Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2026 16:07 Donald Trump er alls ekki sáttur við svör klerkstjórnarinnar við friðartillögum Bandaríkjamanna. Ap/Jacquelyn Martin Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir vopnahléið gegn Íran hanga á bláþræði. Það er eftir að hann lýsti yfir miklum vonbrigðum með svör klerkastjórnarinnar í Íran við tillögum að mögulegum friði.
Íranir svöruðu á föstudaginn tillögum Bandaríkjamanna með eigin tillögum sem féllu ekki í kramið vestanhafs. Þær fela meðal annars í sér að Íranir haldi áfram stjórn Hormússunds, að refsiaðgerðir gegn Íran verði felldar niður og að Bandaríkjamenn láti af hverkví gegn Íran, svo eitthvað sé nefnt. Klerkastjórnin vildi ekki samþykkja kröfur Bandaríkjamanna um kjarnorkuáætlun ríkisins. Sjá einnig: Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Í gær sagði Trump að svörin væru gjörsamlega óásættanleg. Forsetinn svaraði spurningum blaðamanna í Hvíta húsinu í dag. Ein spurningin snerist um vopnahléið og hvort það væri enn til staðar. Trump sagði það standa ótrúlega höllum fæti eftir að hann hefði lesið „ruslið“ sem Íranir hefðu sent. „Ég kláraði ekki einu sinni að lesa það,“ sagði Trump um svör Írana. „Ég vildi ekki sóa tíma mínum.“ Trump, sem var umkringdur læknum, sagði vopnahléið „í öndunarvél“ og að læknir myndi segja litlar sem engar líkur væru á því að það myndi lifa af. Q: Does the ceasefire remain in place?TRUMP: It's unbelievably weak. After reading that piece of garbage they sent us, the ceasefire is on life support pic.twitter.com/RDgr6OdFcz— Aaron Rupar (@atrupar) May 11, 2026 Trump hélt því fram að klerkastjórnin hefði lofað sér því að Bandaríkjamönnum yrði leyft að sækja úran sem Íranir hafa auðgað verulega umfram það sem þarf til að knýja kjarnorkuver. Það loforð hafi verið svikið með nýjustu svörum Írana. Hann sagðist einnig vilja að Íranir útilokkuðu að koma upp kjarnorkuvopnum um „mjög langt skeið“. Þar að auki hefðu þeir samþykkt nokkur smávægileg atriði en hefðu nú gengið á bak orða sinna. „Þeir samþykkja við okkur en taka það svo til baka.“ Íranir hafa ekki lýst því yfir opinberlega að þeir hafi samþykkt að láta auðgað úran þeirra af hendi. Vitað er að fyrir nokkrum árum var um að ræða tæplega hálft tonn af mikið auðguðu úrani. Hvar það er núna liggur ekki fyrir en líklegt þykir að það sé í einhverjum af þremur kjarnorkurannsóknarstöðvum sem Bandaríkjamenn sprengdu síðasta sumar. Vilja stjórna sundinu áfram Íranir hafa lokað Hormússundi frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir tæpum tveimur og hálfum mánuði. Með árásum á flutningaskip og hótunum um árásir hafa siglingar gegnum sundið nánast alfarið verið stöðvaðar en við hefðbundnar kringumstæður fer um fimmtungur af olíu heimsins um sundið, auk annarra mikilvægra afurða og aðfanga. Átökin hafa haft mikil efnahagsleg áhrif víða um heim en sérfræðingar segja þau hvað mest í Asíu en mestöll olía sem seld er frá Persaflóa er seld þangað.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Bensín og olía Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir Tveir flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Sjá meira