Minkum sleppt í Mosfellsdal
Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut. Lífið 31.7.2026 17:51
Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Rannsókn lögreglu á innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal stendur enn yfir. Ummerki benda til þess að fleiri en einn kunni að hafa verið að verki en það hefur ekki verið staðfest. Á sama tíma hefur ástandið í dalnum róast og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð. Innlent 31.7.2026 12:38
Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Dýraverndarsamband Íslands segir nauðsynlegt að aðgerðir vegna minka í Mosfellsdal fari fram á mannúðlegan hátt og að sé nauðsynlegt að aflífa dýrin, sé það framkvæmt í samræmi við lög um velferð dýra. Innlent 31.7.2026 08:22
Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Þegar hamfarirnar í Tsjernóbýl urðu var spurningin sem mótaði framtíðina ekki aðeins hver bæri ábyrgð eða hverjum væri um að kenna. Skoðun 30.7.2026 15:01
Staðan orðin „þokkalega góð“ Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að vel hafi gengið að fanga minka sem sluppu úr Dalsbúi í gærmorgun eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Verkefni dagsins í dag sé að fá tölu á þá minka sem sluppu út en þeir kunna að vera í þúsunda tali. Flestir minkanna hafa ekki vogað sér út fyrir öryggisgirðinguna við búið. Innlent 30.7.2026 12:35
Fleiri en einn hafi verið að verki Aðgerðir í Mosfellsdal gengu vel í nótt og halda áfram í dag að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Tilkynningar næturinnar megi telja á fingrum annarrar handar en aðgerðarstjórnin vilji vera með vaðið fyrir neðan sig. Honum þyki ekki ólíklegt að um sömu aðila sé að ræða og í innbroti í svínabú og kjúklingabú fyrr í sumar og að fleiri en einn hafi verið að verki. Innlent 30.7.2026 10:39
Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Dýralæknafélag Íslands fordæmir harðlega meint innbrot og skemmdarverk á þremur búum og að dýrum hafi verið sleppt úr haldi. Slík atvik staðfesti dómgreindarleysi þeirra sem að aðgerðunum standi. Félagið lýsir yfir stuðningi við lögreglu, Matvælastofnun og aðra sem koma að aðgerðunum í Mosfellsdal. Innlent 30.7.2026 09:34
Mosfellsdalur minnti á vígvöll „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. Innlent 30.7.2026 00:02
„Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Eigandi síðasta minkabús landsins ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir að bróðurparti minkanna hafi verið sleppt í morgun. Skothvellir hafa ómað í Mosfellsdal í dag. Innlent 29.7.2026 15:23
Allir á hlaupum að reyna fanga minka Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir. Innlent 29.7.2026 13:35
Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af Fyrrverandi loðdýrabóndi í Skagafirði segir hátt í níutíu prósent minkanna sem sleppt var úr loðdýrabúi í Mosfellsdal munu drepast á næstu dögum. Þeir sem lifi af muni valda náttúrunni miklum skaða. Innlent 29.7.2026 12:11
„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. Innlent 29.7.2026 12:06
Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. Innlent 29.7.2026 10:55
Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum. Innlent 29.7.2026 10:30
Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að. Innlent 29.7.2026 10:27
Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Bæjarstjóri Mosfellsbæjar ráðleggur íbúum að halda dýrum sínum inni á meðan mynd kemst á stöðuna í tengslum við atvikið á Dalsbúi í nótt, þar sem hundruðum minka var sleppt úr búrum sínum. Innlent 29.7.2026 10:04
Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. Íbúar í nágrenninu óttast um lífríkið á meðan minkarnir ganga lausir. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Innlent 29.7.2026 08:53