Lögreglumál
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 274 ›
Fór húsavillt og kallað var til lögreglu Í nótt var tilkynnt um mann sem var að reynast komast inn í hús í umdæmi lögreglustöðvar tvö. Fljótlega kom í ljós að maðurinn hafði einfaldlega farið húsavillt. Innlent 18.2.2023 07:24
Leita ökumanns sem stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík í gærmorgun. Ökumaðurinn nam staðar og ræddi við vegfarandann en stakk síðan af frá vettvangi. Vegfarandinn er töluvert slasaður. Innlent 17.2.2023 17:38
Ekki taldir alvarlega slasaðir eftir brunann Fimm voru fluttir á sjúkrahús eftir bruna í Vatnagörðum í Reykjavík í morgun en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg að sögn lögreglu. Slökkvistarf gekk vel en margir voru í húsnæðinu, sem hýsir meðal annars áfangaheimili. Lögregla rannsakar nú vettvanginn. Innlent 17.2.2023 14:13
Lögregla eltist við bifreiða-, ferðatösku- og stálplötuþjófa Tveir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar lögreglu barst tilkynning um ferðir bifreiðar sem hafði áður verið tilkynnt stolin. Búið var að skipta um skráningarnúmer á bílnum og ökumaður og farþegi gista nú fangageymslu. Innlent 17.2.2023 06:36
Vildu að öðru lögregluembætti yrði falin rannsókn Óshlíðarmálsins Ríkissaksóknari hefur gert lögreglunni á Vestfjörðum að taka ný gögn, sem komið hafa fram um dauða ungs manns í Óshlíð árið 1973, til skoðunar. Rannsókn málsins var látin niður falla í október en fjölskylda mannsins sem lést kærði ákvörðun lögreglunnar til saksóknara og vildi að öðru embættið yrði falin rannsókn málsins. Innlent 16.2.2023 15:25
„Ömurlegt að fólk virði ekki umferðarreglur“ „Það er náttúrulega ömurlegt að fólk virði ekki umferðarreglur og mjög alvarlegt að fólk sé að keyra þarna þar sem akstur er bannaður.“ Innlent 16.2.2023 14:02
Handteknir með mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst heldur undarlegt útkall í gær þegar hringt var inn og tilkynnt um mögulegt innbrot í verslun í miðborg Reykjavíkur. Ekkert var hæft í því en sá sem hringdi var í bifreið fyrir utan verslunina og var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Innlent 16.2.2023 06:28
Tilkynnt um grunsamlega einstaklinga með skíðagrímur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum í gærkvöldi og nótt vegna grunsamlegra mannaferða. Í öðru tilfellinu var tilkynnt um grunsamlega einstaklinga með skíðagrímur í miðborg Reykjavíkur en þeir fundust ekki þrátt fyrir leit. Innlent 15.2.2023 06:27
Stúlkan sem leitað var að er fundin Stúlkan sem lögreglan á Suðurnesjum leitaði að fyrr í kvöld er fundin. Innlent 14.2.2023 23:04
Fjórir í gæsluvarðhaldi grunaðir um framleiðslu og sölu amfetamíns Fjórir eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við fund lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á miklu magni fíkniefna við húsleitir í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að fimm hafi verið handteknir í þessum aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi en fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Innlent 14.2.2023 13:34
Reyndist vera að framkvæma andlega athöfn með logandi kyndli Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í húsnæði í Hafnarfirði. Í ljós kom að húsráðandi hafi þar verið að framkvæma einhvers konar andlega athöfn með logandi kyndli. Innlent 14.2.2023 06:48
Tvisvar skorið á dekk bifreiðar í eigu konu á tíræðisaldri Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir vitnum af eignaspjöllum þegar skorið var á dekk á bifreið í eigu konu á tíræðisaldri. Þetta er í annað skiptið sem slíkt gerist á nokkurra mánaða tímabili. Innlent 13.2.2023 23:25
Ákærðar fyrir vörslu þýfis og brot á höfundalögum Héraðssaksóknari hefur ákært tvær listakonur fyrir brot á höfundarrétti vegna styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af Snæfellsnesi í fyrra. Styttan var flutt til Reykjavíkur en þar komu þær Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir henni fyrir í eldflaug á skotpalli fyrir utan Nýlistasafnið í Reykjavík. Innlent 13.2.2023 15:55
