Stj.mál
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 187 ›
Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna misvísandi Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru misvísandi. Í tveimur af þremur þeim nýjustu nær Sjálfstæðisflokkurinn ekki meirihluta í borginni og í þeirri þriðju er meirihluti flokksins mjög tæpur. Innlent 26.5.2006 13:50
Könnun á fylgi flokka á Álftanesi Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði skoðanakönnun fyrir íbúasamtökin Betri Byggð á Álftanesi, um fylgi stjórnmálaflokka á Álftanesi vegna bæjarstjórnakosninga í vor. Könnunin fór fram dagana 17. til 18. maí og stuðst var við 600 manna úrtak íbúa Álftanes 18 ára og eldri. Svarhlutfall í könnuninni var um 60%. Innlent 26.5.2006 11:31
Ólíkar niðurstöður skoðanakannana Flökt er á milli hinna ýmsu skoðanakannana, sem verið er að gera þessa dagana, á fylgi flokkanna í Reykjavík. Þrátt fyrir að kannanirnar séu ekki mjög misvísandi gæti skipt sköpum hver reynist réttust. Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS gefur Sjálfstæðisflokki átta fulltrúa, eða hreinan meirihluta, og Samfylkingunni fjóra. Könnun Gallups fyrir Ríkisútvarpið gefur Framsóknarflokknum einn fulltrúa, á kostnað meirihluta Sjálfstæðsiflokksins. Könnun Fréttablasins bætir fimmta manni við Samfylkinguna á meðan fulltrúi Framsóknar hverfur og sömuleiðis meirihluti Sjálfstæðisflokks, en Vinstri grænir fá tvo fulltrúa. Innlent 26.5.2006 08:50
Ekki móður á lokasprettinum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar, segist síður en svo móður á lokasprettinum í kosningabaráttunni, þrátt fyrir að hún hafi í raun staðið hjá honum frá því í haust. Hann ræsti í dag unga sem aldna í árlegu Breiðholtshlaupi, í hverfinu þar sem hann hefur búið í liðlega aldarfjórðung. Innlent 25.5.2006 18:40
Óánægja milli sjálfstæðismanna og minnihluta í Mosfellsbæ Óánægja er komin upp milli sjálfstæðismanna og minnihlutans í Mosfellsbæ. Ekki náðist samkomulag um tilhögun sameiginlegs framboðsfundar sem vera átti í gær og því varð ekkert úr fundinum. Innlent 25.5.2006 18:48
Sjálfstæðisflokkurinn fær hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn er með rúmlega 47 prósenta fylgi og fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS. Björn Ingi Hrafnsson oddviti Framsóknarflokks nær ekki kjöri samkvæmt könnuninni. Innlent 25.5.2006 18:29
Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn. Innlent 24.5.2006 20:15
Læknirinn og frambjóðandinn á gamla vinnustaðnum Læknirinn og frambjóðandinn Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar, heimsótti í dag sinn gamla vinnustað Landspítalann, til að kynna stefnumál flokksins. Sjálfur segist hann sakna gamla starfsins en er ekki viss um að það fái mikinn tíma með fram borgarstjórastarfinu. Innlent 24.5.2006 19:11
Segja Sjálfstæðisflokkinn misnota aðstöðu sína við atkvæðaveiðar Leiðtogar Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ saka Sjálfstæðisflokkinn, sem skipar meirihluta bæjarstjórnar, um að misnota aðstöðu sína, í því skyni að afla sér fylgis í komandi bæjarstjórnarkosningum. Innlent 24.5.2006 11:56
D-listi á móti rekstri opinberra leikskóla? Þrír frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru á móti rekstri opinberra leikskóla og opinberum framlögum til menningar- og menntamála. Þessu heldur frambjóðandi Samfylkingarinnar í borginni fram. Innlent 23.5.2006 22:43
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, verður haldinn í Kópavogi í kvöld. Þar situr nú meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, en klukkan fimm í dag birtum við fyrstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar, sem sýnir hvort breyting er að verða á því. Innlent 23.5.2006 12:29
Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Innlent 22.5.2006 22:11
Vija skýr svör um skipulag á Blómsturvallalóð Íbúar í vesturbæ Reykjavíkur hafa safnað undirskriftum þar sem þess er krafist að allir flokkar sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga svari spurningum um skipulag á lóð á mótum Bræðraborgarstígs og Hávallagötu. Íbúarnir óttast að þar muni rísa fjölbýlishús en verktakinn sem keypt hefur lóðina segist ætla að reisa þar raðhús. Innlent 22.5.2006 19:02
