
Frjálsar íþróttir

Ennis missir af HM
Ólympíumeistarinn í sjöþraut, Englendingurinn Jessica Ennis-Hill, verður ekki á meðal þátttakenda á HM í frjálsum í Moskvu.

Búinn að hugsa um 80 metrana síðan ég var 14 ára gamall
Guðmundur Sverrisson úr ÍR er nýjasti meðlimur áttatíu metra félags spjótkastara á Íslandi. Jarðfræðineminn kastaði 80,66 metra um helgina sem hefði dugað honum til þátttöku á Ólympíuleikunum í London.

Getur Usain Bolt bætt sig frekar?
Heimsmet Jamaíkamannsins Usain Bolt í 100 metra hlaupi, 9,58 sekúndur, hefur staðið óhreyft í fjögur ár. Skiptar skoðanir eru á möguleikum Bolt til að bæta met sitt í framtíðinni.

13 ára Íslandsmeistari í 800 metra hlaupi
Þórdís Eva Steinsdóttir, 13 ára frjálsíþróttakappi úr FH, nýtti sér heldur betur fjarveru Anítu Hinriksdóttur í greininni um helgina.

ÍR varð meistari félagsliða
ÍR-ingar fengu flest stig á Meistaramóti Íslands í frjálsíþrótum um helgina og urðu því meistarar félagsliða.

Fjórða gullið hjá Kolbeini
Kolbeinn Höður Gunnarsson vann öruggan sigur í 200 m karla en sló ekki aldursflokkametið í greininni.

Mark reyndi við Íslandsmetið
ÍR-ingurinn Mark Johnson vann öruggan sigur í stangarstökki karla á Meistaramótinu á Akureyri eftir að hafa stokkið yfir 5,15 m.

Hafdís náði ekki Íslandsmetinu
Hafdís Sigurðardóttir náði ekki að bæta Íslandsmetið í 200 m hlaupi á Meistaramótinu á Akureyri eins og hún hafði stefnt að.

Óðinn Björn vann öruggan sigur
Ólympíufarinn Óðinn Björn Þorsteinsson vann öruggan sigur í kúluvarpi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri.

Anton bætti Íslandsmet sitt á HM
Anton Sveinn Mckee úr Sundfélaginu Ægi bætti í morgun Íslandsmet sitt í 400 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu sem haldið er í Barcelona.

Guðmundur átti besta afrek dagsins
Frábær árangur náðist í mörgum greinum á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri en síðari keppnisdagur fer fram í dag.

Gay féll líka á meistaramótinu
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Tyson Gay hafi fallið á meira en einu lyfjaprófi þetta árið.

Setti tappann í flöskuna og er í dag heimsmeistari
Helgi Sveinsson greindist með krabbamein í hægri fæti aðeins sautján ára gamall. Handboltastrákurinn efnilegi missti fótinn og um leið tengslin við það sem veitti honum mesta ánægju. Eftir áratug sem einkenndist af vitleysu fór flaskan upp í hillu og við tóku betri tímar.

Guðmundur kastaði yfir 80 metra
Guðmundur Sverrisson, spjótkastari úr ÍR, bætti sinn besta árangur á Meistaramótinu á Akureyri í dag.

Ásdís náði sér ekki á strik
Ásdís Hjálmsdóttir var nokkuð frá sínu besta á Meistaramótinu í frjálsíþróttum á Akureyri í dag.

Hafdís jafnaði Íslandsmetið í langstökki
Hafdís Sigurðardóttir, UFA, heldur áfram að gera það gott á Meistaramótinu á Akureyri í frjálsíþróttum.

Kolbeinn ögn hraðari en Ívar
Kolbeinn Höður Gunnarsson náði í sitt annað gull á skömmum tíma á Meistaramóti Íslands á Akureyri er hann vann sigur í spennandi 400 m hlaupi.

Hafdís vann baráttuna gegn Anítu
Hafdís Sigurðardóttir hafði sigur í 400 m hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands á Akureyri í dag eftir spennandi keppni við Anítu Hinriksdóttur.

Kolbeinn Höður bætti met Jóns Arnars
Heimamaðurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson náði frábærum tíma í 100 m hlaupi karla á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum í morgun.

Hilmar með yfirburði í sleggjukasti
Hilmar Örn Jónsson, ÍR, hefur tryggt sér sín fyrstu gullverðlaun á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum en hann kastaði lengst í sleggjukasti í morgun.

Arna Stefanía vann á nýju meti
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, ÍR, bætti í dag eigið aldursflokkamet í 100 m grindahlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri.

Bolt að nálgast fyrra form
Usain Bolt hljóp á 9,85 sekúndum á Demantamóti sem fór fram á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum í gær.

Spjót Ásdísar brotnuðu á leið til Íslands
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir varð fyrir því óláni að missa öll sín helstu spjót á einu bretti.

"Ég er búin að vera með hnút í maganum“
Hafdís Sigurðardóttir sér fram á mikla baráttu við Anítu Hinriksdóttur um gullverðlaunin í 400 m hlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri um helgina. Flest okkar besta frjálsíþróttafólk verður með.

Matthildur sjöunda í langstökki
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir hafnaði í sjöunda sæti í langstökki á HM fatlaðra í Lyon í Frakklandi er hún stökk 3,87 m.

Heimsmeistarakast Helga | Myndband
Helgi Sveinsson varð heimsmeistari í spjótkasti fatlaðra í Lyon í gær með glæsilegu mótsmeti er hann kastaði 50,98 m. Helgi keppti í fötlunarflokki F42.

Gefur góð fyrirheit
Ríkissjóður Íslands ákvað að styrkja Afrekssjóð ÍSÍ vegna árangurs Anítu Hinriksdóttur um samtals átta milljónir fram yfir Ólympíuleikana 2016. Formaður sjóðsins er vongóður um meiri skilning ráðamanna á afreksíþróttum á Íslandi.

"Átti ekki marga vini á tímabili"
Fjölþrautarkonan Arna Stefanía Guðmundsdóttir bætti árangur sinn í sjöþraut kvenna um tæp 200 stig á Evrópumeistaramóti nítján ára og yngri á Ítalíu á dögunum. Arna segir gaman að vera kominn á fullt eftir erfitt ár í fyrra þegar fólk gekk svo langt að afskrifa hana.

Helgi heimsmeistari í Lyon | Myndasyrpa
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson varð í kvöld heimsmeistari í flokki F42 á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Lyon. Helgi vann dramatískan níu sentimetra sigur á Ólympíumeistaranum frá Kína, Yanlong Fu.

"Þetta var algjör túrbódagur"
"Það er ekki hægt að lýsa því hvernig mér líður. Þetta er einhver endaleysa í hausnum á mér. Ég veit ekkert hvað ég á að segja," segir nýkrýndur heimsmeistari í spjótakasti Helgi Sveinsson.