Eldgos og jarðhræringar
122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 132 ›
Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex Flugvél frá Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex í dag, en flugheimild hefur fengist þangað. Flugið nýtist einkum þeim, sem áttu bókað til London Gatwick eða London Stansted, samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Express. Innlent 16.4.2010 16:04
Um minniháttar hlaup að ræða Nýtt hlaup hófst úr Eyjafjallajökli laust fyrir klukkan þrjú í dag. Hlaupið var minniháttar að sögn lögreglumanna á Hvolsvelli. Innlent 16.4.2010 15:47
Nýtt flóð að hefjast Það er nýtt flóð á leiðinni úr Eyjafjallajökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli. Flóðið er rétt að byrja og ekki ljóst á þessari stundu hversu stórt það er. Innlent 16.4.2010 14:44
Rykið úr gosinu alveg ógeðslegt „Þetta var alveg svakalegt hérna í gær. Það var bara myrkur eins og þegar maður er að fara að sofa á kvöldin, segir Bjarney Sigvaldadóttir, bóndi á Bakkakoti við Kirkjubæjarklaustur. Hún og Torfi Jónsson eiginmaður hennar voru með barnabörnin hjá sér þegar að gosið hófst í Eyjafjallajökli og Innlent 16.4.2010 14:10
Rauði krossinn minnir á hjálparsímann Rauði kross Íslands vill vekja athygli á að Hjálparsími Rauða krossins 1717 gegnir hlutverki upplýsingasíma fyrir almenning þegar náttúruhamfarir verða. Innlent 16.4.2010 13:23
Viðbúnaður almannavarnakerfisins reynst traustur Allur viðbúnaður almannavarnakerfisins hefur reynst afar traustur og samvinna verið góð og áreiðanleg á milli allra viðbragðsaðila, segir ríkisstjórn Íslands í sameiginlegri yfirlýsingu í dag. Innlent 16.4.2010 12:59
Veginum milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs lokað Vegurinn á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs er lokaður, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Kirkjubæjarklaustri búast menn við miklu öskufalli á næstu mínútum. Verið er að útbýtta grímum niðri í sveitum. Innlent 16.4.2010 12:42
Gosstrókar náðu 8 km hæð í morgun Gosstrókar fóru upp fyrir 8 km hæð þrisvar í morgun en er að jafnaði í um 5 kílómetra hæð. Óróatoppar komu fram á svipuðum tíma á skjálftamælum. Þeir voru þó orkuminni en púlsar sem komu fram fyrir hlaupið í gær. Óróatopparnir sjálst á jarðskjálftamælum frá Kaldárseli í Hafnarfirði að Kálfafelli í Suðursveit. Innlent 16.4.2010 12:12
Komu mjólk yfir gömlu brúna Þrír stórir mjólkurbílar fóru yfir gömlu brúnna á Markarfljóti klukkan hálf tíu í morgun og eru byrjaðir að safna mjólk af bæjum fyrir austan fljótið. Hún verður svo selflutt á léttum bíl vestur yfir brúnna. Innlent 16.4.2010 11:57
Öskulag sest á bíla í Danmörku Öskulag hefur lagst á bíla á vesturhluta Jótlands í Danmörku, samkvæmt frétt Jyllands Posten. Á vefútgáfu blaðsins segir að burtséð frá þeirri röskun sem hafi orðið á flugi ætti það að vera ómögulegt að Danir upplifi öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli. Þetta hafi nú samt gerst. Erlent 16.4.2010 11:44
Flogið til Skotlands klukkan tvö Icelandair efnir til aukaflugs til Glasgow í Skotlandi, og verður brottför frá Keflavíkurflugvelli kl. 14.00. Í tilkynningu frá félaginu segir að heimild hafi fengist til flugsins. Í ljósi þess hversu margir farþegar eru staðsettir hér á landi sem strandaglópar vegna eldgossins hefur verið ákveðið að bjóða upp á flug þangað. Innlent 16.4.2010 10:49
Opnun tefst enn um sinn - gamla brúin opin með takmörkunum Ljóst er að hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Gamla brúin yfir Markarfljót hefur þó verið opnuð, með takmörkunum þó. Innlent 16.4.2010 10:38
Askan úr Eyjafjallajökli fyllti hótel í Kaupmannahöfn Nær öll hótel í Kaupmannahöfn voru yfirfull af gestum í nótt vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Gestirnir voru flugfarþegar sem eru strandaglópar í borginni þar sem allt flug til og frá Danmörku leggur niðri. Svipuð staða hefur eflaust verið upp á teningnum í fleiri stórborgum um norðanverða Evrópu. Viðskipti erlent 16.4.2010 10:01
Andlit eldgossins Þessi magnaða mynd sem tekin var með sérstakri myndavél um borð í vél Landhelgisgæslunnar TF-SIF í gær. Myndin sýnir þrjú megin gosop eldgossins á Eyjafjallajökli. Gosopin eru 200 til 500 metrar í þvermál. Innlent 16.4.2010 09:55
Ríkislögreglustjóri fundar með ríkisstjórn um náttúruhamfarirnar Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar, mæta á fund ríkisstjórnarinnar sem hófst klukkan hálftíu í morgun. Þar munu þeir kynna stöðu mála vegna náttúruhamfaranna í Eyjafjallajökli. Innlent 16.4.2010 09:29
