Fréttir

Bein útsending ASÍ: Heilbrigðisþjónusta, auðlindir og orkumál
46. þing Alþýðusambands Íslands fer fram á Hilton hótel í Reykjavík í dag og hefst klukkan 10. Beint streymi verður frá þinginu á Vísi.

Framboðin þurfi að vanda sig
Kristín Edwald formaður Landskjörstjórnar segir mikilvægt að öll framboð hugi að formsatriðum við skil á sínu framboði. Frestur er til 31. október til að skila inn framboðslistum. Kristín hvetur einnig framboðin til að nota rafræn meðmælendakerfi.

Boða til upplýsingafundar vegna breytts aðgengis að Grindavík
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 13:30 í dag þar sem farið verður yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík.

Stjórnvöld verða að leggja fram lausnir fyrir 1. apríl
Kjarasamningur Eflingar stéttarfélags við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær. Kjarasamningnum fylgdi samkomulag við stjórnvöld þar sem segir að stjórnvöld verði fyrir 1. apríl að leggja fram lausnir til að taka á mönnunarvanda hjúkrunarheimila. Verði það ekki gert getur Efling slitið samningi.

Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga
Bandaríska ríkið hefur sektað flugfélagið Lufthansa um fjórar milljónir dala fyrir að hafa bannað gyðingum að ganga um borð í vél félagsins árið 2022 þar sem sumir þeirra neituðu að bera sóttvarnagrímu.

Vill annað sætið í öðru Reykjavíkurkjördæmanna
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, sækist eftir öðru sætinu á lista Viðreisnar í öðru Reykjavíkurkjördæmanna í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember næstkomandi.

Skýjað og sums staðar rigning eða slydda
Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag, víða þrjá til tíu metra á sekúndu í dag. Spáð er skýjuðu veðri og sums staðar dálítilli rigningu eða jafnvel slyddu, einkum á Austurlandi.

Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum
Auðjöfurinn Elon Musk gaf 75 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna, í kosningasjóðinn America PAC á aðeins þremur mánuðum, sem fjármagnar aðgerðir til að fá kjósendur Donald Trump á kjörstað í barátturíkjunum sjö.

„Þokkaleg sátt“ um ný skilyrði fyrir íshellaferðum
Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs segir þokkalega sátt ríkja hjá ferðaþjónustufyrirtækjum um ný skilyrði sem voru sett fyrir íshellaferðum eftir banaslys á Breiðamerkurjökli í sumar. Ferðir eru meðal annars háðar daglegu hættumati.

Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum
Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust.

Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur viðrað þá hugmynd að aðildarríkin horfi til þess að gera samninga um „úrvinnslumiðstöðvar“ fyrir hælisleitendur utan sambandsins.

Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum
Kona sem sótti um að verða fósturforeldri sextán ára pilts sem vísað var úr landi í dag segir að brösuglega hafi gengið að fá að kveðja hann í úrræði ríkislögreglustjóra fyrir brottför piltsins. Hún óttast að ekkert bíði hans í Kólumbíu.

Getur ekki orða bundist yfir útspili Vinstri grænna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist ekki geta orða bundist þegar kemur að Vinstri grænum og pólitísku inntaki flokksins.

„Falsfréttin“ og „þvælan“ sem raungerðist hratt
Aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur formanns Vinstri grænna og innviðaráðherra til dagsins í dag sögðu það falsfrétt og algjöra þvælu að Svandís væri byrjuð að tæma skrifstofu sína í ráðuneytinu upp úr hádegi í dag. Ekkert slíkt lægi fyrir. Síðar um daginn var búið að tæma skrifstofuna.

Einn á bráðamóttóku er rafskúta og reiðhjól lentu saman
Ökumaður rafskútu var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í dag þegar rafskúta hans og reiðhjóllentu saman í Fossvogi í dag.

Algjör nýmæli að neita að taka þátt í starfsstjórn
Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor, segir það algjör nýmæli hjá Vinstri grænum að neita að taka þátt í starfsstjórn. Hugmynd Svandísar Svavarsdóttur, formanns Vinstri grænna, um minnihlutastjórn Framsóknar og VG hefði þó getað gengið upp, og á sér fordæmi.