Eldur í ljósastaur og grunsamlegt Ofurskálaráhorf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast á þessari aðfaranótt mánudags þrátt fyrir leiðinlegt veður. Lögreglan var meðal annars kölluð út vegna skemmda í sameign í bílakjallara og vegna elds í ljósastaur. Innlent 13.2.2023 06:39
Lögreglan leitaði að dansandi manni á Miklubraut Lögreglu á höfuðborgarsvæði var tilkynnt um dansandi mann með heyrnartól á Miklubraut í dag. Sá var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti í leit að manninum. Innlent 12.2.2023 17:41
Kýldi ökumann í andlitið og flúði á brott Ökumaður hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í nótt og tilkynnti líkamsárás. Sagði hann tvo einstaklinga hafa sest inn í bifreiðina hjá honum án leyfis og annar einstaklingurinn síðan kýlt hann í andlitið. Innlent 12.2.2023 08:32
Maðurinn sem leitað var að er fundinn 85 ára karlmaður sem leitað var að í gær, er fundinn. Innlent 11.2.2023 10:36
Braut rúðu á hóteli og hrækti í andlit lögreglumanns Tilkynning barst til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt um aðila sem braut rúðu á hóteli í miðborginni. Innlent 11.2.2023 07:48
Lögreglan lýsir eftir Karli Reyni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karli Reyni Guðfinnssyni, 85 ára karlmanni. Karl Reynir sást síðast er hann fór frá heimili sínu að Keldulandi 13 um hádegisbilið í dag. Karl Reynir á við minnisglöp að stríða. Innlent 11.2.2023 00:03
25 ákærðir fyrir hnífaárásina á Bankastræti Club Héraðssaksóknari hefur ákært 25 í tengslum við rannsókn sína á hnífaárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra. Einn er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Innlent 10.2.2023 17:26
Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang. Innlent 10.2.2023 17:23
Einn á slysadeild eftir árekstur Einn var fluttur á sjúkrahús eftir nokkuð harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar í Reykjavík á öðrum tímanum í dag. Innlent 10.2.2023 14:40
Einn læsti sig inni á salerni og öðrum vísað út af sólbaðstofu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti mörgum og fjölbreyttum verkefnum í nótt, þar af nokkrum útköllum vegna einstaklinga í annarlegu ástandi. Einn neitaði að yfirgefa bráðamóttöku, annar hafði læst sig inni á salerni kvikmyndahúss og enn öðrum var vísað út af sólbaðstofu. Innlent 10.2.2023 07:05
Óður maður á matsölustað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um óðan mann á matsölustað í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluþjóna bar að garði höfðu öryggisverðir þó fylgt manninum út. Ekki fylgir sögunni í dagbók lögreglunnar hvort maðurinn hafi verið handtekinn. Innlent 9.2.2023 18:02
Villti á sér heimildir til að afla gagna um eiginkonuna Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. mars næstkomandi vegna ítrekaðra brota á nálgunarbanni gegn fyrrverandi eiginkonu sinni og ólögráða barni. Innlent 9.2.2023 14:45
Kæra úrskurð héraðsdóms í hryðjuverkamálinu Úrskurður héraðsdóms um að vísa skuli frá ákærum er varða hryðjuverk hefur verið kærður til Landsréttar. Héraðsdómur úrskurðaði síðastliðin mánudag að Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson yrðu ekki ákærðir fyrir skipulagningu eða tilraun til hryðjuverka. Innlent 9.2.2023 14:07
Kallað út vegna mikils reyks í húsi á Arnarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir að tilkynnt var um mikinn reyk í húsi við Þernunes á Arnarnesi í Garðabæ skömmu fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Innlent 9.2.2023 07:32
Mál Guðjóns vopnasala og fleiri fara mögulega aftur til lögreglu „Það er enn opið og ekki búið að taka ákvörðun um það,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari um mál Guðjóns Valdimarssonar, föður ríkislögreglustjóra, og annarra einstaklinga vegna gruns um brot á vopnalögum. Innlent 9.2.2023 07:21
Aðgerðum lokið án handtöku Lögregluaðgerðum á Sauðarkróki er lokið án handtöku. Enginn grunur er um ætlaða refsiverða háttsemi. Innlent 8.2.2023 22:01
Mikill viðbúnaður í íbúagötu á Sauðárkróki Nokkrir lögreglubílar eru staddir í íbúagötu á Sauðárkróki vegna vopnaðs manns. Sérsveit ríkislögeglustjóra hefur verið send frá Akureyri til aðstoðar en ekkert aðhafst neitt. Innlent 8.2.2023 19:27