„Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 2. júlí 2026 11:56 Páll Óskar tengist samfélagi Venesúelabúa hérlendis djúpum böndum en eiginmaður hans, Antonio, er frá Venesúela. Samsett „Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur.
Páll Óskar lýsir því hvernig þeim bárust fréttirnar. „Fyrstu klukkutímarnir voru hryllilegastir. Hann reynir strax að hafa samband við fólkið sitt en enginn svarar – það er ekkert símasamband, ekkert internet. Að vita ekkert um afdrif fjölskyldunnar er hryllilegt. Þú getur rétt ímyndað þér hvers lags martröð það er.“ Sem betur fer hafi fjölskylda Antonios þó verið heil á húfi. Það eigi þó alls ekki við um alla. „Sem betur fer eru allir á lífi og hús þeirra flestra standa enn, þó innanstokksmunir og slíkt hafi brotnað. Sömu sögu er ekki að segja um vini og fólk sem þau þekkja. Antonio þekkir fólk sem jafnvel hefur ekkert spurst til frá því þetta gerðist.“ Jarðskjálftinn rifjar einnig upp slæmar minningar fyrir Antonio sem var staddur í Ekvador þegar jarðskjálfti upp á 7,8 reið yfir árið 2016. „Antonio hefur séð með eigin augum byggingar hrynja fyrir framan nefið á sér.“ Aðstæður í Venesúela voru mjög bágbornar fyrir skjálftann, innviðir víða að hruni komnir og efnahagsástand slæmt. „Það eru í raun tvær hörmungarsögur í gangi, önnur af náttúruvöldum og hin af mannavöldum. Ég get staðfest það að hörmungaratburðarásin af mannavöldum er verri. Ég veit ekki hvort fólki sé kunnugt um hvernig ástatt hefur verið í Venesúela síðustu tuttugu og fimm árin. Venesúela frá því að vera ríkasta þjóð Suður-Ameríku yfir í algjört gjaldþrot.“ Páll vísar hér til valdatíðar Hugo Chavez, forseta landsins frá árinu 1999 til dánardags 2013, og Nicolas Maduro, arftaka hans sem tók við af Chavez og gegndi embætti uns Bandaríkjastjórn handtók hann og færði í hald í Bandaríkjunum í upphafi þessa árs. „Þeir lofa fólki bót og betrun undir einhverju yfirskini sósíalisma sem þróast síðan út í fasisma, spillingu og glæpatíðni eykst – allt í einu fá glæpahópar að leika lausum hala með einhverju samþykki stjórnvalda.“ Páll Óskar segir ólíft fyrir almenning í Venesúela. Þá sitji enn sami hópur fólks við völd þó að Maduro hafi verið fjarlægður. Einhverjir íbúar landsins hafi ef til vill borið vonarglætu í brjósti eftir að varaforseti landsins, Delcí Rodriguez, tók við stjórnartaumunum en fljótt hafi verið slökkt í þeirri glætu. Páll segir að í þeim hópi Venesúelabúa sem sé í kringum sig hafi von um stórfelldar breytingar ekki verið til staðar. „Flestir ypptu öxlum og áttu ekki von á að nokkuð myndu breytast.“ Almenningur drýgi hetjudáð Myndskeið sem sýna almenna borgara sinna björgunarstörfum hafa vakið athygli og sýna vel getuleysi stjórnvalda. „Það eru almennir borgarar í Venesúela að reyna að lyfta steinsteyptum veggjum af fólki vegna þess að það berst engin hjálp. Meira að segja fyrir jarðskjálftann, segjum að þú lendir í alvarlegu umferðarslysi, það er ekkert víst að það berist sjúkrabíll á staðinn.“ UNICEF stendur fyrir söfnun Páll Óskar hvetur landsmenn til að styrkja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, sem stendur nú fyrir söfnun vegna hamfaranna. Með því að hringja í síma 907-3016 sé hægt að styrkja UNICEF um þrjú þúsund krónur. „Þetta er það minnsta sem við getum gert hér heima ef við viljum sýna þessu fólki einhverja lágmarkssamkennd.“
Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Venesúela Náttúruhamfarir Tengdar fréttir „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Eiginmaður poppstjörnunnar Páls Óskars, Edgar Antonio Luena Angarita, átti afmæli síðasta föstudag, þann 26. júní, en í stað þess að dagurinn snerist um ekkert nema gleði og hamingju fylgdust þeir Páll og Antonio með fréttum af fjölskyldu Antonio, sem býr í Venesúela. Þar hefur tala látinna hækkað sífellt síðustu sólarhringa í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku sem lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst. 28. júní 2026 15:54 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira
„Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Eiginmaður poppstjörnunnar Páls Óskars, Edgar Antonio Luena Angarita, átti afmæli síðasta föstudag, þann 26. júní, en í stað þess að dagurinn snerist um ekkert nema gleði og hamingju fylgdust þeir Páll og Antonio með fréttum af fjölskyldu Antonio, sem býr í Venesúela. Þar hefur tala látinna hækkað sífellt síðustu sólarhringa í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku sem lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst. 28. júní 2026 15:54