Bjarneyjarstofa athvarf fyrir foreldra sem missa á meðgöngu
Ný stofa fyrir fjölskyldur sem hafa misst börn á meðgöngu var opnuð á Landspítalanum í dag. Stofan hefur fengið nafnið Bjarneyjarstofa í höfuðið á Bjarneyju Hrafnberg ljósmóður sem hefur í meira en þrjátíu ár stutt foreldra í gegnum slíkan missi.

Bjarni leggur mesta áherslu á afgreiðslu fjárlagafrumvarps
Forsætisráðherra til bráðabirgða í nýrri starfsstjórn leggur áherslu á að fátt annað en fjárlagafrumvarpið verði afgreitt frá Alþingi fyrir kosningar. Ný ríkisstjórn geti síðan ákveðið að gera breytingar á því.

„Tímapunkturinn finnst mér afleitur“
Varaformaður Vinstri grænna segir tíma Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokknum liðinn. Hann sakar forsætisráðherra um trúnaðarbrest með því að hafa fellt ríkisstjórnina án þess að tala við formenn hinna stjórnarflokkanna. Þess vegna verði ráðherrar Vinstri grænna ekki með í starfsstjórn.

Þingkosningar í nóvember, viðbrögð VG og nýr íslenskur söngleikur
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur fallist á þingrofs- og lausnarbeiðni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Gengið verður til þingkosninga 30. nóvember. Fjallað verður um nýjustu vendingar í pólitíkinni í kvöldfréttum.

„Hefur engan tilgang“ að setja nýtt fólk í starfsstjórn
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hyggst sitja áfram í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra fram að kosningum. Eðlilegast sé að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skipti með sér verkum ráðherra Vinstri grænna.

Taka ekki þátt í starfsstjórn
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að ráðherrar flokksins muni ekki verða við beiðni forseta Íslands um að sitja áfram í starfsstjórn.

Gefur ekki kost á sér í landsmálin að sinni
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi alþingiskosningum.

Samningur Eflingar og SFV samþykktur
Kjarasamningur Eflingar við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið samþykktur með 92,8 prósentum greiddra atkvæða.

Dagur bað kennara afsökunar titrandi röddu
Kennarafélag Reykjavíkur boðaði til samstöðumótmæla fyrr í dag og safnaðist mikill fjöldi kennara saman fyrir utan Ráðhúsið klukkan fjórtán. Orð Einars Þorsteinssonar borgarstjóra þess efnis að viðsemjendur vilji semja sig frá kennslu sitja í kennurum en Dagur B. Eggertsson forseti borgarstjórnar tók á móti hópnum og tókst að slá á reiðina með einlægri afsökunarbeiðni.

Átök Áslaugar og Guðlaugs Þórs ekki endurtekin
Allar líkur eru á því að stillt verði upp á listum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmum fyrir komandi Alþingiskosningar sem flest bendir til að verði í lok nóvember. Mikill hiti var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þremur árum þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson börðust af miklum krafti um oddvitasæti flokksins.

Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar
Rússneskur faðir sem var sakfelldur fyrir óhróður um herinn vegna myndar sem dóttir hans teiknaði er laus úr fangelsi eftir eins og hálfs árs vist. Skólastjóri stúlkunnar tilkynnti lögreglu um teikninguna á sínum tíma.

Um 200 tilkynningar um tjón vegna rafmagnsleysis
Hátt í 200 manns hafa tilkynnt tjón til Rarik vegna rafmagnsleysis sem varð á Norður- og Austurlandi þann 2. október. Þá varð truflun á í flutningsneti Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli með þeim afleiðingum að víða var rafmagnslaust í nokkra klukkutíma.

Kennarar gengu út og mótmæla orðum borgarstjóra
Fjölmargir kennarar í Reykjavík komu saman til mótmæla við Ráðhús Reykjavíkur klukkan 14 til að láta í ljós óánægju sína vegna ummæla Einars Þorsteinssonar borgarstjóra.

Uppstilling hjá Miðflokknum
Nokkrir þingflokkar hafa þegar ákveðið hvort þeir hyggist stilla upp listum fyrir komandi Alþingiskosningar eða halda prófkjör. Miðflokkurinn ætlar að stilla upp listum í öllum kjördæmum.