Charlie Hebdo

Upplifir að fólk sé reitt frekar en óttaslegið
Gunnar Örn Stephensen er í frönskunámi í París. Hann segir upplifun sína þá að fólk í borginni sé frekar reitt heldur en óttaslegið vegna atburða síðustu daga.

Charlie Hebdo blöð seljast á tæpar ellefu milljónir á Ebay
Charlie Hebdo blöð fóru í sölu á Ebay aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Kouachi-bræðurnir tóku tólf manns af lífi inni á ritstjórnarfundi í höfuðstöðvum blaðsins.

Önnur gíslataka í austurhluta París
Gíslatökumaðurinn og minnst fjórir gíslar létu lífið.

Umsátrinu í París lokið: Gíslatökumennirnir féllu í aðgerðum lögreglu
Allir gíslatökumennirnir þrír féllu í aðgerðum lögreglu. Minnst fjórir gíslar létust einnig.

Árásarmennirnir á flótta
Mikil leit var gerð á svæði norðaustur af París að tveimur bræðrum sem grunaðir eru um árásina á ritstjórn Charlie Hebdo í París. Eftirlifandi starfsfólk blaðsins stefnir á að gefa út nýtt hefti strax í næstu viku.

Meiri mannúð
Nú er jafn brýnt að svara illsku ekki með mannvonsku og hatri – heldur með ást og kærleika. Aðeins þannig getum við sýnt öfgamönnum heimsins að aðgerðir þeirra hafi ekki tilætluð áhrif. Enn meira lýðræði – enn meiri mannúð.

Litar stjórnmálaumræðuna í Evrópu næstu mánuði
"Gera má ráð fyrir að þessi árás liti stjórnmálaumræðuna í Evrópu á næstu mánuðum,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um skotárás öfgamanna á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París á miðvikudag.

Hrottaleg mynd af skrifstofu Charlie Hebdo eftir árásina
Fjölmiðlar ytra hafa birt mynd af vettvangi skotárásarinnar í París í gær.Hrottafengnar ljósmyndir.

Eldri bróðirinn mun hafa verið þjálfaður í Jemen
Franska leyniþjónustan segir að Said Kouachi hafi farið til Jemen árið 2011 þar sem hann var þjálfaður af al-Qaeda.

300 á samstöðufundi við franska sendiráðið
Kveikt var á kertum fyrir utan franska sendiráðið til minningar þeirra sem fórust í gær.

Minnast lögreglumannsins
Notendur samfélagsmiðla minnast lögreglumannsins sem tekinn var af lífi fyrir utan skrifstofu Charlie Hebdo með kassamerkinu #JeSuisAhmed.

„Árás á okkur öll“
Íslenskir kollegar starfsmanna Charlie Hebdo segja mikilvægt að skopmyndateiknarar um heim allan láti ekki deigan síga í kjölfar harmleiks.

Morðin í París sögð lýsa fyrirlitlegum heigulshætti
Evrópskir útgefendur fordæma morðin í París og stilla sér upp með tjáningarfrelsinu.

Teiknari svaf yfir sig og missti af ritstjórnarfundinum
Skopmyndateiknarinn Renald Luzier missti af ritstjórnarfundinum á skrifstofum Charlie Hebdo í gærmorgun þar sem hann svaf yfir sig.

Le Pen vill taka upp dauðarefsingu í Frakklandi á ný
Leiðtogi Front National vill að Frakkar fái tækifæri til að kjósa um hvort taka beri upp dauðarefsingu að nýju í landinu.

Segir árásina grófa atlögu að tjáningar- og prentfrelsi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, átti í hádeginu fund með Philippe O´Quin, sendiherra Frakklands á Íslandi.

Sérsveitarmenn ráðast inn í hús í leit að bræðrunum
Sést hefur til fjölda lögreglumanna á svæðinu milli Villers-Cotterets og Crépy-en-Valois norður af París.

Bræður sem voru smáglæpamenn en urðu róttæklingar
Hryðjuverkadeild frönsku lögreglunnar hefur fylgst með yngri bróðurnum, hinum 32 ára Chérif, í um tíu ár.

Segist hafa haft á röngu að standa varðandi dönsku skopteikningarnar
Auður Jónsdóttir rithöfundur birtir skopmyndir Jylland-Posten á Facebooksíðu sinni.

Ritstjóri Charlie Hebdo: „Ég vil frekar deyja standandi en lifa á hnjánum“
Charlie Hebdo gerði grín að öllu og öllum í vikulegri útgáfu. Ritstjóri blaðsins segist standa vörð um tjáningarfrelsið.

Samstöðufundur við Franska sendiráðið í dag
Skipuleggjendur hvetja fólk til að mæta með blýanta og kerti til fundarins.

Hryðjuverkin í París: Bræðurnir rændu bensínstöð í Norður-Frakklandi
Bensínstöðin er í Villers-Cotteret í Aisne-héraði, austur af París.

Dagur og Ólafur Ragnar senda samúðarkveðjur til Parísar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent kveðju til borgarstjórans í París, Anne Hidalgo.

Forsíður frönsku blaðanna: "Við erum öll Charlie“
Franskir fjölmiðlar hafa brugðist við hryðjuverkaárásum gærdagsins með því að birta röð sláandi mynda og fyrirsagna.

Þetta fólk lést í árás gærdagsins í París
Tólf manns létust og ellefu særðust í árás manna á ritstjórnarskrifstofur franska tímaritsins Charlie Hebdo í 11. hverfi Parísarborgar í gær.

Lögreglumaður lést eftir skotárás suður af París
Árásin hafi átt sér stað nærri Porte de Chatillon, suður af París, í morgun.

Sjö handteknir: Leit að bræðrunum stendur enn yfir
Umfangsmikil leit stendur nú yfir í Frakklandi að tveimur bræðrum sem grunaðir eru um að hafa gert árásina á skopblaðið Charlie Hebdo.

Sverrir óttast ekki umræðu í tengslum við Islam
Formaður Félags múslima á Íslandi fordæmir morð "sem framin eru af geðsjúklingum í nafni Islam“.

Hafa borið kennsl á árásarmennina í París
Óstaðfestar fregnir segja að mennirnir hafi verið handteknir.

Skopmyndateiknarar bregðast við morðunum í París
Sýna samstöðu með teikningum.