Skoða verði möguleika á nýju afli ef orð standa ekki Skoða verður þann möguleika vel að stofna nýtt stjórnmálaafl fyrir næstu þingkosningar ef stjórnmálaflokkarnir standa ekki við yfirlýsingar sínar um vilja til breytinga á velferðarkerfinu, segir formaður Öryrkjabandalags Íslands. Hann vonast til að raunhæfar tillögur liggi fyrir í mars eða apríl á næsta ári. Innlent 22.5.2006 18:54
90 hjúkrunarrými á Lýsislóðina Hjúkrunarheimili með 90 rými verður reist á Lýsislóðinni. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Jónmundur Sigmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag. Innlent 22.5.2006 17:40
Hyggjast leysa húsnæðisvanda ungs fólks Samfylkingin svaraði kalli Stúdentaráðs í dag varðandi húsnæðisvanda ungs fólks, með því að reisa skilti á gatnamótum Hringbrautar og Sæmundargötu. Á skiltinu stendur hvað Samfylkingin hyggist gera til að bæta húsnæðisvanda ungs fólks. Flokkurinn hyggst beita sér fyrir byggingu átta hundrað íbúða fyrir stúdenta í miðbænum og í nágrenni við Háskóla Íslands. Innlent 22.5.2006 16:06
Deila um styrkveitingu til Fram Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram. Innlent 19.5.2006 17:03
400 stúdentaíbúðir byggðar við Hlemm 400 stúdentaíbúðir munu rísa við Hlemm á næstu árum, en Skipulagsráð Reykjavíkur og Byggingafélag námsmanna kynnti þessi áform á blaðamannafundi í dag. Innlent 19.5.2006 16:06
Deilt um hvort bílastæðum fækki í miðborginni Þróunarfélag miðborgarinnar mótmælir líkt og Laugavegssamtökin áformum Reykjavíkurborgar um að fækka bílastæðum við götur miðborgarinnar eins og kemur fram í samþykkt borgarstjórnar. Þessari túlkun á samþykktum mótmælir formaður umhverfisráðs. Innlent 19.5.2006 15:11
Mótmælir fækkun bílastæða í miðborginni Stjórn Laugavegssamtakanna mótmælir harðlega fyrirætlunum meirihluta borgarstjórnar um að fækka bílastæðum í miðborginni og þrengja að aðkomu einkabílsins að miðborginni, eins og samtökin segja að standi berum orðum í stefnu meirihlutans. Ekkert samráð hafi verið haft við rekstraraðila eða íbúa um málið. Innlent 19.5.2006 12:10
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. Innlent 19.5.2006 11:58
Um fimmtungur segir ölvunarakstur hafa áhrif á afstöðu sína Um það bil tuttugu prósent, eða fimmtungur kjósenda í Árborg, segja að fréttir af ölvunarakstri Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, hafi áhrif á afstöðu þeirra í komandi bæjarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Innlent 19.5.2006 09:58
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. Innlent 19.5.2006 08:33
Breytingar geti lækkað matarverð um 20 prósent Samtök verslunar og þjónustu segja að matarverð geti lækkað um hátt í 20 prósent ef breytingar verði gerðar á skatta- og gjaldaumhverfi á matvörumarkaði. Samtökin vilja frjálsan innflutning á landbúnaðarvörum í skrefum en vilja breytingar á vörugjöldum og virðisaukaskatti sem fyrst. Innlent 18.5.2006 22:38
Vilja allir hækka laun leikskólakennara Talsmenn flokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnakosninga telja allir að hækka beri laun leikskólakennara og efla faglegt starf innan leikskólanna með fjölgun menntaðra leikskólakennara. Þetta kom fram á fundi haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Innlent 18.5.2006 22:19
Segjast ekki hafa boðið Gísla Einarssyni sæti á lista Forystumenn Frjálslynda flokksins segja ekkert hæft í þeirri „gróusögu" að flokkurinn hafi í undanfara kosningabaráttu boðið Gísla S. Einarssyni, fyrrverandi alþingismanni Samfylkingar, sæti á framboðslista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Innlent 18.5.2006 13:05
Efasemdir um ágæti vaxtahækkana Vaxandi efasemda er farið að gæta um að stýrivaxtahækkanir þjóni lengur tilgangi sínum, og að úr þessu geti þær jafnvel farið að hafa neikvæð áhrif. Innlent 18.5.2006 12:09
Stýrivextir í sögulegu hámarki Stýrivextir Seðlabankans hækka í 12,25 prósent samkvæmt ákvörðun sem bankastjórn Seðlabankans tilkynnti í morgun. Stýrivextir hafa aldrei verið hærri en þeir eru núna. Innlent 18.5.2006 11:58
Kosningaþátttaka innflytjenda geti hugsanlega ráðið úrslitum Þátttaka innflytjenda getur hugsanlega skipt sköpum varðandi úrslit kosninga í einstökum bæjarfélögum, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðahúss. Hann bendir á hópurinn sé stór og mikilvægur og að stjórnmálaflokkarnir séu að átta sig á þeirri staðreynd. Innlent 17.5.2006 22:35
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent