Jarðskjálfti í Venesúela 2026
Reiðin magnast í Venesúela Enn er leitað að fólki víðsvegar um Venesúela eftir tvo stóra jarðskjálfta sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. 1700 manns liggja í valnum svo vitað sé en enn eru margir enn undir rústum og eru margir Venesúelabúar nú reiðir stjórnvöldum fyrir seinagang við björgunaraðgerðir. Erlent 30.6.2026 06:57
Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Venesúelski knattspyrnumaðurinn Héctor Bello syrgir eiginkonu sína, Andreu Bello, sem fórnaði lífi sínu til að vernda eins árs gamla dóttur þeirra, Ölönu, í mannskæðum jarðskjálftum sem riðu yfir Venesúela þann 24. júní síðastliðinn. Fótbolti 30.6.2026 06:42
Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Forseti Venesúela segir 33 hafa verið dregna á lífi upp úr rústum bygginga sem hrundu í tveimur stórum jarðskjálftum sem lögðu þjóðina í rúst. Um 800 byggingar eru taldar hafa hrunið í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. Enn er talið að margir Venesúelabúar séu fastir undir rústum þeirra. Erlent 29.6.2026 00:04
„Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Eiginmaður poppstjörnunnar Páls Óskars, Edgar Antonio Luena Angarita, átti afmæli síðasta föstudag, þann 26. júní, en í stað þess að dagurinn snerist um ekkert nema gleði og hamingju fylgdust þeir Páll og Antonio með fréttum af fjölskyldu Antonio, sem býr í Venesúela. Þar hefur tala látinna hækkað sífellt síðustu sólarhringa í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku sem lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst. Innlent 28.6.2026 15:54
Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Tala látinna í Venesúela í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku hefur hækkað og er nú 1.430. Tilkynnt hefur verið um að að minnsta kosti 68.900 séu týnd nú þegar fjórir dagar eru liðnir frá því að eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst. Erlent 28.6.2026 07:43
Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. Innlent 27.6.2026 17:32
Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. Erlent 27.6.2026 08:32
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. Erlent 26.6.2026 07:43
„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna. Erlent 25.6.2026 22:30
Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands þekkir vel til skjálftasvæðana í Venesúela þar sem jörð skalf í gærkvöldi, en hann aðstoðaði kollega sinn við ritun greinar um misgengin í norðurhluta Venesúela árið 2021. Innlent 25.6.2026 12:30
Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Enn hafa engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá Íslendingum á skjálftasvæðunum í Venesúela. Erlent 25.6.2026 10:35
Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas. Erlent 25.6.2026 06:18