru- og innviðagjaldið en óljóst er að svo stöddu nákvæmlega hvernig gjaldið verður innheimt, þó Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafi sagt að um aðgöngumiða sé að ræða og að gjaldið myndi einungis ná til ferðamanna en ekki Íslendinga. Svokallaður náttúrupassi var lengi vel á borði ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem sat árin 2013 til 2016 og frumvarp þess efnis lagt fram árið 2014, án þess að hann hafi á endanum verið samþykktur. Þá átti passinn einnig að ná til Íslendinga. Árið 2018 tilkynnti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir þáverandi ferðamálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknar að náttúrupassinn væri út af borðinu. Úr kvöldfréttum Stöðvar 2 um málið þann 2. desember 2014. Nú ætlið þið að kynna þetta innviðagjald á ferðamenn og á ferðamannastaði. Náttúrupassi var eitthvað sem var í umræðunni fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan, það var hugmynd sem var lögð á hilluna vegna þess að það þótti erfitt að framkvæma hana, gistináttagjald tekið upp í staðinn. Hvers vegna haldið þið að þetta muni ganga betur núna og hvers vegna núna? „Það er margt til í þessu. Þetta eru breyttir tímar. Á sínum tíma þá voru tæknilegar útfærslur sem margir vildu meina að gengu ekki upp. Það hefur ýmislegt breyst í tækni nútímans. Snjallsímar eru útbreiddar, tölvutækni, nýting á vídjó og upptöku og aðrir þættir varðandi skynjara og fleira, við lifum í breyttum heimi þegar kemur að svona hlutum. Við eigum að nýta okkur það,“ segir Kristrún. Hún segir að það hafi verið vont að ekki hafi tekist að útfæra gjaldið á sínum tíma. Síðan þá hafi orðið gjörbreyting á ferðaþjónustunni til hins betra. Ferðaþjónustan hafi verið algjör vaxtabroddur í íslensku atvinnulífi og aukastoð í útflutningi. „En það hafa líka fylgt þessu áskoranir, vegna þess að til þess að veita þjónustuna þá þarftu að flytja manneskjuna inn og mikið af þeim sem eru að veita þjónustuna eru líka fólk sem er að koma hér að utan að sinna þessum störfum, sem er auðvitað jákvætt en þetta hefur reynt á vegakerfið, reynt á heilbrigðiskerfið, reynt á húsnæðismarkaðinn, reynt á þessa staði og það er vitað mál að ef þetta hefði verið lagt á sínum tíma þá væri þetta að skila mörgum milljörðum á hverju einasta ári sem við gætum nýtt í uppbyggingu, þannig þjóðin á það bara skilið að við förum í uppbyggilega nálgun í þessum málum.“ Hún segir stjórnvöld munu innleiða gjaldið á skynsamlegan hátt. Hún treysti atvinnuvegaráðherra fullkomlega til að gera það í samvinnu við ferðaþjónustuna. Byrjað verði að setja gjaldið á ferðamannastöðum í eigu ríkisins. „Og ríkið hlýtur að geta sett ákveðna stefnu í þeim málum. Þetta er líka til þess að reyna að stýra flæði, það er mikið af ferðamönnum sem koma á Suðvesturhornið og Suðurlandið og við viljum gjarnan að fólk fari lengra um landið, þannig við munum leggja mikla áherslu á þetta og þetta er jákvætt skref í að þróa ferðaþjónustu á Íslandi, dreifingu ferðamanna og gæti líka veitt einkaaðilum síðar meir tækifæri til þess að taka þátt í þessari tæknilausn sem byggist upp, þannig ég vona að fólk horfi með opnum og jákvæðum augum á þetta.“
Fjárlagafrumvarp 2027 Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Tengdar fréttir Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabannKynntu þingmálaskrá vetrarins Sanngirnisbætur, samfélagsmiðlabann, bókun 35 og meðferð sakamála er meðal þess sem tekið verður fyrir á komandi þingi. Formenn stjórnarflokkanna reifuðu þingmál vetrarins í morgun. 8. september 2026 12:00 Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. 7. september 2026 14:03 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabannKynntu þingmálaskrá vetrarins Sanngirnisbætur, samfélagsmiðlabann, bókun 35 og meðferð sakamála er meðal þess sem tekið verður fyrir á komandi þingi. Formenn stjórnarflokkanna reifuðu þingmál vetrarins í morgun. 8. september 2026 12:00
Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. 7. september 2026 14:03