Icelandair aflýsir flugi til Evrópuborga í dag Icelandair hefur tilkynnt að flugi félagsins í dag til sex Evrópuborga hefur verið aflýst. Flugi FI318 til Osló, og flugi FI436 til Manchester/Glasgow hefur verið seinkað til kl. 16.00 í dag í þeirri von að heimildir til flugs til þessara staða verði veittar þegar líður á daginn. Innlent 16.4.2010 07:55
Flugumferð enn í molum vegna gossins Hundruð þúsunda farþega hafa orðið að fresta eða aflýsa ferðum sína víðsvegar um Norður Evrópu og í gær var fimm þúsund flugferðum aflýst í gær vegna gossins. Erlent 16.4.2010 07:11
Tvö flóð í Markarfljóti í nótt Flóð hljóp í Markarfljót upp úr klukkan tvö í nótt og aftur klukkustund síðar, en þau voru bæði minni en flóðið, sem varð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Annað þeirra virðist þó hafa verið litlu minna en kvöldflóðið. Þegar þess flóðs varð vart, voru margir bæir rýmdir í skyndingu í Fljótshlíðinni og í Landeyjum, en þegar leið á kvöldið fékk fólk að snúa aftur heim, nema til þeirra bæja, sem voru mannlausir í fyrrinótt. Innlent 16.4.2010 07:03
„Hlykkjaðist fram eins og ormur“ „Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði.“ Þannig hljóðaði tilkynning Almannavarna klukkan 18.54 í gær. Þá hafði frést af miklu hlaupi á leið niður Markarfljót og gripið var til skyndirýmingar. Innlent 15.4.2010 23:15
Hélt að konan væri frá Suður-Ameríku „Nú skilur maður loksins hvað orðið móðuharðindi þýðir,“ segir Haukur Snorrason, ferðabóndi í Hrífunesi í Skaftártungu. Haukur og kona hans, Hadda Björk Gísladóttir, sem hafa síðan í fyrra rekið ferðaþjónustu á bænum í hjáverkum, voru komin að Hrífunesi á miðvikudag og ætluðu að verja einum degi í viðhald á húsinu og snúa svo heim. Ferðin varð hins vegar lengri en til stóð. Innlent 15.4.2010 23:14
Lítið hægt að segja um gosið „Um framtíð gossins er lítið hægt að segja,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ, í gærdag. Fyrst og fremst byggi jarðvísindamenn á reynslu þegar þeir spái fyrir um gos og nánast engin reynsla sé af gosi í Eyjafjallajökli. Eina gosið sem talsvert er vitað um sé gosið 1821. „Og það er takmarkað sem hægt er að læra af einu gosi. Eldfjall er því marki brennt að það breytist í gosum og næsta gos verður í breyttu eldfjalli.“ Innlent 15.4.2010 23:15
„All out of luck“ í Leifsstöð Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna. Innlent 15.4.2010 23:14
Eins og á allt annarri plánetu „Það var eins og maður væri kominn á aðra plánetu,“ segir Reynir Ragnarsson í Vík, sem var á ferð um Mýrdal í gærmorgun með jarðvísindamönnum að taka sýni úr gosöskunni. Innlent 15.4.2010 23:15
Vel heppnuð aðgerð „Þessi aðgerð, að rjúfa hringveginn til að bjarga Markarfljótsbrúnni, heppnaðist fullkomlega. Hér hefur verið unnið mikið og gott verk,“ sagði Kristján Möller samgönguráðherra þegar hann virti fyrir sér aðstæður á veginum við Markarfljótsbrúna um hádegisbil í gær. Innlent 15.4.2010 23:15
Askan ógnar ekki dýrum Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við, segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Innlent 15.4.2010 23:15
Naumlega tókst að senda fisk til Liège Í gærmorgun tókst að senda fragtvél til Liège í Belgíu með 37 tonn af fiski af þeim um 50 tonnum sem til stóð að flytja út. Ekki var hins vegar hægt að millilenda í Englandi, eins og venja er, heldur þurfti að flytja átta tonn með flutningabílum frá Liège til kaupenda á Bretlandseyjum. Innlent 15.4.2010 23:15
Í miðju kafi við mjaltirnar „Ég var á miðju kafi við mjaltir þegar aðvörun barst í gemsann,“ segir Hafsteinn Jónsson. Hann var staddur í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Hann var strax farinn að búa sig til farar aftur heim í Akurey í Vestur-Landeyjum. Innlent 15.4.2010 23:15
Kostnaður flugfélaga hleypur á milljónum Þær þúsundir flugfarþega, sem ekki komust leiðar sinnar með íslensku flugfélögunum í gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, eiga rétt á endurgreiðslu eða nýjum farseðlum. Ferðatryggingar gilda hins vegar ekki um tafir vegna eldgosa og náttúruhamfara og tjón, svo sem hótelherbergi eða bílaleigubíla sem ekki er hægt að nýta á áfangastað, fæst því ekki bætt. Innlent 15.4.2010 23:14
Drunurnar eins og í þotu að lenda „Við vorum við fjárhúsið að gefa þegar við heyrðum drunur eins og það væri þota að lenda fyrir utan,“ segir Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð. Hún var innilokuð á bænum vegna hlaups í Markarfljóti um klukkan 19 í gærkvöldi, en sagðist ekki óttast um öryggi sitt eða fjölskyldu sinnar. Innlent 15.4.2010 23:15
Grímsvötn í startholunum Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst í fyrradag gerðu aðrar eldstöðvar vart við sig. Innlent 15.4.2010 23:15